Vikan

Tölublað

Vikan - 09.09.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 09.09.1965, Blaðsíða 32
* Sphupnap Stjörnuspáin gildir frá fimmtudcgi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vinkona þín er óánægð með hlutskipti sitt og hyggst breyta verulega um. Láttu hana hjálpa þér áður, eins og þið hafið hugsað ykkur. Gættu framkomu þinnar í hvívetna og reyndu að láta fólk bera virð- ingu fyrir þér. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður að sjá af hlut sem þér er mjög annt um. Þú verður 1 miklu fjölmenni um helgina og gleym- ir öllum áhyggjum sem að þér hafa steðjað. Taktu ekki neinar bindandi ákvarðanir, þótt lagt sé að þér. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Gættu þess að þvermóðska og sérvizka ráði ekki gerðum þínum í ákveðnu máli, til þess er allt of mikið í húfi. Þú þreytir þína nánustu með því að klifa alltaf á því sama. Hugsaðu betur um skyldu- störf þín. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Vinnufélagi þinn sýnir þér mikiö trúnaðartraust sem kemur þér nokkuð á óvart. Ef þú með nokkru móti getur aðstoðað vin þinn þá skaltu gera það. Þú verður fyrir barðinu á úrillri manneskju. Reyndu að taka því þegjandi. ©Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): • Margar tafir hafa orðið á því að þú gætir verið við áhugamál þitt. Þú berð góðan árangur í býtum fyrir sameiginleg átak nokkra kunninkja þinna. Þér __verður sýndur óvæntur vináttuvottur. £££1* t' >d' '• * I l • ■■ Á •■«? * 'r' i '*} U w 4 ©MeyjarmerkiS (24. ágúst — 23. september): Þú verður að taka þér á hendur ferð sem er þér á móti skapi. Ýmsir erfiðleikar steðja að þér, sér- staklega í sambandi við fjármálin. Þú verður fyrir drengilegri aðstoð eldri manns sem vill þér vel. s . • : y • < • ' * U P 'i 9 '* 1 < i* Vogarmerkið (24. september — 23. október): Sökum kunnáttu þinnar og aldurs verðurðu að gerast foringi fyrir vissum hópi sem reyndist þér nokkuð erfiður. Þú verður fyrir smávegis fjárhagslegum ábata, vegna klækja eins kunnlngja þíns. Heilla- litur er rauður. DrekamerkiS (24. október — 22. nóvember). þú hefur mann í þjónustu þinni sem er sérhlífinn. Þú getur látið hann vinna mjög vel ef þú beitir lagni við hann. Gott útlit er fyrir að þú gerir hag- kvæm viðskipti. Gættu þess að borða ekki of mikið. Begmannsmerkið 23. néveKber — 21. desember): Seinni hluti vikunnar verður þér nokkuð minnis- stæður vegna heimsóknar á stað sem þú hefur ekki gist áður. Vegna forfalla annarra kemstu í mjög skemmtilegt ferðalag. Þú færð fréttir af kærkomn- um aðila. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Viss persóna beitir þig talsverðu óréttlæti, sem þú færð ekki leiðrétt fyrr en síðar meir. Þú verður að sjá af hlut sem þú heldur upp á. Miskllð innan fjölskyldunnar veldur þér nokkrum erfiðleikum. ®VatnsberamerkiS (21. janúar — 19. febrúar): Ungur maður hefur mikinn áhuga á að komast f samband við þig vegna þekkingar þinnar á vissu sviði. Varastu að vera of ánægður með þig og vera mannblendinn um of. Þú ert líklegur til að láta einhvern snuða þig. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Maður sem þú varst búin að gleyma sprettur nú fram í sviðsljósið og endurnýjar gamlan kunnings- skap ykkar. Þú hefur einstakt tækifæri til að gera góð viðskipti. Amor kemur nokkuð við sögu. 22 VIKAN 36. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.