Vikan

Útgáva

Vikan - 16.09.1965, Síða 24

Vikan - 16.09.1965, Síða 24
Ferðafiifinusla hjá SÖG8 GREYMUND SAGA selur flugfarseðla um allan heim með Flugfélagi ís- lands, Loftleiðum, Pan Ameri- can svo og öllum öðrum flug- félögum. SAGA hefur aðalumboð á ís- landi fyrir dönsku ríkisjórn- brautirnar. SAGA hefur aðalumboð fyrir ferðaskrifstofur allra norrænu ríkisjórnbrautanna (Danmörk, Finnland. Noregur og Sví- þjóð). SAGA hefir söluumboð fyrir Greyhound langferðabílana bandarísku. SAGA hefur aðalumboð fyrir Europa Bus — langferðabíla- samtök Evrópu. SAGA hefur ennfremur sölu- umboð fyrir bandaríska lang- ferðabílafyrirtækið Continent- al Trailways. SAGA selur skipafarseðla um allan heim. FBRÐASKRIFSTOFAN Kynnið ykkur hinar hagkvæmu fT (einstaklings) ferðir okkar til fjöl- margra landa og biðjið um ferða- bækling. Ingdlfsstræti gegnt Gamla Bíói — Símar 17600 og 17560. VIKAN 37. tbl. * 4 'hU war Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Frítími þinn verður fyrir nokkurri skerðingu sök- um veikinda starfsfélaga þinna. Þú færð 1 hendur verkefni þar sem þú lætur eiginhagsmunasjónar- mið ráða um ákvarðanir þínar. Vertu ekki úti seint á kvöldin. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú færð fréttir 1 vikunni sem flestir aðrir en þú myndu leggja aðra merkingu í. Það er hætta á að þetta leiði til nokkurs misskilnings, en þú færð innan skamms uppreisn. Vertu varkár í viðskiptum. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Það verður mikið að gera hjá þér þessa viku og hætt við að þú sinnir ekki öllu sem skyldi, reyndu að láta það ganga fyrir sem nauðsyhlegt er og láttu það skemmtilegra bíða. Ókunn persóna kemur tals- vert við sögu. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Þú neyðist til að éta ofan i þig orð er þú viðhafðir um vissa hluti fyrir skömmu. Ef þú ert ekki með neina útúrdúra þarf þetta ekki að verða svo erfitt. Þú öfundar félaga þinn lítilsháttar vegna góðrar aðstöðu hans. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Fyrri hluti vikunnar hefur ekki upp á neitt sér- stakt að bjóða en líkur eru til að vikulokin færi þér verkefni sem þarfnast mikillar yfirlegu og vand- virkni. Laugardagurinn er mikill happadagur fyrir kvenfólk. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Einhver óánægja ríkir í sambandi við ferðalag sem þú ferð í, líklega í sambandi við veður eða farkost. Félagar þínir verða mjög vel upplagðir og skemmti- legir svo þú skalt ekki láta neinar hrakspár aftra þér. m Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú verður í góðu skapi og til í allt, enda hefurðu fengið óvenjugóð meðmæli frá persónu sem þú met- ur mikils. Þú verður að hagræða frítíma þínum dá- lítið til að allir geti notið réttar síns. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember). Það verður fremur lítið um stjórnsemi á vinnustað þínum, yfirmenn þínir verða annaðhvort ekki við eða erlendis. Þú skalt nota tímann vel til að kynna þér gang ýmissa mála. Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember): Einhverjum ákveðnum þætti í þínu daglega lífi lýkur gð og þú tekur við nýjum verkefnum og gömlum. Þú átt mikið annríki framundan og munt una þér mjög vel við að koma 1 lag hlutum, sem þú hefur trassað undanfarið. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Þú hefur mjög góða aðstoð sem stendur og skaltu nota hana miklu betur en þú gerir og beita stjórn- semi þinni. Þú ferð í ferðalag sem endar fyrr og Öðruvísi en skyldi, en samt hefurðu nokkra ánægju af því. Vatnsberamerkið (21. janúar —- 19. febrúar): Armæðuhjal ættingja þíns fer í taugarnar á þér, en ef þú vilt halda friðinn verðurðu að hlusta þolinmóð- ur á. Þú færð ágæta hugniynd, sem margir munu verða aðnjótandi og þakklátir fyrir að þú kemur í framkvæmd. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú vinnur störf þín mjög vel og hefur ágæta fram- komu, en það er eitthv.að í fari þínu sem er óað- laðandi og þú settir að keppa að að komast að því sem fyrst hvað er. Maður nokkur reynir að hafa af þér verðmæti.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.