Vikan

Tölublað

Vikan - 21.04.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 21.04.1965, Blaðsíða 32
1001, eidhúsrúllan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur við dagleg störf. ELDHÚS RÚLLAN ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú færð nýstárlega hugmynd í sambandi við ferða- lag sem þú og kunningi þinn standa fyrir. Þú lendir í deilum við einn bezta vin þinn og skalt þú vera fyrri til að bjóða sættir. Happalitur er blátt Happa- tala 7. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þetta verð.ur dálítið óvenjuleg vika einkum hvað . ^ allt félagslíf snertir. Þú munt fara í skemmtilegt x&ÆEF samkvæmi, þar sem hlutirnir koma þér spánskt fyrir, að ýmsu leyti. í vikulokin færðu skemmti- lega hugmynd. Tvíburamsrkið (22. maí — 21. júní): Vinur þinn gerir þár ómetanlegan greiða í vikunni, ekki er samt víst að þú kunnir að meta gerðir hans í bili. Mánudagurinn verður á allt annan veg en þú hafðir búizt við. Taktu ekki of nærri þér rógburð um vin þinn. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Verk sem þú hefur unnið undanfarið verður nú loks að raunveruleika. Þú verður ekki allskostar ánægöur með allar niðurstöðurnar sem stafar af því að áhugi þinn hefur ekki verið óskiptur með öllu. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú færð áhuga á nýjum verkefnum. Líklega verð- ur gamall kunningi þinn til að vekja hann. Leggðu ekki út í neina tvísýnu þar sem peningar eru annars- vegar. Rcyndu að skemmta þér undir berum himni. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þetta verður nokkuð rómantísk vika. Þú færð að heyra eitthvað sem kemur þér mjög á óvænt og fromur illa. Haltu samt þínu striki og láttu þetta ekki hafa áhrif á þig. Litur vikunnar er grænn. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur átt mjög annríkt, en upp úr þessu get- urðu farið að draga andann léttar. Þú skalt reyna að nota frístundirnar eins og þig hefur svo lengi langað til. Mánudagurinn er talsvert þýðingarmikill. Dreltamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú skalt ekki gera neitt sem þér fellur ekki sjálf- um frá siðferðislegu sjónarmiði, þrátt fyrir öll ut- ankomandi áhrif. Hæfileikar þínir, á vissu sviði fá tækifæri til að njóta sín. Heillatala er sex. Heilla- litur grænn. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Dagarnir eru nokkuð langir og erfiðir en þú getur glatt þig við að þetta tímabil styttist óðum. Þú verður fyrir aðkasti fólks sem þú þekkir lítið. Föstudagurinn er bezti dagur vikunnar ekki hvað síst fyrir kvenfólk. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Hlutirnir taka allt aðra stefnu en þú og félagar þínir hafið hugsað ykkur. Þú vanrækir unga per- sónu í fjölskyldunni sem þú mjög nýlega hefur valdið vonbrigðum. Helgin verður nokkuð tilbreyt- ingarlaus. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þér hættir til að lofa upp í ermina þína, mundu að það er betra að segja hreint nei, heldur en draga fólk á hlutunum. Það er einhver lausung og upp- gjöf í gerðum þínum, en það styttist 1 að þú fáir svar við spurningum þínum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ættir að gera upp sakirnar við gamlan félaga þinn og hætta að hugsa um liðna tíð. Reyndu að hafa áhrif á yfirboðara þinn og sýndu honum á kurteisan máta að þú sért hugsandi vera með sjálf- stæða dómgreind. VIKAN 16. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.