Vikan - 08.04.1965, Qupperneq 2
CORTINA VAR VALINN BÍLL ÁRSINS
1964 AF SVISSNESKA TÍMARITINU
AUTO UNIVERSUNI, ENDA SIGURVEGARI1
Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ AKSTURSKEPPNUM
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ CORTINA
ÁÐUR EN ÞÉR ÁKVEOIÐ KAUPIN
KR.KBISTJANSSON H.F.
0 M B 0 fl 10 SUDURLANDSBRAUT 2 ■ SÍMI 3 53 00
! í FULLRI ALVÖRU
ÞAGAÐ SEM FASTAST
Þjóð, sem vill halda uppi list-
menningu, verður einnig að
leggja það á sig að gagnrýna það
sem íram kemur á vettvangi list-
arinnar. Það er ekki aðeins nauð-
synlegt aðhaid fyrir listamsnn-
ina, hcldur leiðarljós fyrir al-
menning, sem jaínan er misfrcð-
ur um þaó völundarhús og á erf-
itt með að skapa sér skoðanir,
þegar nýjungar og breytingar
eru tíðar. Ö:1 violeitni í listum,
hvort heldur það er einsöngur,
frumsamið lag, leikrit á sviði
eða myndlistarsýning, verður
hálf vængbrotið fyrirtæki og
vandræðalegt, ef því er mætt
með þögninni einni. Hér stendur
ríkisútvarpið sig verst af öllum
eins og raunar við er að búast.
En að sjálfsögðu ætti listakrítik
að vera fastur liður í útvarpinu
vikulega, enda oftast nóg til að |
ræða um. Útvarpið ætti ekki síð-
ur en dagblöðin að flytja gagn-
rýni um alla meiri háttar upp-
færslu á leikhúsverkum. Á sama
hátt ættj það að vera skylda út-
varpsins að gagnrýna þá tónlist-
arviðburði og myndlistarsýning-
ar, sem einhvers virði þykja. Um
jólin er lesið upp úr nokkrum
jólabókum, en bókagagnrýni er
ekki til í útvarpinu. Því miður
er ekki grundvöliur fyrir efni af
þessu tagi í Vikunni, þar sem
blaðið er unnið sex vikur fram
í tímann. Dagblöðin aftur á móti,
sem hafa góða aðstöðu til að
halda uppi listagagnrýni, sinna
því sum, en misjafnlega. Öll hafa
þau fasta leiklistargagnrýnendur
á sínum snærum, enda munu þau
hafa komizt að raun um, að leik-
listargagnrýnin er mjög mikið
lesin. Þetta má teljast vel við-
undandi og menningarþjóð sæm-
andi, en þar með dettur líka batn-
inn úr öllu saman. Bókagagn-
rýni er svo lítil, að tiltölulega
fáar bækur komast að, en þeim
fáu bckum, sem skrifað er um,
eru þó gerð nokkuð ítarleg skil.
Tónlistargagnrýni er sögð lítil og
óáreiðanleg og jafnvel undir hæl-
inn lagt, að góðra viðburða sé
getið. Mvndlistargagnrýnin verð-
ur að teljast gersamlega í rnol-
um. A árunum uppúr aldamót-
uunm skrifuðu Bjarni frá Vogi
og fleiri velunnarar myndlistar
um hverja sýningu og það var
mikið rifizt um þær. Nú eru þær
að vísu vel sóttar yfirleitt og mál-
verk seljast drjúgum á sýning-
um, en gagnrýnendur keppast
um að halda kjafti, ef þeir eru
þá til. Aðeins flytur Morgunblað-
ið nokkurn vegin að staðaldri
Framhald á bls. 20.