Vikan - 16.09.1965, Síða 42
SANAMAT
nuddtækin frá Sanamat-verksm.
Frankfurt/Main sameina alla
beztu kosti slíkra tækja í sam-
ræmi við nýjustu tækni. Stillan-
legur vibrationsstyrkleiki og 7
fylgihlutir auðvelda margskon-
ar notkun — auka velliðan, eyða
þreytu, mýkja og styrkja.
Örugg gæði. — Mjög hagstætt
verð. — Ábyrgð á hverju tæki.
3 gerðir fyrirliggjandi.
EINKAUMBOÐ:
Veriliioin LAMPINN Laugavegi 68 — Sími 18066.
SlMI 11400
KJIÍKLINGAR
KJÚKLINGUR AU POTO BLANC
2 kjúklingar, 100 gr. smjör, 1 kg. sveppir, 1 matsk. hveiti, 2 dl. hvítt
portvín, salt, pipar, % 1. rjómi, langt brauð.
Þetta er, eins og sjá má af uppskriftinni, veizlumatur, eða til Þess
bendir a. m.k. verðið, þótt ekki sé litið nema á rjómann og sveppina.
En hann er þannig gerður: Kjúklingarnir hreinsaðir og skornir í stykki.
Sveppirnir þvegnir og blandað í hveitið. Smjörið brúnað í pönnu og
kjúklingastykkin steikt í því. Þá er helmingnum af portvíninu bætt
í og kjúklingarnir látnir malla í hálftima. Sveppunum bætt í og hitinn
aukinn, en hrært vel í svo að hveitið og sveppirnir samlagist vel. Krydd-
ið og afgangurinn af vininu sett í, hitinn minnkaður aftur og látið
sjóða í 20—30 mín. í viðbót. Rétt áður en rétturinn er borinn fram er
rjómanum hellt í sósuna. Svolítilli persilju stráð yfir og löng, frönsk
brauð borin með.
SUMARKJÚKLINGUR
2 kjúklingar, söxuð persilja, esdragonblöð, laukur, salt, pipar. Smjör
eða smjörlíki til að brúna úr. Vatn eða kjötsoð, rjómi. Litlar baunir,
tómatar, franskar kartöflur.
Kjúklingarnir nuddaðir að innan og utan með salti og pipar og fyllt-
ir með söxuðum lauk, persilju og esdragon. Brúnaðir I smjörinu með
lifrinni og hjartanu, sem skorið hefur verið í smábita. Hellið soðinu
og rjómanum smám saman yfir og látið kjúklingana malla þar til Þeir
eru meyrir og hafið þétt lok á pottinum. Grænmetinu raðað utan með,
þegar kjúklingurinn er settur á fatið. Sósan og franskar kartöflur born-
ar með.
PAPRIKAKJÚKLINGUR
2 stórir kjúklingar, 100 gr. smjör, 3 dl. saxaður laukur, 1 matsk.
paprika, 1 matsk. salt, % tsk. pipar, 14 dl. hænsnasoð, 1 dl. súr rjómi,
laussoðin hrisgrjón eða kartöflur.
Kjúklingarnir soðnir í stykki. Laukurinn brúnaður og tekinn upp
úr smjörinu á pönnunni áður en kjúklingarnir eru settir í feitina og
brúnaðir á öllum hliðum. Þegar þeir eru vel brúnir er paprikunni stráð
yfir og lauknum bætt aftur í. Öllu hrært varlega saman og hænsnasoð-
inu hellt yfir, og allt látið malla þar til kjötið er meyrt. Tekið af pönn-
unni og látið í djúpt fat. Súra rjómanum hellt i sósuna, sem svo er
krydduð og hellt yfir kjúklingana.
LINDBERG-KJÚKLINGAR (grillsteiktir)
2 kjúklingar, olivenolía, salt, pipar, basilikum. Sósan: Hjarta og lifur
úr fuglum, vatn, 2 dl. hvítvin, % tsk. basilikum, nokkrir tómatar og
tómatsafi, hvitlaukur.
Skerið kjúklingana langsum, þannig að hryggurinn losni frá. Hálfu
kjúklingarnir þerraðir vel, nuddaðir með olíunni og nýmöluðum piparn-
um og basilikum. Lagðir á heita grillristina, sem pensluð hefur verið
með olíu og settir undir grillið. Eftir 20 min. er grófu salti stráð á og
kjúklingarnir látnir vera áfram þar til þeir eru gullinbrúnir og stökkir.
öðru hverju eru þeir penslaðir með olíunni. Þá er hjartað og lifrin soðin
i vatni, fleytt ofan af hvitvíninu og tómötunum og tómatsafanum bætt
í (tómatarnir skornir í bita). Hvítlaukur eftir smekk settur í. Látið sjóða
meðan kjúklingurinn grillerast. Hjartað og lifrin tekin upp úr, sósan
jöfnuð svolítið upp og krydduð ef með þarf. Borin með kjúklingunum,
ásamt grænu salati og löngum, frönskum brauðum.
INDVERSKUR KARRYKJÚKLINGUR
1 stór kjúklingur, 2—3 gulrætur, 1 stór laukur, 1 búnt persilja, salt,
hveiti, 50 gr. smjör, svolítill hvitlaukur, 1—2 stórir laukar, 2—3 matar-
epli, 1—2 tsk. karrý, salt, pipar, 2 matsk. hveiti, kjötsoð, rjómi. Með
þessu á að bera: Laussoðin hrisgrjón, saxað, harðsoðið egg, mango-
chutney, saxaðar, saltaðar peanuts, tómatchutney, sultaða perlulauka,
ristað kókósmjöl, harðsteikta baconbita, smjörsteikta banana.
Látið kjúklinginn sjóða meyran í litlu, léttsöltuðu vatni, bætið gul-
rótum í og eina stóra lauknum og persiljunni. Fjarlægið skinnið, skerið
kjötið frá beinunum og í stykki. Veltið þeim upp úr hveitinu og brúnið
í smjörinu. Takið kjúklingana upp úr og látið saxaðan hvítlaukinn,
smáskorna laukana og eplabitana í. Látið Þð malla þar til það er meyrt
í smjörinu. Stráið karrý, salti, pipar og hveiti út á og þynnið með soð-
inu, þar til sósan er hæfilega þykk. Litlar skálar eru fylltar af því, sem
talið er upp að eigi að bera með kjúklingnum, og þeim raðað i kringum
fatið.
gg VIKAN 37. tbl.