Vikan

Eksemplar

Vikan - 29.04.1965, Side 24

Vikan - 29.04.1965, Side 24
Íhópi hinna yngri listamanna okkar eru mjög fáir, sem algerlega hafa gengið listagyðjunni á hönd, heldur stunda þeir einhverja atvinnu hálfan eða allan daginn til þess að geta séð fyrir fjölskyldum sín- um eða lifað lífinu samkvæmt þeim kröfum, sem flestir gera nú á tímum. Hringur Jóhannesson, listmálari, er einn af þeim. Vikan hitti hann að máli þar sem hann sat við að skreyta skálar og vasa á vinnustofu Glits. Þær skreytingar eru talsvert ólíkar venjulegri málara- list því litirnir gerbreytast við brennsluna. Hann sagði: — Það er alltaf spennandi að sjá, hvernig liturinn er, þegar hann kemur úr ofninum. Við erum alltaf að prófa eitthvað nýtt. — Er þetta gott starf fyrir listmálara? •— Það er betra en margt annað. Hér er um að ræða listræna sköpun. — Það hafa verið myndskreyttir vasar eftir þig með mótívum úr fornsögum. Ég man til dæmis eftir viðureign Grettis og Gláms. — Já, bæði það og eins þjóðsagna- myndum. Núna höfum við meira farið út í aðra sálma. Það er notað mulið hraun saman við leirinn svo áferðin verður miklu grófari og þá skreyti ég í samræmi við það. En í þessu tilfelli verður skreytingin háðari efnisáferð- inni. —• Og svo málarðu eftir vinnu og í frístundum yfirleitt. —Já, og kenni teikningu við Mynd- listarskólann í Ásmundarsal. •— Er það þar sem maður borgar 25 krónur í hvert sinn og fær tilsögn í teikningu, án þess að vera innritaður. — - Það er í hraðteikningu. Ég kenni hins vegar við kvölddeildir og þar eru fastir nemendur. — Hefurðu mikið fengizt við kennslu? — Ég kenndi við Handíðaskólann áður. Þar var ég reyndar nemandi sjálfur í þrjá vetur, en svo varð fimm ára hlé á öllum myndlistariðkunum vegna þess að það hljóp í mig einhver leiði í bili. Svo sótti ég í mig veðrið að nýju, þegar ég byrjaði að kenna og æfði mig reyndar sjálfur í teikningu því mér fannst það viðkunnan- legra að ég gæti eitthvað meira en nem- endurnir. — Sumir halda að það sé hættulegt fyrir myndlistarmenn að kenna. Framhald á hls. 40. 100 myndavélar lOO vinningar í nýpri vepölaunagetpaun, sem lieffst I næsta blaði Vikunnai*. Fylgizt með ffpá bypjun

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.