Vikan - 08.04.1965, Page 22
HÚS OG HÚSBÚNAÐUR
GAMALT 06 HÝTT
Heimurinn, mannlífið, tízkan, — allt snýst í hring og
leitar þess sem fró var horfið eins og maður sem
villist og uppgötvar að hann er kominn í hring og
aftur staddur ó þeim stað, sem hann byrjaði ferðina.
Hýbýli manna taka stöðugum breytingum, en ekkert í
innréttingum og húsbúnaði hefur staðið af sér allar
breytingar. Svo þegar liðin eru tíu eða tuttugu eða
jafnvel fimmtíu ór, þó líta menn um öxl og sjá, að
það sem var gott í tíð feðra þeirra eða hjá afa og
ömmu, er reyndar býsna gott ennþá. Þá er það gamla
dregið fram í dagsljósið að nýju og stundum kemur
---------------------------------------N
Það er vafasamt, að nokkur nútíma hýbýli geti
orðið öllu heimilislegri og öllu meira sjarmer-
andi en þessi enska stofa, sem mun vera frá
aldamótunum síðustu. Raunar er hér um að ræða
bókaherbergi og stofu í senn. Trégólf og hand-
unnin motta á því. Eik í skápunum og á veggj-
unum að öðru leyti. Stólar með renndum fót-
um og ofnum setum. Eikarskápur með hillum
upp við vegginn.
í Ijós, að bókaskápur í gömlum stíl, veggklukka eða
borð með renndum fótum, fer prýðilega með allra
nýjustu húsgögnunum. Og meir en það: Gömlu mun-
irnir eða nýir munir í gömlum stíl gefa heimilinu ein-
hverskonar rótgróinn festusvip, sem því miður vant-
ar oftast, að minnsta kosti hjá yngra fólki.
Hér á íslandi er raunar til lítils að hverfa, hvað
gamla tímann áhrærir. í bændaþjóðfélaginu, sem leið
undir lok á þessari öld, var húsbúnaðurinn í ætt við
húsakynnin; gert af vanefnum úr lélegum efnum og
með lélegum verkfærum. Enda eigum við nálega
engan íslenzkan arf í þessu efni. Föstu rúmin í bað-
stofunum voru hægindi um leið og um húsgögn eftir
okkar mælikvarða var ekki að ræða. Að vísu eru til
gamlir íslenzkir munir, skápar og skatthol og kann-
ske einstaka stóll frá embættis- eða ríkismannaheim-
ilum, en flestallt mun það danskættað. Af íslenzkum
uppruna eru hinsvegar kistur og kistlar, sumt járn-
slegið eða jafnvel útskorið og hinir merkustu gripir
en fáséð nú orðið.
A þessu er mikill og tilfinnanlegur munur, borið
saman við grannþjóðir okkar, sem eiga aldagamlar
byggingar og meira að segja urmul af dýrindis hús-
gögnum frá fyrri öldum, sem eru eftirsótt enn í dag.
í þetta sinn bregðum við upp myndum af nýtízku hús-
gögnum og myndum frá enskum heimilum frá öld-
inni sem leið.
r~--------------------------------------------------------- ------
Stofa úr gömlu, amerísku húsi frá öldinni sem leið, hugsuð sem íverustaður fyrir alla
fjölskylduna. Bjálkar í loftinu, skatthol við vegginn, arinn með keramikflísum, ævagömul
klukka, borð með skúffum og renndum fótum, sömuleiðis þrjú smærri borð, trégólf og
nokkur lítil gólfteppi.
22 VIKAN 14. tbl.