Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 29.04.1965, Qupperneq 2

Vikan - 29.04.1965, Qupperneq 2
• • • Hvort sem þér eignist lítinn eða stóran bíl — dýran eða ódýran FORD til Einkaafnota FORD tii Leiguakstuis FORD til Sendiferða FORD til Þungaflutninga ZEPHYR, LEIGUBÍ LAAKKSTUR CORTINA CORSAIR FALCON - COMET - FAIRLANE TAUNUS 12M TRANSIT SENDIFERDABÍLL ‘-©U-l-©-' TAUNUS 17M & 20M 3. — 4. — 5 og 7 TONNA SVEINN EGILSSON H.F. UMBOÐIÐ LAUGAVEG105 - SÍMI22470 ! í FULLRI OLVÖRU Allt fyrir öryggið Nú eru þeir hjá bifreiðaeftir- litinu farnir að skoða bílana þetta árið og það er alveg ljóm- andi gott. Þeir ganga vel fram í því að mæla lengd, breidd og hæð drullusokkanna sem hækka tryggingaiðgjöldin vegna síauk- inna rúðubrota og annarra stein- kastsskemmda á bílum sem mast- ast, og eru raunar alltaf að finna upp ný og ný atriði sem geta * orðið manni til öryggis og hags- bóta. Eitt þeirra er að rýja bílana öllu hættulegu dóti. Spjót framan á bílum geta verið hættuleg, ef til árekstra kemur. Sama er að segja um ýmiskonar hnúða og annað dót. Speglar á frambrettum eru voðalegir, ef til árekstra kemur. Auk þess geta allir séð fyrir sér afleiðingarnar, ef slíkur spegill krækist í jakka um leið og látið er spóla á mal- biki. Sjálfsagt að rífa þetta af- Sama er að segja um allskonar hringi og þessháttar fínirí. Auk þess eru bílarnir bara fallegri, eftir því sem þeir eru látlausari, og það er ekki nauðsynlegt að hafa krómhringi utan um götin til þess að þau séu til yndisauka. Alveg nóg að hafa bara gömul göt eftir skrúfur. En mér finnst þeim hafa ýfir- sézt. Það hlýtur að vera miklu sárara að fá högg af stuðara en af vatnskassahlíf. Sem sagt: Klippið stuðarana af líka. Sömu- leiðis er stórhætta á, að útvarps- stöngin geti vafizt um háls mönn- um í óhappatilfellum og hengt þá. Útvarpsstöngina af. Nippill- inn fyrir rúðupissið getur rekizt upp í menn við árekstur og drekkt þeim. Af með rúðupissið. Hurðarhúnarnir geta krækzt í vegfarendur með válegum afleið- ingum. Af með þá. Margir hafa stórslasað sig á stýrishjólunum við árekstur. Burt með þau. Og síðast en ekki sízt: Það er áreið- anlega mjög sárt að fá hjól yfir * sig ef maður verður undir bíl- Þess vegna legg ég til, að fyrir næstu skoðun verði samþykkt að enginn bíll fái skoðun, nema hjólin séu tryggilega skrúfuð undan honum. Svo getum við bara sett 1000 prósent skatt á bilabónið og haldið áfram að leggja hest- vagnavegi og reiðgötur. S.H. 2 VIKAN 17. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.