Vikan - 08.04.1965, Qupperneq 19
Þokan kostar hafnar- og f.ugféiög miljónir. Nú er róðizt á hana meS gasi.
©SiSi@ vinraup á
þokunni
Þokan er orðin mjög algeng yfir Norður-Evrópu, og veldur veðurfræð-
ingum miklum óhyggjum, vegna þess að þeir eru í raun og veru mótt-
vana gagnvart þessu náttúruvandamáli.
Vegna þess að þokan hefur þann eiginleika að koma skyndilega og
hverfa aftur jafn fljótt, hefur vísindamönnum reynzt erfitt að rannsaka
hana, eða segja fyrir um þokumyndun. Venjulegast er ómögulegt að
spá um það hvort þoka verði eða ekki. Veðurfræðingar geta aðeins
sagt að það „sé hætta á þokumyndun."
Þokuvísindi eru í rauninni gamalkunn heilabrot. í Þýzkalandi hafa
menn t.d. skýrslur um þokumyndun á vissum svæðum allt frá 1888. Vegna
þess að þokan er svipuð og vefur af fíngerðum vatnsdropum, er erfitt
að vinna á henni. Vísindamenn hafa náð allgóðum árangri. Þeir geta
nú valið milli mismunandi aðferða til að eyða þoku, hvort sem er með
kemiskum eða vélrænum aðferðum, en vegna þess hve allar þessar að-
ferðir eru kostnaðarsamar, er ekki hægt að nota þær í venjulegum tilfell-
um. Hafnar- og flugvallarstjórnir hafa mikinn áhuga fyrir þessum rann-
sóknum. Þegar flugvöllur er lokaður vegna þoku, er það ekki aðeins
slæmt vegna farþeganna, heldur kostar það flugfélögin mikla fjármuni
að breyta áætlun véla sinna og beina þeim annað. Á mörgum flugvöll-
um í Evrópu nota menn þá aðferð að sprauta eldfimum vökva á braut-
irnar og kveikja siðan í. Eldurinn hitar upp þokuna og þurrkar hana upp,
svo að hún hverfur.
Síðasta aðferðin er sú, að kældu propanigasi er sprautað yfir braut-
irnar, en það kælir loftið svo þokan fellur til jarðar sem snjór. Með slík-
um tilraunum hefur mönnum tekizt að auka skyggnið úr 90 til 700 metra
á nokkrum mínútum. Ef hægt er með þessu móti að ná niður flug-
vélum, sem annars hefðu þurft að fara eitthvað annað, mundi þessi að-
ferð borga sig.
Þau sér barn
fyrir 4000 kr.
Þetta er herra bóndi Guiseppe
Noviello og kona hans, Immacolata.
Þau búa einhversstaðar [ því frjó-
sama héraði umhverfis Napolí og
gekk lífsbaráttan þolanlega hjá
þeim að öðru leyti en þvl, að þeim
varð ekki barna auðið. Svo þau
keyptu sér barn; dreng, sem heit-
ir Dominico. Þau hittu mömmu hans
í Napolí. Hún er 38 ára gömul og
átti tvö önnur börn, svo henni fannst
að hún gæti komizt af án Domen-
icos litla og hana vanhagaði auk
þess um peninga. En svo komst
allt upp og lögreglan blandaði sér
í málið. Það er nefnilega ólöglegt
að selja börn á Ítalíu. Frú Teresa
Marzano var sett í gæzlufangelsi
og bíður eftir því að réttarhöld fari
fram, en mjög er óvíst, hvað verð-
ur um Domenico litla.
GOLDFINGER GOLDFINGER GOLDFINGER
GOLDFINGER GOLDFINGER GOLDFINGER
Af öllum einstökum andstæðingum James Bond er Goldfinger —
Auric (sem þýðir gull) Goldfinger (sem þýðir gullfingur), sá harð-
snúnasti. Sumir segja allt.af Gullfingur. Eh þar sem þetta er nafn
mannsins, dettur okkur ekki í hug að þýða það. Enda væri það
fásinna.
GOLDFINGER segir:
Einu sinni er hending. Tvisvar er tilviljun. En þrisvar er af óvina-
völdum.
JAMES BOND
rakst fyrst á hann í Miami, þar sem hann græddi gull á því að
spila kanasta. Það var hending. Næst bar fundum þeirra saman
í Bretlandi. Það var tilviljun. Loks fundust þeir á meginlandinu.
Þá voru þeir yfirlýstir óvinir.
GOLDFINGER
hafði óvenjulega skipulagshæfileika. ,Og hann treysti engum
nema sjálfum sér. Afturámóti vantaði hann skarpan aðstoðar-
mann, sem væri nógu fljótur að hugsa. Og slíkan mann fann
hann í James Bond.
GOLDFINGER
Spilið var djarft. Báðir lögðu mikið undir.
JAMES BOND
þaulhugsaði sitt og tefldi á tvær hættur — enda gat hann ekki
annað gert.
GOLDFINGER
eftir lan Flemming hefst í næsta blaði.
Einkaréttur á íslandi: VIKAN. i
JAMES BOND JAMES BOND JAMES BOND
JAMES BOND JAMES BOND JAMES BOND
Við byrjuðum á Dr. No. Síðan var það Með Ástarkveðju frá
Rússlandi. Nú er það
VIKAN 14. tbl. jg