Vikan

Eksemplar

Vikan - 10.06.1965, Side 16

Vikan - 10.06.1965, Side 16
FRAMHAL EFTIR DAVID W Klement horfði ókafur á andlit Ryans meðan hann talaði og síð- an með sama ákafa framan í Stein, þegar hann þýddi orð Ryans. Þeg- ar Stein hafði lokið máli sínu kink- aði Klement kolli. — Þér getið ennþá náð háum aldri, maior, sagði Ryan. Þegar lestin staðnæmdist aftur opnaði Ryan dyrnar lítið eitt og horfði út í hálfrökkur sem aðeins var rofið með rauðleitum feluljós- um. — Stein, mig langar til að biðja yður um að ná i föður Costanzo. En talið þýzku. Stein lagði af stað og Fincham kom til Ryans. — Um leið og faðir Costanzo kemur, fer ég með Klement inn á stöðina til að sækja áætlunina, sagði Ryan. — Þér verðið hér og hafið auga með lestinni. Stei.n kom aftur með Costanzo og Ryan skipaði Klement að fara niður úr vagninum. Samtímis yfir- gáfu varðmennirnir staði sína uppi á vögnunum og klifruðu niður. En allir hlýddu fyrirskipunum og þýzku verðirnir og menn banda- manna voru sitt hvorum megin við lestina. Fangarnir í aftari vögnun- um spörkuðu í veggina og bölvuðu eins og venjulega. Þeir í fremri vögnunum, sem vissu hvernig allt var í pottinn búið, voru hljóðir. Þetta gat vakið grunsemdir. Menn gætu tekið að undrast mismuninn. Ryan fól Stein að sjá um að fang- arnir í fremri vögnunum tækju einn- ig að gera hávaða. Flávaðinn vakti athygli um alla stöðina. Ryan heyrði forvitnar spurningar bæði á þýzku og ítölsku. Allt í einu kom ítalskur liðsfor- ingi til þeirra. Hann sagði eitthvað við Klement í reiðilegum tón og pataði með höndunum. Klement hristi höfuðið. Hann talaði ekki ítölsku. Costanzo túlkaði fyrir þá. Orðið „ítalir" kom hvað eftir ann- að fyrir hjá þeim. Ryan skildist, að verið væri að spyrja, hvort nokkrir ítalir væru meðal fang- anna. — Gott, faðir, sagði Ryan. — Þér leikið hlutverk yðar vel, Klement. Leikið bara svona vel áfram og þá fer allt vel. Segið mönnum yð- ar, að þeir geti tekið sér stundar- fjórðungs frímínútur og fengið sér eitthvað að drekka. Varðmennirnir sveifluðu byssun- um yfir axlirnar og skokkuðu af stað, undrandi yfir þessari nýju mildi Klements. Þegar þeir voru horfnir opnaði Ryan dyrnar að fyrsta fangavagninum. — Er nokkur hér sem talar ítölsku? spurði hann. Margir svöruðu játandi. — Eg þarf að fá einn, sem talar ítölsku. Farið að vagni yfirforingj- ans og tilkynnið Fincham yfirlaut- inanti að þér eigið að fá þýzkan einkennisbúning og gefið yður síð- Jg VIKAN 23. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.