Vikan

Eksemplar

Vikan - 29.04.1965, Side 9

Vikan - 29.04.1965, Side 9
Árni Tryggva- son leikari Það var um páskana árið 1947, að ég hugðist gista þrjár nætur hjá skyldfólki minu i Reykjavik, og þar fékk ég að lúra í harmo- nikkubedda á miðju gólfi i stofu, þar sem auk min sváfu þrjú börn og gamall maður. Ég kom þangað laugardaginn fyrir páska og við fórum frem- ur seint að hátta; klukkan var rúmlega eitt um nóttina. Svo finnst mér, að ég hafi rétt verið búinn að festa blundinn, þegar ég hrökk upp við það að í kring um mig hófst þessi voðalegi darradans, svo allt ætlaði um koll að keyra. Iielzt fannst mér þetta vera hörkuslagsmál, og þetta barst allt í kring um bedd- ann minn. Mér kom ekki blundur á brá alla nóttina fyrir þessum ósköpum fyrr en einhverntíma milli fimm og sex um morgun- inn, heldur lá þarna eins glað- vakandi og nokkur maður get- ur verið. Hin sváfu öll, en þó fannst mér þau verða eitthvað vör við þetta líka, því þau uml- uðu og byltu sér í svefninum. Um morguninn þorði ég ekki að segja uokkrurn manni frá þessu, þri ég bjóst við að verða álitinn bilaður. Ég hugsaði með mér, að þetta væri bara ein- hver vitleysa, taugaslappleiki eða eitthvað þess liáttar; maður var oft þreytt.ur á þessum árum; ég var tiltölulega nýbyrjoður að leika og vann með því fulla vinnu. Svo ég hristi þetta af mér og reyndi að gleyma því. En næstu nótt á eftir fór allt á sömu léíð. Ég var varla fyrr sofnaður en ég glaðvaknaði við þessi læti og þau stóðu fram nndir morgun. En eftir þessa nótt fann ég, að ég gat ekki sofið þarna inni lengur, svo ég sagði við hús- móðúrina, að liarna gæti ég eki sofið: annað hvort væri ég eitthvað bilaður siálfur eða eitt- hvað væri bilað í krinffum mig, þvi ég gæti ekki sofið i þessu herbergi. Hún sagði að þetta væri tóm vitleysa í mér, og barna væri ekkert óhreint. svo hún vissi tii að minnsta kosti. Éit sagði að liað væri nú sama. I þesu herberei svæfi és ekki. Ef ég ælti að reyna að vera eina nótt enn í þessu húsi, yrði ég bá inni hjá þeim lijón- unum. Oð það varð úr, að ég dró beddrn minn inn i hjóna- herbergið um kvöldið og þar svaf ég um nóttina — eins og steinn — og varð einskis var framar í þessu húsi. Nokkrum árum seinna, þegar þegar hjónin voru fhitt, harst þetta einhverntíma til tals, og þá sagði konan, að hún hefði aldrei kunnað við sig i því, aldrei liðið vel þar. Skýringu hef ég aldrei fcngið á þessu fyrirbæri, og rétt er að hafa það hugfast, að ég sá aldrei néitt. Aðeins fann. Og þessu fylgdi einhver ónotakennd, ein- hver vanlíðan. Ég lief ekki kynnt mér dulræn mál neitt sem heit- ið getur, en mér er sagt, að vondar hugsánir fólks geti orðið staðbundnar og haft ill áhrif, og það þurfi ekki til, að fólkið sé dáið. En mörgum árum áður en þetta var, bjuggu í þessari íbúð hjón, sem misstu barn sitt á vofeiflegan hátt. Og sagan segir, að eftir það hafi þau ekki setið á sárs höfði, því hann kenndi henni um, að lnin hefði ekki gætt barnsins nógu vel, og í þessari stofu voru næstum eilif slagsmál. Hvort þessi hjón voru lifs eða liðin, þegar gauragangurinn hélt fyrir mér vöku á páskunum 1947, veit ég ckki, og það skipt- ir ekki máli. B|5m Pálsson alþingismaðut* Það var eitt sinn á Hólum að ég varð var við högg, sem ég vissi ekki, hvernig stóð á. Ég var þá 10 ára gamall. Við vorum með borðdans. Við höfð- um miðla þarna. Það var sér- staklega ein stúlka. Hún féll í trans og sagði okkur fyrir um hluti, sem komu farm siðar. Við sváfum fimm strákar i herbergi uppi á efsta lofti, sem hét Valhoíl. f hliðarherbergi þar var fullt af húsgögnum. Stólar, borð og fleira. Þegar kom fram á veturinn fórum við að heyra högg í hliðarherberginu. Við athuguðum hvað eftir annað, hvort þetta gæti ekki verið mað- ur. Við gengum alveg úr slcugga um, að svo var ekki. Það var liljóðbært og ógerlegt að fara um ganginn án þess að við yrðum þess varir. Enda fórum við oft þegar í stað, er höggin heyrð- ust, en sáum aldrei neitt. Svo var það nótt eina að sum- ir okkar vöktu. Lítil högg heyrð- ust öðru hvoru. Við ræddum um hvað þetta gæti verið. Sigurður frá Kimbastöðum í Skagafirði svaf við þilið sem sneri að ganginum og þeim megin við dyrnar sem fjær var. Ilann vakn- aði þegar við vorum að tala um hvað þetta gæti verið og fór að hlægja og skrikja að vitleys- unni i okkur. Þá voru barin þrjú stór högg í þilið við rúm hans, miklu meri liögg en við höfðum áður heyrt. Sigurður hætti að hlæja og sagði: „Eitthvað er þetta nú.“ í gegnum miðil var okkur sagt, að þetta væri framliðinn mnður, sem eltki liði vel. Við vorum að fikta við að láta borð svara okkur með höggum. Einu sinni kom þar aö strákur, sem ég vil ekki segja nafn á. Hann studdi gómunum á borðið. Sagði að þetta væri allt tóm lýgi og vitleysa. Manaði" hann með ljótum orðum þann sem í borð- inu væri að sýna hvað hann gæti. Drengurinn hætti að ráða við handlegginn á sér en borð- ið fór upp undir loft. Ég varð að lialda við handlegginn á Iion- um þar til spennan minkaði. Oft dreymir mig fyrir því, sem siðar kemur fram, en það tel ég frekar hægt að slcilja og skýra. Það eru tiltölulega fá ár síðan mig fór að dreyma drauma, sem ég mundi og rætt- ust. Ég trúði ekki á drauma. Hélt að þeir væru vitleysa. Mér hafa verið sögð fyrir í draumi úrslit allra þingkosninga sem ég lief tekið þátt í. Ef það er eitt- hvað, sem varðar mig miklu, dreymir mig vanalega fyrir því. Er oft sagt það með berum orð- um. Ég man marga drauma en vil ekki segja þá. Þctta verður að nægja.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.