Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 10.06.1965, Qupperneq 10

Vikan - 10.06.1965, Qupperneq 10
m wMtm wmmk • 'Ö 'u 'iM? * mm£ Serge og Anne Golon ásamt börnum sínum. Þau Serge og Anne Golon halda áfram að skrifa um Angelique, sem sífellt lendir í nýjum ævintýr- um, eins og lesendur Vik- unnar munu bráðum sannreyna, þegar næsti hluti, Angelique og kóng- urinn, hefur göngu sína í Vikunni áður en langt um líður. Hér birtum við viðtal, sem brezkur blaðamaður átti við höf- unda sögunnar, þar sem þau ræða um hina vin- sælu sögupersónu sína. „Angelique er persónugervingur ástarinnar í öllum myndum.“ feL. RÖDD ÁSTARINNAR hljómar í einbýlis- húsi, sem stendur í svissneskri fjalls- hlíð. Þaðan sést i fjarska til Matter- horn og Jungfrau, sem tilsýndar eru líkust því að þau séu máluð óhóflegu litaskrúði. Fyrir utan gluggana leika sér svartir íkorn- ar i snjónum, sem hefir klætt furutrén vetrar- skrauti. Þarna búa Serge og Anne Goloubinoff, höf- undar Angelique, söguhetjunnar sem á sér 40 milljónir lesenda. Undir höfundanafninu Sergeanna Golon hafa þau helgað sex bækur, þessari sögulegu konu, sem að flögrar í ástarævintýrum gegn- um rikisstjórnarár Loðviks fjórtánda, — Le Roi Soleil, — sólarkonungs frönsku þjóðar- innar. Hver á að tala um ást? — Prestur? — Kvik- myndastjarna? — Gimsteinasafnari.. .. ? Hver er færari til þess en þau, sem hafa skapað Angelique, því að ef nokkur er persónugerv- VIKAN 23. tbl. ingur ástarinnar, þá er það sannarlega þessi kona. Serge segir: —- Að öllu athuguðu er það fórnfýsin sem er mikilvægust ástinni. Ástin byrjar þegar að maðurinn hættir að elska sjálfan sig.... SPENNINGUR — Ef við tökum algengt dæmi, að maður segi við konu. — Ég er mikið fyrir góðan heimatilbúinn mat, en ef þér leiðist að elda, þá get ég hæglega verið án hans.... Þá er hann farinn að elska. Og þegar konan segir: —■ Ég hata eldamennsku, en ef þig langar til að ég eldi matinn, skal ég reyna hvað ég get .... þá er hún orðin ástfangin. Serge ,sem nú er sextíu og eins árs, hefir upplifað æsandi atvik í líkingu við söguhetj- ur sinar og ástin hefir tekið sér bólfestu hjá Iionum. Hann er fæddur Rússi. Faðir hans var

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.