Vikan


Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 51

Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 51
XJmsagnir um bækur. Framhald af bls. 2. Miðlabækurnar og andalæknafrá- sagnirnar hafa selzt mjög vel; runnið út eins og heitar lummur. Það sýnir að minnsta kosti, að almenningur í landinu er áhuga- samur um þessa hluti. Hér í landi kunningsskaparins hefur það heldur ekki farið framhjá nein- um, að andalæknar hafa í ein- stökum tilfellum unnið allt að því kraftaverk. Um það þekkja flestir einhver dæmi. Hinsvegar hefur margt verið dregið fram í dagsljósið í þessari andalækna- bókaútgáfu, sem betur hefði kyrrt legið og óútgefið. Ólafur Tryggvason á Akureyri er einn kunnasti andalæknir landsins; alvörugefinn trúmaður og einlægur í skoðunum sínum á þessu efni. Hann hefur merki- lega dulræna hæfileika, skarpa og skemmtilega greind. Hins- vegar fer það ekki framhjá nein- um, sem les, nýútkomna bók eft- ir hann, að Ólafur er ekki í hópi hinna menntuðu rithöfunda þjóðarinnar. Bókin heitir „Tveggja heima sýn“ og gefur nafnið nokkra hugmynd um inni- hald hennar. Hvað sem menn annras kunna segja um anda- lækningar almennt og dulræn fyribrigði, þá á bók Ólafs er- indi til trúhneigðra manna yfir- leitt. Þeir sem á annað borð hafa áhuga á eilífðarmálunum og láta sig eitthvað skipta, hvað við tek- ur eftir að þeir hafa sett upp tærnar, þeir munu finna gott lestrarefni í bók Ólafs Tryggva- sonar. Atli Már hefur gert kápu- teikningu í hinum venjulega hrópstíl; gult letur og hvítt í svörtum og brúnum grunni. Samt er þetta listræn kápa í marga staði. „Við ókum suður“ heitir ferða- bók, sem Fróði gefur út, Höf- undurinn er kunnur, danskur blaðamaður, rithöfundur og bók- menntagagnrýnandi. Bókin varð fræg í Danmörku undir nafninu „Min kone sidder pá kassen". Þetta er ferðasaga; höfundurinn segir frá ferðalagi um Ítalíu og Frakkland og eins og ráða má af hinu danska heiti bókarinnar, hafði frúin fjárráðin. Þessi bók er uppfull af dönskum húmor og léttleika og Þar er fjallað um efnið af næmleik og skilningi. Jens Kruuse hendir að jöfnu gam- an að sjálfum sér og samferða- fólkinu, en meðal þess er kunnur íslenzkur listamaður, Einar Sig- fússon, fiðluleikari í Árósum. Hann skrifar lokakafla bókarinn- ar af einstakri lipurð. Ferðabækur hafa alltaf verið vinsælar á íslandi, hvort heldur eftir innlenda eða erlenda menn Þó er vandséð, hvaða viðtökur bók eins og þessi fær. Ef til vill finnst einhverjum það vera að bera í bakkafullan lækinn, að þýða ferðasögu eftir Dana, sem almenningur á íslandi þekkir takamarkað. Hinsvegar mun þeim, sem lesa þessa bók, ekki leiðast á meðan á því stendur. Bókin er 235 síður, sett með stóru letri. Ásgeir Júlíusson hefur teiknað kápu, sem er ein- staklega léttileg og í góðu sam- ræmi við efni bókarinnar. Andrés Kristjánsson, ritstjóri hefur þýtt bókina á gott mál eins og honum er lagið. „Hinn fullkomni eiginmaður" heitir bók eftir danska húmor- istann Willy Breinholts, sem komin er út á vegum Bókaútgáf- unnar Fróða, í þýðingu Andrés- ar Kristjánssonar. f fyrra kom út svipuð bók eftir sama höfund; Vandinn að vera pabbi. Hún varð mjög vinsæl eins og raun- ar flest, sem Breinholts lætur frá sér fara. Hann er húmoristi í dönskum stíl, léttur og fyndinn án þess beinlínis að hæðast eða vera súr. Dönsk kímni er yfir- leitt ekki á kostnað náungans og þannig er um húmor Brein- holts. Heiti bókarinnar segir nokkuð um efnið: Það er aðstaða eigin- mannsins, þessarar mjög svo ó- fullkomnu veru — gagnvart ofur- eflinu, eiginkonunni. Mottóið fyrir fyrsta kafla er svohljóð- andi; „Hinn fullkomni eiginmaður verðóur að gæta þess að láta eig- inkonuna aldrei stinga uppí sig og ætíð svara hiklaust hverri spurningu, sem hún ber fram, og sýna þannig og sanna andlega yíirburði sína“. Alla bókina út í gegn er það brýnt fyrir eiginmönnum, hvern- ig þeir bezt geti sýnt yfirburði sína eða að minnsta kosti hald- ið velli gagnvart hinu veikara kyninu. Breinholts tekur það hinsvegar fram, að alfullkominn eiginmaður sé að sjálfsögðu ekki til. Hann biður menn minnast þess, að hjónabandið sé sam- skotabaukur, og í hann leggi eig- inkonan dyggð sína, ást og köku- uppskriftir, en karlmaðurinn að- eins frelsi sitt. Alla kafla bók- arinnar prýða bráðskemmtilegar teikningar eftir Léon. Bókin er 155 síður að stærð með kápu- teikningu af einum mjög svo aulalegum eiginmanni eftir Léon. „Palli og Pési“ heitir barnabók frá Fróða, sem nýlega er komin út. Höfundur hennar er Kári Tryggvason, kunnur barnabóka- höfundur af samtals þrettán barnabókum, sem hafa kom- ið út eftir hann síðan 1943. Bókin er 74 síður á stóru letri eins og vera ber um barnabók. Aðalpersónur eru þeir Palli og Pési, miklir vinir og ríkir pip- arsveinar. Þeir taka að sér tvö munaðarlaus systkin og sagan snýst um það. Kevnskörungurinn Sigga Síverts er líka þýðingar- mikil persóna. Þetta er hressi- lega skrifuð barnabók með hraðri atburðarás, sem líkleg er til að halda athygli barna vakandi. Ragnhildur Ólafsdóttir hefur gert fremur viðvaningslega kápu- mynd og teikningar í bókina. H. F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN Hafnnrfirói - Himur: 50082, 5002:1 otj 50.182. - Rcykjuvik - Sími 10.188 - Vcnturvei

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.