Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 45
imitiii
EIGIÐ ÞER i ERPIÐLEBaJM EF SVO.ÞÁ ER LAUSNIN HfeR
MEÐ HIRZLU UNDIR SKRÚFUR OG ANNAÐ SMÁDÓT ?
FRAMLEIÐUM HINA ÞEKKTU
SKÁPA í PREM STÆRDUM * *
16.24 OG 32 SKÚFFUI1
VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI
REYKJALUNDI SIMI UM BRÚARLAND SKRIFSTOFA í
REYKJAVÍK BRÆÐRABORGARSTÍG 9 SÍMI 22160....
—■' ............
Á A-2
V 5-4
♦ A-G-8-4-2
10-8 * 10-7-5-3 K-D-9-7-6-5
Á N &
V 8 V 7-3-2
♦ K-10-9-V V A ♦ D-6
* AtK-G-8-6-4 s * 9-2
Á
V
♦
*
sagði: — Af hverju hefurðu ekki
blóm í garðinum þínum?
— Ég veit ekki. Kannske
vegna þess að ég er ekki Hollend-
ingur. Eða kanske vegna þess að
ég hef hvorki babu eða njai. Tur-
ut og vatnsberinn eru litlir
snillingur í skrautgarðyrkju. Jeff
fann til skyndilegrar ánægju þeg-
ar hún ímyndaði sér fullkomið
karlmanns heimilishaldið hjá
Anders.
— Osköp veit ég lítið um þig!
sagði hún. — Það er erfitt að
vera ástfanginn af ókunnum
manni! Hún beið, en Anders
hafði ekkert að segja. — Ætl-
arðu ekki að bjóða mér inn, sagði
hún að lokum. Hann hikaði and-
artak. — Eða er það hættulegt,
eins og tuan besar heldur að í-
búðir kúlíanna séu, spurði hún
hægt.
— Miklu hættulegra, svaraði
hann rámur. Hún leit snöggt á
hann, spyrjandi, en samt full
trúnaðartrausts, og gekk svo upp
þrepin þrjú, upp á svalirnar.
Hann tók um hönd hennar og
opnaði dyrnar inn í húsið og
hélt lampanum í hinni hendinni.
Svo stóð hann grafkyrr og svip-
aðist um í herberginu, sem var
þokkalegt og vel þrifið með hvít-
skúruðum veggjum, engum gólf-
teppum eða mottum á gólfinu,
með nokkrum bambushúsgögn-
um og lítilli bókahillu. Þetta var
mjög ópersónulegt herbergi, bú-
ið nauðsynlegustu hlutum. Jeff
fann til djúprar meðaumkvunn-
ar með Anders um leið og hún
litaðist um í herberginu og ást
hennar tók á sig dýpri mynd.
— Viltu ekki íá þér sæti, svo
þú berir ekki svefninn í burtu,
eins og þeir segja í Danmörku?
spurði hann taugaóstyrkur og
lagaði stólana sína þrjá. — Ég
er hræddur um að það sé ekk-
ert til í húsinu til að bjóða þér.
Jeff settist ekki niður og hún
svaraði ekki. Hún beið eftir því
að hann kæmi og tæki hana í
fangið. Hún velti því fyrir sér
af hverju hann væri svona óör-
uggur, svona taugaóstyrkur,
svona annars hugar, svona skeyt-
ingarlaus. Þegar hann kom ekki
til hennar fór hún til hans. Nú
heyrði hún einnig þrumurnar í
fjarska. Daufur eldingarbjarmi
lýsti upp bambusgluggatjöldin.
Allt var þetta framandi eins og
í draumi.
—■ Andy, hvíslaði hún.
— Já, Jeff, sagði hann and-
stuttur.
Á næsta andartaki var hún í
örmum hans og fann það sem hún
hafði þráð allt kvöldið. Hann
hvíslaði inn í hár hennar, en
það var allt á dönsku, lág og
barnaleg blíðuhljóð. Aftur brá
fyrir eldingu svo sterkri að hún
skar Jeff í augun, í gegnum
augnalokin. Þruma í fjarlægð.
Undarleg, framandi, ókunn nótt.
Hún opnaði augun og lét góm-
ana renna yfir gagnaugu And-
ers. Tveir litlir sporðdrekar sátu
á hvítum veggnum, grafkyrrir
eins og fíngerðar veggskreyting-
ar.
Eitthvað hreyfðist í myrkvuðu
herberginu við hliðina á þessu
og sporðdrekarnir flýttu sér
burtu. Anders hafði einnig heyrt
það. Hann opnaði augun, sleppti
Jeff og kom hægt og letilega í
fallhlíf niður frá sjöunda himni,
Framhald á bls. 49.
Vestur Norður
1 lauf 1 tígull
pass 4 hjörtu
pass
Útspil laufakóngur.
Spilið í dag er frá meistara-
flokkskeppni og þótt undarlegt
megi virðast, þá komu ekki allir
sagnhafar auga á vinningsleiðina,
sem skapaðist þegar vestur
trompaði ekki út í öðrum slag.
Flestir sagnhafar tóku spaðaás
og aftur spaða, eftir að hafa
trompað laufásinn. Austur átti
slaginn og spilaði þriðja spaða,
sem vestur trompaði með átt-
unni. Síðan hlaut sagnhafi óhjá-
kvæmilega að gefa einn slag á
tígul og var spilið þar með tap-
að.
Örlítil breyting spilamennsku
sagnhafa vinnur spilið hins veg-
G-4-3
A-K-D-G-10-9-6
5-3
D
Austur Suður
1 spaði 3 hjörtu
pass pass
ar örugglega. Suður getur ekki
tekið einu sinni tromp, því þá
geta andstæðingarnir trompað út
aftur þegar þeir komast inn á
spaða. Öryggisspilamennskan er
því að byrja á því að GEFA
SPAÐASLAG. Síðar getur sagn-
hafi tekið einu sinni tromp áð-
ur en hann trompar spaðann og
vinnur þá spilið eins og það ligg-
ur.
Það er ekki eins auðvelt og
þið haldið að koma auga á þessa
spilamennsku við spilaborðið, þó
finnst mér. að flestir meistara
flokksmenn ættu að leysa þenn-
an vanda.
■VIKAN'22. tbl.