Vikan


Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 30

Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 30
MITT STOLT ERU STR ANDF JÖLLIN Framliald af bls. 21. Við sem eitt sinn áttum þarna heima, undrumst slíkan dug. Okkur þykir þægilegt að gleyma því sem skelfdi hug. Gleyma ísi og útmánaðasveltu, angri, kotungsbrag. Muna gróðurilm og sjávarseltu sól og júnídag. Hungurvofur, hrjósturbyggðir kaldar hugdeig flýðum við. Vitið samt: Þær eru eftir taldar ykkur hetjulið, vegna þess hann afi okkar hlóð þar ofurlítinn bæ vegna þess að vaggan okkar stóð þar varin hungri og snæ. Láttu fóstra, napurt um þá næða norðanélin þín, fjörudrauga og fornar vofur hræða. .Feigum villtu sýn, þeim, sem vilja virkjum morðsins níða vammlaust brjóstið þitt. Sýni þeim hver örlög böðuls bíða bernskuríkið mitt. Byltist, fóstra, brim í geði þungu. Barnið leitar þín. Legg mér hvessta orðsins egg á tungu eld í kvæðin mín. Lífsins mátt og orðsins afl þar kenni ármenn réttar þíns. Níðings iljar alia daga brenni eldur ljóðsins míns. Þannig var það ljóð, sem vakti Kanadátum svo mikinn ugg í brjósti. Orð þess urðu að áhríns- orðum. Þegar Jakobína Sigurðardótt- ir frétti um hrakfarir hersins fyrir þeim öflum á Hornströnd- hlíðinni hrekkur ekki til. Margir binda talsverðar von- ir við það, að laugarnar okkar og hverirnir eigi eftir að draga hingað fólk hvaðanæva úr ver- öldinni til heilsubóta. Bent hef- ur verið á það, sem Þjóðverjar hafa gert úr sínum laugum. Þar eyða gigtveikir milljónerar svimandi upphæðum í allskon- ar böð. Ekki er að efa það, að Laugarvatn væri eins góður staður fyrir slíka stofnun og hver annar, sem jarðhita hefur. Að lokum nokkur orð um vegina í kringum Laugarvatn. Ferðamálafélagið beitti sér fyr- ir því, að gamli kóngsvegurinn milli Gjábakka og Laugarvatns var lagfærður, svo hann má telj- ast vel ökufær. Sumir þóttust sjá í þessu fyrirtæki nokkra skammsýni; þetta mundi aðeins tefja það nokkur árin í viðbót, að við fengjum viðunandi veg beint yfir lægðina milli Lyng- dalsheiðar og Laugarvatnsvalla. Ég er hinsvegar að vona, að þessi vegarlagning verði til þess, að beini vegurinn yfir lægðina verði aldrei lagður. Gamli veg- urinn er ótvírætt á miklu feg- urri stað og þetta er fyrst og fremst ferðamannaleið. Þessi vegur má gjarnan vera dálítið krókóttur eftir því sem lands- lagið gefur tilefni til. Og það þarf alveg endilega að leggja betri braut upp að hellinum á Völlunum. Þessi hellir er nú raunar ekki neitt stórkostlegt náttúrufyrirbrigði, en mörgum mun kunnugt um, að þar bjó fólk fyrir ekki svo ýkja löngu. Líklega er það sú vitneskja, sem dregur fólk upp að hellinum. Auk þess er afar fallegt á Völl- unum og vel þess virði að koma þangað. En ég mæli með því, að þilið, sem hellisbúarnir höfðu fyrir hellismunnanum, verði end- urreist sem líkast því er var. Það þarf auðvitað að stórbæta veginn frá Gjábakka að Laugar- vatni, en ég mæli með því, að hann verði ekki að ráði færður úr stað og gerður þráðbeinn. Það er allsstaðar verið að falla frá þessum beinu vegum þar sem mögulegt þykir. Þeir eru ekki fyrir mennska menn. Hitt er pvo annað mál, að hann þarf að vera breiður, því það verður mikil umferð á þessari leið. Vegurinn austur Laugardal er á köflum illfær fyrir venjulega fólksbíla sökum þess að einhverjum kæru- litlum vegavinnuverkstjóra hef- ur þóknazt að bera á hann hnull- unga úr árfarvegi. Þeir minna á hrjúfa hnullungana í vatns- borðinu á Laugarvatni. Hvort- tveggja bíður endursköpun nýrra og víðsýnna stjórnenda. GS. Alliir utan hættu, suður gefur. A-D-3-2 y 8-6 4 D-G-10-9-8 G-7 & 7'6-5 ^ K-9-7-5 ♦ K-4 Jf, K-8-6-4 é, K-G-4 9$ A-D-4 4 A-7-3-2 Jf. 10-5-2 ♦ * 10-9-8 G-10-3-2 6-5 A-D-9-3 Suður 1 grand 2 grönd 3. grönd Vestur pass pass pass Norður 2 tíglar 3 spaðar pass Austur pass pass pass. Útspil hjartafimm. Þessi kynslóð þekkir lítið af snilld Ely Culbertson, sem á þriðja áratug aldarinnar, var álit- inn einn snjallasti spilamaður heimsins. Hér er lítið dæmi. Culbertson sat í suður og vest- ur, spilaði út hjartafimmi. Aust- ur lét tíuna og Culbertson drap slaginn — með ÁSNUM. Síðan fór hann inn á spaðadrottning- una og svínaði tíguldrottningu. Vestur drap með kóngnum og sannfærður um að makker sinn ætti D-G í hjarta, þá spilaði hann hjarta. Suður drap náttúr- lega á drottningu og fékk tíu slagi. Hefði Culbertson drepið á hjartadrottningu í fyrsta slag, hefði vestur vitað að hann átti ásinn eftir. Eftir að komast inn á tígulkónginn var auðvelt fyrir hann að sjá, að gagnlaust var að halda áfram með hjartað og eini möguleikinn væri að spila laufi. En rykið, sem Culbertson sló í augu vesturs, gerði honum ó- kleift að skipta yfir í lauf. 0Q _ VIKAN 46. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.