Vikan


Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 39

Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 39
Hún brosti, bæði með aug- unum og munninum með smáu, eilítið ójöfnu tönnunum. „Heim með þig,“ sagði skip- stjórinn. „Hlauptu!" Renato dreymdi margt fólk kringum sig —• föður sinn, móð- ur sína, Silvíu, Louisönnu og Grunt var þar líka. Svo livarf ailt fólkið, en Grunt varð eftir og gelti og bofsaði. „Þegíðu!“ sagði Renato lágt. „Þegiðu ... annars finna þau mig!“ Hann vaknaði við það að Giunt bljóp ofan á bonum, kol- svartur, kafloðinn og uppveðr- aður og réði livorki við gjamm- ið í sér eða skottið á sér. Ren- ato reyndi að verja andlit sitt hrjúfri tungu hans, og vissi ekki almennilega enn hvort að hann svaf eða vakti. Svo sá liann laufin á greinunum og veggi gamla virkisins bera við húm- myrkan himininn. Og þá rifj- aðist allt upp fyrir honum, og hann varð enn gripinn sárum vanmætti og einmanakennd, og hann vafði hundinn örmum og þrýsti lionum að barmi sér. Grunt brauzt um og þegar hon- um liafði tekizt að losna, stökk hann fram á skriðubrúnina og gellti ákaft, kom siðan aftur til Rcnatos og gjammaði i sífellu. Renato settist upp og vafði peysunni hennar Louisönnu bet- ur að sér. Honum var hrollkalt, þcgar hann stóð upp og fann að hann gat beitt fyrip sig fæt- inum. ,,Á þínum aldri batnar allt, bara ef maður fær sér blund,“ var móðir lians' vön að segja. Nei, ekki allt. Það vissi hann nú. En það leysti ekki heldur vandkvæðin að fara í felur. Hann gekk hægum skref- uin á eftir Grunt fram á skriðu- brúnina, og sá afa sinn i stóln- um fyrir neðan. Sá að hann sat þarna einn með arma kross- lagða á brjósti. „Komdu hingað niður, dreng- ur minn,“ kallaði afi hans til hans, og rödd hans var lilýleg en ákveðinn. Hann var ekki reiður fyrst hann sagði dreng- ur minn. En hann hlaut að vera þreyttur. Vegurinn heiman frá húsinu var bæði brattur og lang- ur, og skipstjórinn var orðinn lúinn og stirður í örmum. Renato lialtraði ofan stiginn, á eftir Grunt. Skipstjórinn liorfði á hann, þar sem hann nálgaðist, ungur og einmana og renglu- legur, með rauðu peysuna um bálsinn, og þegar hann var kom- inn til hans, tók gamli maður- inn til máls. „Jæja, drengur minn. Hvað segirðu þá? Hún er farin. Fór fyrir stundu síðan.“ Renato þagði við. „Drengur minn,“ mælti gamli maðurinn ginn. „Við sköpum ekki sjálfir fyrstu stúlkuna, sem við girnumst. Hún bíður okkar fullsköpuð, með öllum sinum kostum qg göllum, og engum verður þar um kennt. Ekki einu siuni henni sjálfri.“ „Fyrsta stúlkan, sem við girn- umst,“ endurtók Renato í huga sér. „Þú vissir það þá,“ sagði hann. „Heldurðu kannske að ég viti ekki allt um þig?“ spurði gamli maðurinn. „Og þú veizt þá líka livernig fór?“ „Á meðan enginn tekur sér fram um að stinga kefli uppí þessa Önnu, vita allir í þessu þorpi allt, sem þar gerist, að minnsta kosti allt, sem eitthvað snertir liann föður þinn.“ „Hversvegna sagðir þú mér það ekki, fyrst að þú vissir það?“ spurði Renato. „Varð ekki hún móðir þín til þess?“ spurði gamli maðurinn. „Og varstu henni ekki þakklátur fyrir það?“ Renato leit undan. „Við ráðum ekki einu sinni neinu um okkar eigin foreldra, drengur minn,“ mælti gamli maðurinn enn. „Þeir bíða okk- ar lika fullskapaðir, með öllum sínum breyskleikum og metnað- argirnd. Það eru byrðar, sem við verðum að hjálpa þeim að bera. Við verðum að liafa sam- úð með þeim, drengur minn — það er yfirleitt ekki liyggindun- um fyrir að fara hjá þessu full- orðna fólki.“ „Afi,“ sagði Renato og lagði vangann að mjúkum og heitum feldi hundsins. „Afi, inig lang- ar ekki til að verða fullorðinn.“ En hann var þegar orðinn fullorðinn. Hann vissi það og afi hans vissi það lika. „Við skulum koma heim,“ sagði gamli maðurinn. „Þau þurfa þín við.“ Renato sleppti Grunt, sem greip sprettinn heim að húsinu. Án þess að mæla orð frá vörum, sneri Renato hjólastól gamla skipstjórans á veginum og tók að ýta lionum; ýtti og stakk við, og það var eins og hann fjarlægðist æsku sína við livert skref. Og svo komu þau, faðir lians og móðir, auga á þá báða, gamla fótlama öldunginn og renglu- legan, haltrandi unglinginn og VIKAN 46. tbl. — gg

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.