Vikan - 10.06.1965, Side 10
m
wMtm
wmmk
• 'Ö 'u 'iM? *
mm£
Serge og Anne Golon ásamt börnum sínum.
Þau Serge og Anne Golon
halda áfram að skrifa um
Angelique, sem sífellt
lendir í nýjum ævintýr-
um, eins og lesendur Vik-
unnar munu bráðum
sannreyna, þegar næsti
hluti, Angelique og kóng-
urinn, hefur göngu sína
í Vikunni áður en langt
um líður. Hér birtum við
viðtal, sem brezkur
blaðamaður átti við höf-
unda sögunnar, þar sem
þau ræða um hina vin-
sælu sögupersónu sína.
„Angelique er persónugervingur ástarinnar í öllum myndum.“
feL.
RÖDD ÁSTARINNAR hljómar í einbýlis-
húsi, sem stendur í svissneskri fjalls-
hlíð. Þaðan sést i fjarska til Matter-
horn og Jungfrau, sem tilsýndar eru
líkust því að þau séu máluð óhóflegu
litaskrúði.
Fyrir utan gluggana leika sér svartir íkorn-
ar i snjónum, sem hefir klætt furutrén vetrar-
skrauti.
Þarna búa Serge og Anne Goloubinoff, höf-
undar Angelique, söguhetjunnar sem á sér
40 milljónir lesenda.
Undir höfundanafninu Sergeanna Golon
hafa þau helgað sex bækur, þessari sögulegu
konu, sem að flögrar í ástarævintýrum gegn-
um rikisstjórnarár Loðviks fjórtánda, — Le
Roi Soleil, — sólarkonungs frönsku þjóðar-
innar.
Hver á að tala um ást? — Prestur? — Kvik-
myndastjarna? — Gimsteinasafnari.. .. ? Hver
er færari til þess en þau, sem hafa skapað
Angelique, því að ef nokkur er persónugerv-
VIKAN 23. tbl.
ingur ástarinnar, þá er það sannarlega þessi
kona.
Serge segir: —- Að öllu athuguðu er það
fórnfýsin sem er mikilvægust ástinni. Ástin
byrjar þegar að maðurinn hættir að elska
sjálfan sig....
SPENNINGUR
— Ef við tökum algengt dæmi, að maður
segi við konu. — Ég er mikið fyrir góðan
heimatilbúinn mat, en ef þér leiðist að elda,
þá get ég hæglega verið án hans.... Þá er
hann farinn að elska. Og þegar konan segir:
—■ Ég hata eldamennsku, en ef þig langar til
að ég eldi matinn, skal ég reyna hvað ég get
.... þá er hún orðin ástfangin.
Serge ,sem nú er sextíu og eins árs, hefir
upplifað æsandi atvik í líkingu við söguhetj-
ur sinar og ástin hefir tekið sér bólfestu hjá
Iionum.
Hann er fæddur Rússi. Faðir hans var