Vikan - 07.11.1963, Blaðsíða 14
Þegar hann lyfti höndunum, sá Fleig fleygana tvo,
sem tattoveraSir voru á upphandlegg manns-
ins — SS.
ggflggwyg.
;■ £
mm
■
t§Hljjk ' ij. í
Bjjgjjjlifjj fi. 1
.. B9&H J [ ■
EFTIR TED STOIL
Á nafnskrá skuggalegrar byggingar í Via
Lorenzo Franceschi í Genúa er meðal annars
skráður tannlæknir, húðflúrari, tveir lögfræðingar,
nokkrir leigendur óskilgreindrar stéttar og á
þriðju hæð:
HGENZIH Dl RICUPERI MHRITTIMI
LOWELL H. VOORHIES, DIRETTORE
Meiriháttar hafnarborg á borð við Genúu er eðlileg miðstöð fyrirtækis, sem vinnur að
því að bjarga verðmætum úr greipum sjávar, ekki sízt úr því að svo vill til að direttore
þess er Lowell Voorhies — stórvaxinn, glaðvær og andlitsrjóður Bandaríkjamaður á
fimmtugsaldri, með tólf ára reynslu að baki sem kafari við flota heimalands síns.
Þegar haft er í huga, að fyrirtæki Voorhies, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Bayonne,
New Jersey, er í tölu hinna athafnasamari í sinni grein, skyldi maður ætla að hann hefði
nóg að gera, en það er nú öðru nær. Síðan skrifstofa hans var opnuð í marz 1955, hefur
ekki einn einasti viðskiptavinur gefið sig þar fram.
Sannleikurinn er sá, að Voorhies er ekki á höttunum eftir viðskiptum. Síðan 1955 hefur
hann, með fáeinum undantekningum þó, setið við skrifborðið sitt við Via Franceschi fimm
klukkustundir á dag. Hann hefur ekki beðið eftir viðskiptavinum, heldur eftir ákveðnu
Bommel, til vinstri, staddur í vesturhluta eyði-
merlturinnar, I febrúar 1942.
14
VIKAN 45. tbl.