Vikan - 08.04.1965, Blaðsíða 21
inn á annan endann á spýtunni, og þá
er tilgangslaust fyrir mig eöa þig að
setja hann á „hinn“ endann. AS visu er
eldspýtnapatentið útrunnið fyrir löngu
en þetta er samt lögmálið, sem gildir.
Ef íslendingur ætlar að sækja um einka-
leyfi fyrir uppfinningu, þá þarf liann að
hafa samband við Iðnaðarmálaráðuneyt-
ið, sem sér um þetta smáræði fyrir hann.
Og það fyrsta, sem þarf að gera er að
rannsaka nákvæmlega hvort nokkur ann-
ar hefur orðið á undan til að finna hlut-
inn upp. Segjum t.d. að þú finnir upp
sjálflýsandi skráargat. Þá verður þú að
byrja á því að senda bréf til ráðuneyt-
isins, lýsa nákvæmlega skráargatinu og
öllum útbúnaði i sambandi við það, fá
góðan teiknara til að teikna gatið og allt
lýsingardótið, skrifa gagnorða og stutt-
orða lýsingu á þvi hvað það er i raun
og veru, sem þú þykist hafa fundið upp.
Það er t.d. allsendis tilgangslaust fyrir
þig að segja að þú liafir fundið upp skrá-
argatið. Þú hefur heldur ekki fundið upp
rafmagnið, eða hvað það nú er sem þú
ætlar að nota til að lýsa upp gatið. Held-
ur ekki peruna. En kannske þú álitir að
„Hrinsbulluvél“. Útskýringar eru nokkuð flóknar, en aðalatriðið mun vera það, að bullan snýst í eilífum
hringjum inni í strokknum — sem auðvitað er hringlaga — og snýr þannig hreyfiásnum. Einkaleyfi var ekki
veitt.
L________________________________________________________________________________________________________________/
Teikning með umsókn um einkaleyfi fyrir „Utbúnað á
flöskutappa“. Hugvitsmaðurinn hugsar sér að vír gangi
í gegn um tappann. Neðst er vírnum fest í nokkurskonar
tölu, sem liggur að tappanum neðanverðum, en ofan á tapp-
anum er vírlykkja, sem á að toga í til að losa tappann.
Einkaleyfi var ekki veitt.
eins vel kalla það einkarétt á notkun uppfinningarinn-
ar í vissan tíma.
En það er ekki allt þar með sagt. Það er ekki gert
á nokkrum augnablikum að veita slíkt leyfi, vegna þess
að stofnunin verður auðvitað um leið að sjá um að
einkaleyfin liljóti þá vernd, sem nauðsynlegt er, þ.e.a.s.
að hvert það einkaleyfi, sem veitt er, fari ekki inn á
svið éða skerði önnur einkaleyfi, sem áður liafa verið
cefin. Það er t.d. alveg þýðingarlaust fyrir uppfinn-
ingamann að „finna upp“ eldspýtu, sem hefur brenni-
steininn á hinum endanum á spýtunni „vegna þess að
maður byrjar alltaf á vitlausum enda“ eins og maður-
inn sagði. Slíkt mundi ekki verða talið til hagnýtra
uppfinninga, að maðurinn sem fann upp eldspýtuna
fyrstur, hefur þegar hlotið rétt til að setja brennistein-
þú hafir verið fyrstur til að finna upp
útbúnaðinn i sambandi við þetta, fyrir-
komulagið eða eitthvað mekanískt aðal-
atriði í skránni.
Þessu aðalatriði í uppfinningunni verð-
ur þú að lýsa mjög nákvæmlega, svo eng-
inn geti flækt það inn i'önnur atriði eða
vefengt hvað þú átt við. Það dugir ekki
að segja: „Ég hef hugsað mér að hafa
útbúnað inni í skránni, sem lýsir upp
gatið ef einhver kemur nær þvi en 10
metra.“ Nei, þú verður að segja: „Fótó-
sellu er komið fyrir við dyrnar. Ef ein-
hver kemur nær dyrunum en 10 metra,
þá kveikir fótósellan rafljósið, sem kom-
ið er fyrir innan i skránni skv-
teikningunni, og lýsir upp gatið.
Krafa mín er sú, að fyrirkomulag
ljósaútbúnaðarins inni i skránni
verði tekið gilt sem uppfinning
mín, og mér veitt einkaleyfi á því.“
Nú veit ráðuneytið auðvitað eklc-
ert um það, hvort einhver annar
hefur fundið þetta upp á undan
þér eða ekki. Það gæti vel verið
að einhver arabískur þrælasali hafi
fundið upp sem læsingu fyrir
kvennabúrið sitt fyrir 14 árum,
og hafi fengið einkaleyfi á þvi í
17 löndum. Og þá er auðvitað fyrst
að rannsaka það. Hér á landi eru
engar uplýsingar til um slíka hluti,
og þessvegna hefur ráðuneytið sam-
vinnu við dönsku einkaleyfastofn-
unina, sem leitar að þessu og gefur
siðan skýrslu hingað. Danska stofn-
unin hefur skrá yfir öll einkaleyfi,
sem veitt hafa verið á Norðurlönd-
unum, í Englandi, .Bandaríkjunum
Þýzkalandi og viðar.
Setjum nú svo að ekki takist að
finna neitt einkaleyfi, sem likist
þessu. Þá fær ráðuneytið hér
skýrslu um það, og þá er aðeins
eftir að vita livort ráðuneytið telur
rétt og eðlilegt að veita þér einka-
leyfið. Þá eru mörg atriði, sem
koma til athugunar. Uppfinningin
þarf að hafa hagnýta þýðingu til að
byrja með. Það er að segja, að ráðu-
neytið þarf að vera sannfært um að
sjálflýsandi skrá sé í raun og veru
nauðsynleg, og mundi koma mörg-
um bóndanum að gagni þegar hann
kemur döggvaður heim að kvöldi
til. í öðru lagi þarf ráðuneytið að
sannfæra sjálft sig um það, að þetta
sé í raun og veru uppfinning, en
ekki bara eitthvað píp Ef þú ætlar
að setja venjulegt vasaljós fyrir
innan skrána, og láta fótóselluna
lcveikja á því — þá er það engin
uppfinning. Bara nýtt fyrirkomulag
á þekktum hlutum. Eitt atriði enn,
sem taka þarf til athugunar. Þú
mátt ekki liafa sýnt uppfinninguna
opinberlega áður en þú sóttir um
einkaleyfið. Ef þú hefðir t.d. sett
hana á dyrnar á Ilótel Borg og aug-
lýst í blöðunum að þarna gætu allir
séð hve sniðugur þú værir, þá
mundir þú ekki fá einkaleyfi.
Ástæðan er einfaldlega sú, að ef
uppfinningin hefur verið opinber-
lega til sýnis, þá getur hið háa
ráðuneyti alls ekki verið 100%
visst um að þú sért liinn raunveru-
legi uppfinningamaður. Þú gætir
allt eins vel hafa verið sýningar-
gestur, en bara séð möguleikann
og orðið fljótari til að sækja um
leyfið. Þetta er líka liður i vernd-
inni, og þetta er ein ástæðan fyrir
neitun um einkaleyfi hér á landi.
Mcnn þurfa endilega að sýna öllum
uppfinninguna fyrst og safna gull-
Framhald á bls. 30.
VIKAN 14. tbi.