Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 24
\JiARGIR HALDA, aö partý séu nýtízlculeg fyrirbrigði hér
J\/\ á Islandi; aö þau hafi veriö lítill sem enginn liður í
skemmtanalífinu fram á þessa öld. En þetta er álrangt.
íslendingar hafa aldalanga reynslu f partýum og nœgir aö minna
á Jörvagleöina frœgu. Og glæsilegt partý var t Hruna, þegar
kirkjan sökk.
En þetta nútímaform á partýum, sem einkum eru haldin í
heimahúsum, hefur líklega oröiö til hér á landi samhliöa her-
náminu og þeim margvíslegu þjóöfélagsbreytingum, sem þá áttu
sér staö. Þaö er vitaskuld ekki hægt aö skemmta sér til fulls
á skemmtistöðunum; hvorttveggja er, aö þar er skemmtunin
út'i áður en nóttin er hálfnuö og svo hitt, aö partý í heimafhúsum
skapa ýmis skilyröi, sem ekki eru fyrir liendi á opinberum stöö-
um. Þegar danshúsin loka eru jafnan mýmörg partý í uppsiglingu
og sumir eru höföingjar og bjóöa meðan húsrúm leyfir og hvort
þeir þekkja fólk eöa ekki. Þeir sem liafa áhuga ganga m'illi manna
og spyrja: Hvar er partý — og venjulega gengur ekki erfiölega
aö bjarga því sem eftir er af nóttinni.
ÞaÖ eru háldin „bless-partý“ og þaö eru háldin töffa-partý.
ÞaÖ eru háldin intellectúel partý, þar sem állir eru óskaplega
gáfaðir og þaÖ eru haldin ga-ga-partý, þar sem allt er kolbrjálað.
Svo eru venjuleg fylliriispartý, þar sem kvenfólk er ekki haft
meö. Og allskonar afbrigöi af þessu eöa állt saman. ÞaÖ heyrir
til hlutarins eöli, aö íbúö gestgjafans sé eins og rúst á eftir og
nokkrar kvartanir berist frá skapstyggum nágrönnum, sem ekki
fengu svefnfriö. Vel lukkaö partý stendur fram á morgun og
aö minnsta kosti þangaö til öll vínföng eru búin. Ef þau klárast
vonum fyrr, má fá flugvél meö flösku eins og þeir gera í partý-
um á vertíöinni í Vestmannaeyjum.
Sökum þess aö viö erum enn í flokki vanþróuöu landanna,
þá vantar tilfinnanlega ýmis partý-afbrigöi, sem sjálfsögð þykja
hjá menningarþjóöum og sjá má af myndafrásögn'inni, sem hér
fylgir meö.