Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 08.04.1965, Qupperneq 22

Vikan - 08.04.1965, Qupperneq 22
HÚS OG HÚSBÚNAÐUR GAMALT 06 HÝTT Heimurinn, mannlífið, tízkan, — allt snýst í hring og leitar þess sem fró var horfið eins og maður sem villist og uppgötvar að hann er kominn í hring og aftur staddur ó þeim stað, sem hann byrjaði ferðina. Hýbýli manna taka stöðugum breytingum, en ekkert í innréttingum og húsbúnaði hefur staðið af sér allar breytingar. Svo þegar liðin eru tíu eða tuttugu eða jafnvel fimmtíu ór, þó líta menn um öxl og sjá, að það sem var gott í tíð feðra þeirra eða hjá afa og ömmu, er reyndar býsna gott ennþá. Þá er það gamla dregið fram í dagsljósið að nýju og stundum kemur ---------------------------------------N Það er vafasamt, að nokkur nútíma hýbýli geti orðið öllu heimilislegri og öllu meira sjarmer- andi en þessi enska stofa, sem mun vera frá aldamótunum síðustu. Raunar er hér um að ræða bókaherbergi og stofu í senn. Trégólf og hand- unnin motta á því. Eik í skápunum og á veggj- unum að öðru leyti. Stólar með renndum fót- um og ofnum setum. Eikarskápur með hillum upp við vegginn. í Ijós, að bókaskápur í gömlum stíl, veggklukka eða borð með renndum fótum, fer prýðilega með allra nýjustu húsgögnunum. Og meir en það: Gömlu mun- irnir eða nýir munir í gömlum stíl gefa heimilinu ein- hverskonar rótgróinn festusvip, sem því miður vant- ar oftast, að minnsta kosti hjá yngra fólki. Hér á íslandi er raunar til lítils að hverfa, hvað gamla tímann áhrærir. í bændaþjóðfélaginu, sem leið undir lok á þessari öld, var húsbúnaðurinn í ætt við húsakynnin; gert af vanefnum úr lélegum efnum og með lélegum verkfærum. Enda eigum við nálega engan íslenzkan arf í þessu efni. Föstu rúmin í bað- stofunum voru hægindi um leið og um húsgögn eftir okkar mælikvarða var ekki að ræða. Að vísu eru til gamlir íslenzkir munir, skápar og skatthol og kann- ske einstaka stóll frá embættis- eða ríkismannaheim- ilum, en flestallt mun það danskættað. Af íslenzkum uppruna eru hinsvegar kistur og kistlar, sumt járn- slegið eða jafnvel útskorið og hinir merkustu gripir en fáséð nú orðið. A þessu er mikill og tilfinnanlegur munur, borið saman við grannþjóðir okkar, sem eiga aldagamlar byggingar og meira að segja urmul af dýrindis hús- gögnum frá fyrri öldum, sem eru eftirsótt enn í dag. í þetta sinn bregðum við upp myndum af nýtízku hús- gögnum og myndum frá enskum heimilum frá öld- inni sem leið. r~--------------------------------------------------------- ------ Stofa úr gömlu, amerísku húsi frá öldinni sem leið, hugsuð sem íverustaður fyrir alla fjölskylduna. Bjálkar í loftinu, skatthol við vegginn, arinn með keramikflísum, ævagömul klukka, borð með skúffum og renndum fótum, sömuleiðis þrjú smærri borð, trégólf og nokkur lítil gólfteppi. 22 VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.