Vikan

Tölublað

Vikan - 29.04.1965, Blaðsíða 5

Vikan - 29.04.1965, Blaðsíða 5
leyti finnst mér óviðkunnanlegt að segja börnunum, að þau fari bara beint í gröfina, ef þau deyi. Hvort er rétt? Með kærri kveðju og fyrirfram þakklæti, Fjóla. Grunur þinn er á rökum reist- ur, Fjóla. Það er ekki einungis óviðkunnanlegt að segja börnum að þau fari bara beint í gröfina og þar með punktur og basta, heldur beinlínis hættulegt fyrir andlega lieilsu þeirra. Það er sama hvort þú trúir sjálf eða ekki, þú mátt ekki svipta þau barnatrúnni. Hvort hún er blekk- ing eða ekki, skiptir ekki máli, hún er nauðsyn. Yinkona þin er grunnhyggin í meira lagi. Það gerist aldrei neitt slíkt, að barna- trúin hrynji eins og spilaborg og eftir standi unglingurinn ráð- þrota með tilgangsleysi lifsins eitt uppá vasann. Aðrar trúar- skoðanir kunna að leysa barna- trúnna af hólmi, en það gerist á löngum tíma jafnframt aldri og þroska og þá er barniö komið yfir það viðkvæma skeið, þegar þvi er beinlínis nauðsyn að hafa fullvissu um guð og himnariki. Kenndu barninu þinu að biðja bænirnar sinar og segöu því sög- ur af Jesúbarninu eins og góð ar mæður liafa gert í ótaldar kyn- slóðir. HVERS Á ÉG AÐ GJALDA? Kæri Póstur! Mér hefur alltaf þótt leiðinlegt að lesa og skrifa skammabréf, en nú get ég ekki orða bund- izt. Um daginn fór ég inn í sjopp- una í... og keypti mér kók og sígarettu, eins og ég hef oft gert þarna áður. Þegar ég hef nýkveikt í rettunni, fræðir af- greiðslustúlkan mig á því að það megi ekki reykja þarna. Ég tek það fram að u.þ.b. tíu krakkar á aldri við mig, 16 ára, reyktu þarna). Ég hélt áfram með síga- rettuna, hélt að frökenin væri að gera að gamni sínu. Þá vippaði kerlingarboran sér fram, fyrir borð, og sagði að annað hvort dræpi ég í sígarettunni eða færi út. Ég tók auðvitað seinni kost- inn. Nú spyr ég: Er leyfilegt að selja sígarettur í lausu, stilla öskubökkum um allt, og banna manni svo að reykja. Ég veit um marga sem hafa svipaða sögu að segja af þessari búllu. Yarla býzt afgreiðslustúlkan við því að aldr- að fólk hangi þarna við reyk- ingar. Ein spæld. Hvenær ætlið þið að láta hann Baltasar teikna John Lennon, George Harrison og Paul Mac- artney á forsíðuna? Sú sama. Þar sem þú nefnir ekki hvar þetta er, þá er erfitt fyrir Yik- una að spyrjast fyrir. Líkiegasta skýringin er sú, að sjoppufólkið kæri sig ekki um að hafa sex- tán ára unglinga reykjandi þar inni, enda þótt það láti ekki hjá líða að selja þeim stakar siga- rettur. Bezt væri ef það vildi taka fyrir hvorttveggja. Og hvað siðari spurningunni viðvíkur, þá þykir okkur alveg nóg að hafa birt forsíðumynd af Ringó. ÞAÐ Á AÐ NEYÐA HANA í HERINN. Póstinum hefur borizt bréf frá örvæntingarfullri, ungri stúlku, í kaupstað úti á landi, sem segir sínar farir ekki sléttar. Hún spyr, hvort hægt sé að neyða sig 15 ára gamla stúlku, til að ganga í sértrúarflokk. Foreldrarnir eru í Hjálpræðishernum þar í pláss- inu og nú stendur til að stúlkan verði sett í Herinn og það er á bréfinu að skilja, að hún eigi að vinna þar einhver ósköp kaup- laust. Hún spyr, hvort hún geti leitað tii hins opinbera í þessu máli og hvort hún geti þá ekki kvatt kóng og prest, þegar hún verður 16 ára. Hana dreymir um að verða flugfreyja og fara i skóla, en nú stendur til að láta hana þess í stað feta hinn þrönga, en dyggðum prýdda stíg Hjálp- ræðishersins. Vikan sneri sér til Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins með úr- skurð í þessu máli. Ráðuncytið taldi, að jafnvcl þótt stúlkan hefði ekki náð 16 ára aldri, hefðu foreidrarnir ekki vald til að beita siíkum þvingunum. Ef þeir hinsvegar væru á annarri skoðun, þá getur stúlkan snúið sér til yfirvalda þar á staðnum og þau mundu koma í veg fyrir, að þess- ari þvingunarráðstöfun yrði framfylgt. JANUS HELANCA STRETSCH- BUXUR HÝJASTA TÍZKA Framleiðandi: L. H. MULLER - FATAGERÐ Langholtsveg 82. fillskonar Karlmanna- fatnaður EINUNGIS ÚRVALSVÖRUR. Vesturveri og Lækjartorgi. VIKAN 17. tbl. g

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.