Vikan - 10.06.1965, Qupperneq 26
Þelp llfðu af
Myndin, sem tekin var úr annarri flugvél: Vosne Romanée hefur verið skotin
í tvennt og framhlutinn fellur til jarðar. Þaðan komust þrír af.
Stríðinu var senn að ljúka, en bandamenn áttu í hörðum orrustum við Þjóð-
verja við Rín. Hér flýgur flugvélin með þá félaga inn yfir þýzkt land og hef-
ur fjórar þúsund punda sprengjur innanborðs.
Beatilien liðjjj'áífi
(loftskeyt.n maðm).
Beitiand llöjfjálfl % ; (yélaiiiaðtii % i
os tumskyttaj x..I
Chanipiomis liðjijálfi Fantlry
(sl.filiitkaíi'aið"meiii) (aftuiskytta)
Bertrand liðjijálfi
(vélamað.tii og turnskytta)
Rolland major
(foringi og flugstjóri)
Val liðþjalfi
BeatiHeu liðþjálfi.j
(loftskevtamaðuriy
Champtomis liðþjálfi
(sigliiigafraeðingurj
Fatuiry
(afturskytta)
Merciei liðþjálfm-
ínostoðarflugmaöurí
— Brœður, í dag er örlagadagur. — Þetta er dagur sem er ein-
staklega vel til þess fallinn að láta skjóta sig niður. .. .
En ennþá er langt til Þýzkalands og árásarstaðarins. Innst í sveit
sex flugvéla þýtur Vosne-Romanée vélin áfram, með 400 km. hraða
á klukkustund. Takmarkið er Jockgrim, mikilvœgustu bækistöðvar
Rundstedts i Rhur-héraðinu, milli Karlsruhe og franska bæjarins
Lauterbourg í norðausturhorninu af Elsass, sem ennþá var á valdi
Þjóðverja. Allur franski sprengjuflugvélaflotinn er á lofti, skipt niður
í tólf deildir, -— sex flugvélar í hverri deild.
Það er 40 stiga frost í þessari hæð, en inni í vélinni er rafmagns-
liitun. Það er bara dálítið erfitt með andardráttinn, vegna þess að
þeir hafa takmarkað súrefni. Þessvegna talar áhöfnin eins lítið sam-
an og mögulegt er.
Major Rolland fær stjórnina í hendur aðstoðarflugmannsins Pierre
Mercier, teygir úr sér og reynir að mýkja stirða vöðva sína. Hann
er eins og hinir, kappklæddur. Skothelt vestið, sem á að verja hann
gegn sprengjubrotum vegur tuttugu og fimm kíló. Fallhlifin er ó-
þægileg og sauðskinnskápan skýlir honum upp að eyrum.
Mercier liðþjálfi sér á milli fóta sér i stigvél Rogers Val liðþjálfa,
sem liggur á maganum í nefi flugvélarinnar úr plexi-gleri.
Fyrir aftan flugmennina situr siglingafræðingurinn Jean Champ-
romis liðþjálfi og loftskeytamaðurinn Reaulieu. Hann sendir engin
skeyti nú, meðan á aðfluginu stendur. Eiu sinni á hverju kortéri
sendir hann stuttorð skilaboð til flugstöðvarinnar Lyon—Bron:—
QRU—, ekkert í fréttum, og Bron svarar: — OK
Af ökrunum sjá þeir aðeins hvíta auðnina, það er mikill snjór
þennan síðasta stríðsvetur. Þarna er Elsass-sléttan, þar sem skrið-
20 VIKAN 23. tbl.