Vikan

Útgáva

Vikan - 26.08.1965, Síða 20

Vikan - 26.08.1965, Síða 20
húsbyggjendur hafa ekki undan, Þess utan vilja flestir fá sem ó- dýrasta íhúð og helzt sem næst vinnustað. Koki og Poko-san vonast til að fá tveggja herbergja íbúð sem er um klukkutíma akstur frá vinnustað þeirra og miðborginni. Tveggja herbergja íbúð í blokk- um sem borgarstjórnin byggir, og þar sem leigunni er stillt eitthvað í hóf. En þær eru lika dýrar, kringum 8000 yen (ca. 12—1300 krónur) á mánuði. Koki andvarpar við tilbugsun- ina. Það gerir Poko-san líka: — Það eru hræðilega miklir pen- ingar, segir hún. — En brúð- kaupsveizluna borga foreldrar þínir, segir liún, ánægð á svip- inn. Brúðkaupsveizlan er erfiður útgjaldaliður fyrir foreldra brúðgumans; hún getur kostað 50—60 þúsund krónur. En það er líka venja að hafa geysilega mikið hóf fyrir fjölda manns, þar sem ósköpin öll af mat og drykk er á boðstólum, sérstak- lega eru vínveitingarnar stór- fenglegar, þvi að það er kurteis- isskylda að allir karlmenn drekki sig blindfulla. — Okkar brúðkaup verður haldið á Prince Hotel, tilkynnir Poko-san hreykin. —- Það er ákveðið. ... Á Prince Hótel er mikið hald- ið af brúðkaupsveizlum fyrir miðstéttarfólk. Til þess teljast Koki og Poko-san og foreldrar þeirra beggja. í hátíðasal hótels- ins fer hjónavígslan fram og brúðkaupsveizlan á eftir. Brúð- kaupsferð fara þau ekki, þau hafa ekki ráð á því. En þau skreppa kannske um eina helgi til gömlu keisaraborgarinnar Koichi Katoh og Yasuyo Yos- himura opinberuðu trúlofun sína 25. maí í fyrra, ári eftir að þau hittust fyrst. í Japan er það venja að giftast nokkrum mánuð- um eftir trúlofun, stundum jafn- vel eftir einn mánuð. En Koichi og Yasuyo verða að bíða. Þau vita ekki einu sinni hvenær þau geta gift sig. Og hver er ástæðan. . . . ? Koichi gerir eins og allir Jap- anir, hann bregður fyrir sig brosinu, þessu hrosi sem er svo óskiljanlegt okkur Vesturlanda- fólki, okkur finnst það oft svo tilefnislaust. Hjá Japönum tákn- ar brosið ekki eingöngu gleði, heldur líka sorg. Nú hlær Koichi lika, en bros- ið getur ekki dulið biturleikann. Hann segir: — Ég á eldri bróður sem er ógiftur. Hann er í háskóla og getur ekki gift sig strax, svo að ég verð að bíða. Hér getur maður ekki gift sig fyrr en eldri 2Q VIKAN 34, tbl. bræðurnir eru komnir í hjónaband- 18--- Yasuyo, sem er lítil og fingerð, stórfalleg í kimono sínum og líka hrein fegurðardís í Vesturlanda- fötum, sendir unnusta sínum inni- legt hros og segir hughreystandi: — Koki, þú mátt vera viss um að þetta lagast allt áður en varir. Hay- ato er bráðum búinn með námið, og þá getur hann farið að hugsa um lijónabandið. Svo fáum við íbúð og giftum okkur. Heldurðu það ekki. . . . ? Kochi, sem Yasuyo kallar Koki, og hann hana Poko-san, breikkar brosið. — Jú, kannske verður liún sannspá. Ef til vill geta þau gift sig í sumar. ALLIR VERÐA AÐ DREKKA SIG FULLA Þau eru byrjuð að leita að íbúð. Það er mjög erfitt að fá íbúð í Tokyo. Ibúatala eykst svo ört, að það er líkast hraunflóði, svo að Koichi Katoh og Yasu- yo Yoshimura vinna við sænskt verzlunarfyrir- tæki í Tokyo. Þau eru heitbundin og bíSa eftir því að geta gift sig. En ástaratlot, eins og t. d. koss, eru algerlega ó- þekkt fyrirbæri í til- hugalífinu. Hann hlær og hún roðnar við hugs- unina eina. Hvernig bjóða þau hvort öðru góða nótt.. ? Það er ó- sköp einfalt. ÞAU HNEIGJA SIG HVORT FYRIR ÖÐRU. UFSSKILYRÐI ASnRINNAR ÍT0KI0H Efftir Bo Hanson

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.