Vikan

Tölublað

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 4

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 4
AGFA Iso - Rapid IF Prýðileg myndavél, nýstárleg, með marga kosti. Hún er svo fyrirferðalítil að hún kemst í vasa og framúrskarandi fljótvirk og einföld í notk- un. Hún er með innbyggðu flassi, sem er dreg- ið upp úr henni á einfaldan hátt. Að hlaða vélina með „Rapid-kasettunni" er svo einfalt, að það getur hvert barn. Filmustærðin er 24x24 mm og 16 myndir á filmunni. Linsa er Agfa Achromat, sem gefur skarpar myndir og ekki þarf að hafa neinar áhyggjur af fjarlægðar- stillingunni, því hún er fastsett og myndin verð- ur skörp frá örfáum fetum og út í óendanlegt. Fyrir flassið er í vélinni innbyggð 6 volta raf- hlaða. Myndavélin er úr léttum málmi og harð- plasti. Ljósop 11 og 16. Tökuhraði 1/40 úr sek og 1/100 úr sek. Teljarinn telur aftur á bak frá 16—1 og snýst sjálfur á 0 þegar skipt er um filmur. Umboð: Stefán Thorarensen hf., heildverzlun, Laugavegi 16. 100 VINNINGAR Þetta er ein af þessum nýju, handhægu mynda- vélum þar sem allt er svo einfalt og fyrir- ferðalítið. Ikomatic er ný vél frá Zeiss Ikon í Stuttgart [ Þýzkalandi, mjög lagleg myndavél eins og myndin ber með sér. Hún er með inn- byggðan blosslampa fyrir AG-1 peru. Sjálfvirk skipting er á blosshraðanum, þegar lamp- anum er skotið upp. Linsa er af Frontar-gerð. Sjálf- spenntur lokari, tökuhraði 1/90 úr sek og bloss- hraði 1/30 úr sek. I Ikomatic F er notuð Kodak kasetta og er ekki um neina filmuþræðingu að ræða, kasettan er lögð innaní vél- ina. Umboð fyrir Zeiss Ikon hafa Haukar hf., Lind- argötu 12. AGFA Iso-RapidlF KODAR Instamatic 100 ZEISS - IKON lkomatic F MINOLTA 16-P Zeiss, Ikon Ikomátic F Getrauninni er lokið - lOO lesendur Vikunnar verða myndavél rikari eftlr 12 daga Þessar alkunnu tegundir verða í boði ^ VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.