Vikan

Tölublað

Vikan - 10.06.1965, Blaðsíða 7

Vikan - 10.06.1965, Blaðsíða 7
Svo vil ég nota tækifærið og þakka margt ágætt (það er svo- sem nóg af bölvuðu rusli innan- um) í blaðinu. Greinar G.S. eru yfirleitt góðar, hvort sem er. „í fullri alvöru“, ferðafrásagnir eða annað. Sérstaklega vil ég þakka G.S. fyrir grein í fyrrahaust um stríð- ið. Slíkar hugvekjur eru að mínu vitj nauðsyn nú á tímum hraða og gleymsku. E.S. Gaman væri að fá að sjá hjá ykkur, hve skært logar á per- unni, eins og í fyrravetur. Með beztu óskum um bætta Viku. Norður-Þingeyingur. 1.—2. Ónei, ekkert til í því. 3. Já — þar sem vegalengdin er mest. 4. Það er nú undir því komið, hvort árin liggur í bátnum eða hvort verið er að róa með henni. 5. Ilann er óbrotinn og nú er einn nýkominn. KUNNA EKKI AÐ TAKA BEYGJUR. Kæra Vika! Mér finnst ástæða til að koma eftirfarandi á framfæri við öku- menn og þó einkum ökukennara hér í borg: Fólk virðist alls ekki kunna að taka beygjur. Þegar það beygir út af fjölförnum veg- um og götum, þar sem umferðin þarf að ganga greitt, þá slær það af niður í 10—20 km hraða, eða þá að það tekur þessar marg- frægu „heygrindabeygjur". Sann- leikurinn er sá, að allir nútíma bílar eru svo vel balanseraðir, ef mér leyfist að nota svo slæmt orð, að það er leikur einn að taka vinkilbeygju á 40 km hraða og það án þess að taka minnstu heygrindarbeygju. Þetta ættu ökumenn að sjálfsögðu að gera til þess að trufla ekki umferðina að óþörfu. Ökuþór. Mér er til efs, kæri Ökuþór, að ökumenn mundu nokkuð vilja á sig leggja til þess að beygja útaf án þess að valda óþægind- um. Eins og þú munt hafa tekið eftir, hugsa menn yfirleitt um flest annað í umferðinni en að valda öðrum óþægindum. Það geta sjálfsagt allir beygt útaf — jafnvel vinkilbeygju — án þess að slá mikið af eðlilegum öku- hraða, (t.d. 40 km hraða) en þeir nenna bara ekki að hafa fyr- ir því. Annað atriði, sem ger- samlega ómögulegt virðist að kenna íslenzkum ökumönnum, er að nota akreinar, og það er enn hættulegra. Á hverjum degi sér maður ökumenn beygja útaf götu af skakkri akrein, þvert fyrir umferðina á hinni akrein- inni. Skífting dánarbúsins f 20. tbl. Vikunnar sýndum við mynd af skikanum sem bóndinn ánafnaði erfingjum sínum í tvennu lagi, þannig að hann skifti jörðinni í fjóra jafna parta með krossskurði, en hann var svo heppinn að landareignin var rétt- ur ferningur. Einn fjórðunginn fékk ekkjan hans óskiftan, en synir hans FJÓRIR áttu að fá það sem eftir var, ef þeir gætu skift því í fjóra jafnstóra hluta, sem allir væru nákvæmlega eins í laginu. Og við fólum Iesendum Vikunnar að hjápa bræðrunum. Og þetlta var í rauninni ákaf- ega einfalt. Auðveldast er að halda strikunum, sem koma út úr skiftingu jarðarinnar allrar. Þá verða þrír fjórðungar eftir handa bræðrunum. Skiftið þeim fjórðungum niður sínum með hverjum krossskurðinum. Þá fá- ið þið út 12 litla ferninga. Fjórir ganga þrisvar sinnum upp í tólf og þá sjáum við, að hver bræðr- anna á að fá þrjá litla ferninga. Þar með er björninn unninn. Til þess að fá sömu lögun á jarðnæði allra bræðranna er ekki hægt að raða þremur ferningum saman f jórum sinnum nema á einn hátt •—- eins og þið hafið sjálfsagt þegar komizt að raun um. HAFNARSTRÆTI 5. £ÍMAR: 2 17 20 OG 1 19 64. FarSaskdfsto'a Ziega h.f. býður yður enn sem fyrr fullkomnustu ferða- þjónustu, ssm völ er á. A einum stað fáið þér allt, sem þér þurf- ið til ánægjulegrar skemmtiferðar, sumarleyfisferðar, viðskipta- eða verzlunarferðar: FARSEÐLA með flugvélum, skipum, járn- braufum, bílum, pantaða HÓTELGISTINGU, fullkomnar UPPLÝS- INGAR um lönd og lýði og KAUP3TEFNUR víðsvegar um Fieim. Við sækjum FERÐAGJALDEYRiNN fyrir yður ef þér óskið, og SENDUM yður öll ferðagögn Fieim, ef það kemur sér betur fyrir yður. Alla þessa þjónustu og meira til fáið þér Fijá ferðaskrif- stofu Zoéga ÁN NOKKURS AUKAGJALDS, og í kaupbæti áratuga starfsreynslu og þekkingu okkar og umboða okkur um allan heim. KJARAFERÐIR ZOEGA 1965. Tar bjóðum við yður úrval af einstaklings- ferðum, hinum svokölluðu IT ferðum. Sýnishorn úr þeim bæklingi birtist hér að neðan. Auk þess gefa meðlimir ! Félagi íslenzkra ferðaskrifstofa út sameiginlegan bækling með IT ferðum. Þær ferðir bjóðum við yður einnig, og eru báðir þessir bæklingar fyrirliggjandi á skrifstofu okkar. SÝNISHORN AF HINUM FJÖLBREYTTU UTANLANDSFERÐUM ZOEGA. LONDON ................... SUÐURSTRÖND ENGLANDS ..... KAUPMANNAHÖFN OG LONDON LODON OG ÍRLAND .......... HÖFUÐBORGIR NORÐURLANDA . LONDON, BELGÍA, FRAKKLAND, SVISS, ÞÝZKALAND ......... ÍTALSKA RÍVÍERAN ......... ADRÍAHAFSRÍVÍERAN ........ JÚGÓSLAVÍA ............... SIGLING UM MIÐJARÐARHAF, DVÖL Á MALLORCA........... MADEIRA .................. 8 daga ferð kr. 8.220 12 daga ferð kr. 9.750 12 daga ferð kr. 11.030 14 daga ferð kr. 9.650 14 daga ferð kr. 13.930 16 daga ferð kr. 12.180 17 daga efrð kr. 12.290 18 daga ferð kr. 14.075 18 daga ferð kr. 17.950 21 dags ferð kr. 19.490 18 daga ferð kr. 19.925 Auk þessara standa yður til boða tugir annarra ferða. Komið, skrifið, hringið, og við munum senda yður ferðaáætlanir okkar yfir sumarið. VIKAN 23. tbl. rj

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.