Vikan

Eksemplar

Vikan - 26.08.1965, Side 31

Vikan - 26.08.1965, Side 31
BERK E L nóttina ásamt þýzka undirfor- ingjanum: hún varð ástmey hans í ástarvimunni um nóttina féllst hún á að takast á hendur njósnir fyrir Þjóðverja. Um tveggja mánaða skeið kom hún upp um félaga sína í andspyrnu- hreyfingunni. Eftir tilvísunum hennar voru þeir handteknir hver af öðrum og dæmdir til dauða. Árið 1942 var hún send yfir til Englands til að njósna, og eftir löng og átakanleg réttarhöld var hún dæmd til dauða, en dómurinn síðan mildaður niður i ævilangt fangelsi. Vinir hennar í andspyrnu- hreyfingunni vildu alls ekki trúa því, að hún hefði svikið félaga sína af frjálsum og fúsum vilja. Þeir héldu því fram, að hún hlyti að hafa verið pind til þess. Ef til vill hefur hún orðið að gangast undir heilaþvott, en úr því verður víst aldrei skorið. Það eina, sem vitað er með vissu í þessu máli, er að nazist- ar notuðu undirforingjann sem tálbeitu á „Læðuna“. Hann átti að sænga hjá henni, lofa að gift- ast henni og beita öllum brögð- um til þess að gera hana ást- fangna af sér. Þetta var gert til þess að þeir gætu haft not af henni. HÚN ELSKAÐl LÍFIÐ 18. janúar árið 1945 seint um kvöldið kváðu við tvö byssuskot á norðanverðu Eyrarsundi. Þar var mótorbátur á ferð og út úr honum steyptist í hafið rauð- hærð, fögur kona. Dauðadómi hafði verið full- nægt. Sænska konan Jane Horn- ey var látin. Hún hafði verið tekin af lífi fyrir njósnir. Hver var hún? Var hún Mata Hari Svia? Tæplega. Var hún glöggskyggn og greindur njósn- ari, sem þjónaði tveim herrum. Það er einnig fremur ósennilegt. Að minnsta kosti hefur það aldrei verið sannað. Hún var ævintýrakona og það voru ásta- sambönd hennar, sem urðu henni að fótakefli. Þegar heimsstyrjöldin var í algleymingi hafði liún verið í tygjum við danska frelsishetju, en varð svo smám saman leið á honum. Vesalings maðurinn, sem auðvitað var sár og leiður, fékk allt í einu þá flugu í kollinn, að Jane væri njósnari. Sólheitan sumardag breyttist grunur hans í fullvissu. Hann sá Jane Horney leiðandi þýzkan hermann. Þau höfðu staðnæmzt fyrir utan banka nokkurn, Þjóðverjinn hafði farið inn og komið út eftir stundarkorn. Jane Horney var dæmd til dauða í Kaupmannahöfn. Hún hafði tekið á móti peningum, og hlaut þvi að vera njósnari. Seinna kom það á daginn, að Þjóðverjinn var að gera hús- HVAR? HVAÐ? HVENÆR? KJÖTBOÐIR HEITT KJÖT MÖTUNEYTI KALT KJÖT SJÚKRAHOS BACON Alltaf! PÖKKUNARST. OST SKIP ÁLEGG - HÖTEL BRAUÐ SKÖLAR FISK MEÐ SJÁLFBRÝNARA - ÞARF ALDREI AÐ SMYRJA H. J. SVEINSSON H.F. Hverfisgötu 82 - Sími 11-7-88 rannsókn í bankanum. Dó Jane Horney saklaus? Ef til vill. Að minnsta kosti er það staðreynd, að henni heppnaðist að bjarga allmörgum Gyðingum úr klóm nazista og hún kom því til leiðar, að frægur og mikils metinn meðlimur í dönsku and- spyrnuhreyfingunni var látinn laus úr herbúðum nazista. Hún tefldi djarft, og það kom henni i koll. IÍJARKMIKIL KONA Aðfaranótt 10. febrúar 1960 var Djamila Boupacha handtek- in og flutt til bækistöðvanna í E1 Biar i Algier. Það er i raun og veru rangt að kalla hana njósnara. Réttara væri að kalla hana uppreisnar- mann, en í augum Frakka var hún njósnari. Risavaxinn hershöfðingi sló hana niður — Viðurkennið ,að þér njósn- ið fyrir frelsishreyfinguna. Djamila svaraði engu. Þá er komið inn með mág hennar Abdelli. Hann liristist allur og getur ekki talað, vegna þess að hann hefur sætt raf- magnspyndingum i þrjá rklukku- stundir samfleytt. — Eruð þér aðili að frelsis- hreyfingunni? — Já svarar Djamila. Komnir aftur Rafknáinn SKURÐHR- HNÍFUR VXKAN 34. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.