Vikan - 12.08.1965, Blaðsíða 3
Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Blaðamenn: Guð-
mundur Karlsson, Sigurður Hreiðar. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Auglýsingar: Ásta Bjarnadóttir.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Símar: 35320,
35321, 35322, 35323. Pósthólf 533. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreifingar-
stjóri: Óskar Karlsson. Verð í lausasölu kr. 25. Áskrift-
arverð er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram.
Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
FORSðÐAN
I þessu blaði byrjar Einar Kristjónsson, óperusöngv-
ari, að segja fró endurminningum sínum. Það er
margt, sem hefur drifið á daga Einars um ævina.
Það má efalaust telja hann í hópi okkar fremstu
söngvara. Til dæmis kannast líklega hver maður
við Hamraborgina. I tilefni þessa höfum við helg-
að Einari forsiðuna á blaðinu.
i 1 ! SARI 1 VBKU i NÆSTA BLAÐB
VOGGUVÍSA FYRIR MORÐINGJANN, framhalds-
saga ................................ Bls. 4
LiSTIN ÆTTI AÐ STUÐLA AÐ SÁLARRÓ, viðtal við
Einar Hákonarson, listmálara ..... Bls. 8
HUMARTÚR Á HAFRÚNU. Vikan hefur sent blaða-
mann í einn túr á humarbát til að fylgjast með
þessum sumarveiðum .................. Bls. 10
SÍÐDEGI, smásaga .................... Bls. 12
SIÐAN SÍÐAST, ýmsir atburðir, sem eru að gerast
úti í heimi í máli og myndum ........ Bls. 14
ANGELIQUE OG KÓNGURINN, vinsælasta fram-
haldssaga, sem hefur birzt í Vikunni .... Bls. 16
DUGNAÐARFORKAR MEÐ KVENLEGAN YNDIS-
ÞOKKA, þýdd grein um konur í Rússlandi, sam-
keppni þeirra við karlmenn á flestum sviðum og
líf þeirra og starf.................. Bls. 18
HANN RANNSAKAR ORSAKIR EYÐILEGGINGAR-
INNAR, viðtal við Guttorm Sigurbjörnsson um eyði-
leggingarmátt sandfoksins og hvað gert er til að
hefta það ........................... Bls. 22
NÓTTIN LOGAR AF NORÐURLJÓSUM, Einar Krist-
jánsson, óperusöngvari, rifjar upp endurminningar
sínra. Þetta er fyrsti hlutinn af fjórum, sem koma
í Vikunni ........................... Bls. 24
ÞEGAR SKEMMTIFERÐASKIPIN KOMA. Myndafrá-
sögn af túristum á íslandi .......... Bls. 48
Auk þessa, STJÖRNUSPÁ, KROSSGÁTA, KVENNA-
EFNI og fleira.
VOGGUVISA FYRIR MORÐINGJANN, framhalds-
saga.
SAMKEPPNI UM ÁRÓÐURSMYND GEGN TÓBAKS-
REYKINGUM. Sagt frá samkeppni í skólunum um
beztu myndna til áróðurs gegn tóbaksreykingum.
VIÐ VILJUM VERA VEIKARI AÐILINN. Viðtal við
Andreu Oddsteinsdóttur um almenna kurteisi, þéring-
ar og umgengnisvenjur.
INTERMEZZO, smásaga eftir Kerstin Nilsson.
ANGELIQUE OG KÓNGURINN, 6. hluti framhalds-
sögunnar.
HVENÆR BRESTUR ÞOLINMÆÐI NÁUNGANS. Vik
an hefur gert út leiðangur til að athuga, hve þol-
inmóðir menn eru á götum Reykjavíkurborgar.
FÍFLDJARFUR FLÓTTI UNDtR BERLÍNARMÚRINN,
þýdd frásögn af flótta, sem á sér fáar hliðstæður.
EINHLEYP KONA í NÚTÍMAÞJÓÐFÉLAGI, grein um
stöðu piparmeyjarinnar nú á dögum.
ÓÞÆGILEGT ÁSTAND, smásaga eftir Burgess.
VIÐ ÁTTUM AÐ SEGJA HEIL HITLER í ÓPERUNNI.
Einar Kristjánsson heldur áfram að rifja upp end-
urminningar sínar. Þetta er annar hlutinn af fjór-
um. i'
Og svo erum við að venju með SÍÐAN SÍÐAST,
PÓSTINN, KVENNASÍÐUNA og annað skemmtilegt
efni.
HÚMOR í VIKUBYRIUN
BRÉF FRÁ RiTSTJÓRNINNI
Það væri synd að segja, að íslenzkir söngvarar
hafi til skamms tíma fengið mikla möguleika til
að stunda list sina hér á landi. Söngur hefur löng-
um verið í hávegum hafður meðal alþýðu manna,
cg margir ungir menn og konur hafa átt þann
draum heitastan, að geta helgað sönglistinni krafta
sína. Þó nokkrir líka haft til að bera hæfileika í þá
átt. Langt söngnám erlendis hefir svo komið í kjöl-
farið, og margir íslendingar hafa hlotið hinn prýði-
legasta vitnisburð sem góð efni í atvinnumenn
sönglistarinnar. Að námi loknu er svo haldið heim.
Tveir konsertar í Gamla Bíói, þar sem mættir eru
ættingjar og vinir söngvarans. Mörg aukalög og
nokkrir blómvendir. Um þetta lesum við í blöðun-
um. Siðan ekki söguna meir. Næst þegar við mæt-
um söngvaranum, er hann að flýta sér á skrifstof-
una. Hann hefur orðið að taka skrifstofustarf til
þess að hafa ofan í sig að éta. Svo hefur hann
aukavinnu við a6 syngja einn sálm við meiriháttar
jarðarfarir.
Fram á þetta sáu nokkrir afburðamenn á sviði
sönglistarinnar, og ákváðu samkvæmt því að taka
tilboðum um að syngja við erlendar óperur, og fá
þannig tækifæri til þess að starfa við það fag,
sem þeir höfðu varið ærnom tíma til þess að læra.
Meðal þeirra var Einar Kristjánsson, óperusöngvari,
sem er nýfluttur heim eftir langt starf á erlendri
grund, og kennir nú við tónlistarskólann hér. Hann
hefur að líkum frá mörgu að segja, og við kynn-
umst því betur við lestur greinanna um hann, sem
hefjast í þessu blaði og birtast í næstu þrem blöð-
um.
VXKAN 32. tbl. g