Vikan

Eksemplar

Vikan - 26.08.1965, Side 10

Vikan - 26.08.1965, Side 10
Hversu langt á starfssvið giftrar konu a Á það að takmarkast við heimilisstörf, eða eiga húsmæður að taka virkan þátt í störfum þjóðfélags Á síðari árum hefur aukin tækni auðvéldað mjög störf hús- móðurinnar, og oft heyrast raddir um það, að heimilisstörfin séu orðin svo auðveld, að húsmóðirin hafi ekkert að gera nema kannski að hugsa um hörn sín, sem að mestu leyti gangi sjálfala um á daginn. Það sé því ekki nema sjálfsagt, að gift- ar konur taki virkari þátt í störfum þjóðfélagsins út á við. Aðrir segja aftur á móti, að starfssvið giftrar konu sé fyrst og fremst á heimilinu, þrátt fyrir álla tækni og nýjungar séu Hefur þjóðfélagiðZefni á þvf að konur me heimilanna? Svör þessara átta kvenna fara hér á eftir. Texti: GuSrún Egilson. FRO HEBA GUÐMUNDSDÖTTIR Hafi kona sérmenntun á t'iníiverju sviði, hefur þjóðfélagið vafalaust mik- il not fyrir starfskrafta hennar, og æskilegt er, að hún vinni úti, ef hún treystir sér til þess og einhver gætir barna hennar á meðan. Á hinn hóginn hafa börn áreiðanlega ekki gott af því, að móðir þeirra vinni stöðugt ut- an heimilis og fari þau mjög á mis við þá umhyggju og öryggi, sem móð- irin veitir, kemur það fyrr eða síðar niður á þjóðfélaginu, þar sem börnin verða áreiðanlega verrl þjóðfélags- þegnar fyrir bragðið. Það er náttúr- lega einstaklingsbundið, hvort konur eru hæfar til þess að vinna úti, og sjá jafnframt um heimlli, en ég held, að fæstar endist til þess til lengdar. Frumskilyrðið fyrir því, að kona geti unnið úti, er það, að börn hennar hljóti góða umönnun á meðan, en ekki er hlaupið að því að koma börnum á dagheimili eins og sakir standa. FRO ÞÓRUNN EGILSON FRO JÓNlNA GUÐRUN GÚSTAFSDÓTTIR Þetta er í rauninni háhagfræðileg spurning, sem ég get aðeins svarað af brjóstviti. Ég tel, að okkar þjóðfélag hafi alls ekki efni á því að iáta þetta mikil- væga vinnuafl fara forgörðum. Kannski er þctta heilbrigt kannski ó- heiibrigt, ég veit það ekki. Við erum fámenn þjóð, harðduglegt fólk, held ég að megi segja, sem stefnir hátt. í iðnaði er mikil gróska, nýjar og um- svifamiklar framkvæmdir, ótæmandi verkefni eru á öllum sviðum, Jafnt fyrir konur sem karlmenn. Þá er á sumum sviðum skortur sérmenntaðra kvenna mjög alvarlegur: þar á ég við hjúkrunarkonur og kennara. Ég er að sjálfsögðu eingöngu að tala um konur, sem hafa góöa aðstöðu til að vinna utan helmilis, þar sem börn- in eru orðin það stálpuð, að þau geti að miklu leyti bjargað sér sjálf. Ég tel mikilvægt fyrir þjóðfélagið að geta virkjað þennan mikilvæga vinnukraft. Nú spyr kannski einhver: „Af hverju vinna þá ekki þessar konur útl?“ Það kann að liggja í skattstiganum, þvi að þótt segja megi, að mikil lagfæring hafi verið gerð á skattálagningu glftra kvenna, þá held ég samt, að þessir háu skattar eigi einhvern þátt f því, að giftar konur veigra sér við að afla heimilinu tekna. Þessari spurningu vil ég hiklaust svara neitandi. Þjóðin er fámenn, og mikill skortur er á vinnuafll í vel flestum greinum, og þvf þá ekki að nýta starfskrafta giftra mæðra með létt heimili, ekki sízt þeirra, sem eiga sér að baki langt nám og ef til vill sérnám í einhverri grein. Margir halda þvf fram, að starf mðð- ur utan heimilis hljóti oftast að bitna á börnunum á einhvern hátt og er það vissulega ekki fráleitt. Ég held aö það hljóti að koma niður á öllum aðilum, ef húsmóðir á stóru heimili vinnur úti fullan vinnudag, geðjast starfið miður vel og kemur þess vegna heim þreytt og leið. Persónulega er ég ekki hlynnt þvf, að gift kona með ung börn vinni úti nema háifan dag- inn, ef aðstæður mögulega leyfa: En þvf miður geta ekki nærri aliar hús- mæður, sem áhuga hafa á, starfað utan heimilanna, vegna þess að hér er til- finnanlegur skortur barnaheimila, þar sem konur geta haft börn sín, meðan á vinnu stendur, þannig að allir megi vel við una. FRO lara JÓNSDÓTTIR Þótt giftar konur og mæður vinni ekki úti, má alls ekki álfta, að þær geri þjóðfélaginu miklu minna gagn en aðrir, þvf að starf þeirra miðast að miklu leyti að því að ala upp góða og gegna þjóðféiagsþegna. Mér finnst að starfssvið giftrar konu sé fyrst og fremst á heimilinu, ekki hvað sízt, ef um ungbörn er að ræða. Húsmóður- störf á hverju meðalheimili eru það margþætt og mikilsverð, að út af fyrir sig eru þau nægilegt verkefni fyrir hverja konu, enda þótt margs konar heimiUstæki hafi mjög létt störf hús- móðurinnar miðað við það sem áður var. Samt fer því fjarri, að ég sé því mótfalUn, að konur vinni úti, verði því með góðu móti við komið og fjár- hagsleg þörf sé á. Þetta á ekki sfzt við á sfðari tímum, þar sem fólk giftist svo ungt, og verður þvf að hjálpast fjárhagslega af þvf að byggja upp eigin heimiH. Hins vegar er ég eindregið á þeirri skoðun, að ef konan vinnur úti, beri manni hennar að hjálpa til með heimiUsstörfin. JQ VIKAN 34. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.