Vikan - 16.09.1965, Side 24
Ferðafiifinusla hjá SÖG8
GREYMUND
SAGA selur flugfarseðla um
allan heim með Flugfélagi ís-
lands, Loftleiðum, Pan Ameri-
can svo og öllum öðrum flug-
félögum.
SAGA hefur aðalumboð á ís-
landi fyrir dönsku ríkisjórn-
brautirnar.
SAGA hefur aðalumboð fyrir
ferðaskrifstofur allra norrænu
ríkisjórnbrautanna (Danmörk,
Finnland. Noregur og Sví-
þjóð).
SAGA hefir söluumboð fyrir
Greyhound langferðabílana
bandarísku.
SAGA hefur aðalumboð fyrir
Europa Bus — langferðabíla-
samtök Evrópu.
SAGA hefur ennfremur sölu-
umboð fyrir bandaríska lang-
ferðabílafyrirtækið Continent-
al Trailways.
SAGA selur skipafarseðla um
allan heim.
FBRÐASKRIFSTOFAN Kynnið ykkur hinar hagkvæmu fT
(einstaklings) ferðir okkar til fjöl-
margra landa og biðjið um ferða-
bækling.
Ingdlfsstræti gegnt Gamla Bíói — Símar 17600 og 17560.
VIKAN 37. tbl.
*
4
'hU war
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Frítími þinn verður fyrir nokkurri skerðingu sök-
um veikinda starfsfélaga þinna. Þú færð 1 hendur
verkefni þar sem þú lætur eiginhagsmunasjónar-
mið ráða um ákvarðanir þínar. Vertu ekki úti
seint á kvöldin.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú færð fréttir 1 vikunni sem flestir aðrir en þú
myndu leggja aðra merkingu í. Það er hætta á að
þetta leiði til nokkurs misskilnings, en þú færð
innan skamms uppreisn. Vertu varkár í viðskiptum.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Það verður mikið að gera hjá þér þessa viku og
hætt við að þú sinnir ekki öllu sem skyldi, reyndu
að láta það ganga fyrir sem nauðsyhlegt er og láttu
það skemmtilegra bíða. Ókunn persóna kemur tals-
vert við sögu.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí);
Þú neyðist til að éta ofan i þig orð er þú viðhafðir
um vissa hluti fyrir skömmu. Ef þú ert ekki með
neina útúrdúra þarf þetta ekki að verða svo erfitt.
Þú öfundar félaga þinn lítilsháttar vegna góðrar
aðstöðu hans.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Fyrri hluti vikunnar hefur ekki upp á neitt sér-
stakt að bjóða en líkur eru til að vikulokin færi
þér verkefni sem þarfnast mikillar yfirlegu og vand-
virkni. Laugardagurinn er mikill happadagur fyrir
kvenfólk.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Einhver óánægja ríkir í sambandi við ferðalag sem
þú ferð í, líklega í sambandi við veður eða farkost.
Félagar þínir verða mjög vel upplagðir og skemmti-
legir svo þú skalt ekki láta neinar hrakspár aftra
þér.
m
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú verður í góðu skapi og til í allt, enda hefurðu
fengið óvenjugóð meðmæli frá persónu sem þú met-
ur mikils. Þú verður að hagræða frítíma þínum dá-
lítið til að allir geti notið réttar síns.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember).
Það verður fremur lítið um stjórnsemi á vinnustað
þínum, yfirmenn þínir verða annaðhvort ekki við
eða erlendis. Þú skalt nota tímann vel til að kynna
þér gang ýmissa mála.
Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Einhverjum ákveðnum þætti í þínu daglega lífi lýkur
gð og þú tekur við nýjum verkefnum og gömlum. Þú
átt mikið annríki framundan og munt una þér mjög
vel við að koma 1 lag hlutum, sem þú hefur trassað
undanfarið.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar);
Þú hefur mjög góða aðstoð sem stendur og skaltu
nota hana miklu betur en þú gerir og beita stjórn-
semi þinni. Þú ferð í ferðalag sem endar fyrr og
Öðruvísi en skyldi, en samt hefurðu nokkra ánægju
af því.
Vatnsberamerkið (21. janúar —- 19. febrúar):
Armæðuhjal ættingja þíns fer í taugarnar á þér, en
ef þú vilt halda friðinn verðurðu að hlusta þolinmóð-
ur á. Þú færð ágæta hugniynd, sem margir munu
verða aðnjótandi og þakklátir fyrir að þú kemur
í framkvæmd.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú vinnur störf þín mjög vel og hefur ágæta fram-
komu, en það er eitthv.að í fari þínu sem er óað-
laðandi og þú settir að keppa að að komast að því
sem fyrst hvað er. Maður nokkur reynir að hafa
af þér verðmæti.