Vikan - 07.10.1965, Qupperneq 2
í FULLRI flLVÖRU
Þó að sfa sé sett á sigarett
una má
ekki fórna bragðinu.
Reynið því
L&M
Sagan um
Veginn
Bifreiðaeigendur hrukku ó-
notalega við, þegar þau boð
gengu yfir landslýðinn að setja
ætti upp tollhlið við Yeginn á
íslandi (KeflavíkurVeginn) og
heimta sérstakt gjald af öllum
þeim, sem um veginn fara.
Á það hefur margfaldlega ver-
ið bent á opinberum vettvangi,
að ekki er eytt til vegamála nema
hluta af þeim tekjum, sem rik-
issjóður hefur af sölu bifreiða
og bifreiðavara. Þetta er að sjálf-
sögðu óviðunandi ástand, því
það er ekki svo litið.'sem liver
meðal bifreiðaeigandi greiðir til
vegamála i gegnum beinan rekst-
ur bilsins, fyrir utan beina skatt-
lagningu af honum.
Hvenær á að hætta að plokka
íslenzka bifreiðaeigendur? Er
ekki nóg, að greiða skuli gifur-
legan toll til rikisins við kaup
á nýjum bíl, af hverjum bensín-
lítra, af hverjum smávarahlut?
Á líka að borga sérstaklega fyrir
að fá að aka ákveðna leið, af
því hún hefur verið g'erð for-
svaranlega úr garði? Er þetta
hægt? Getur hið opinbera leyft
sér þetta? Er þetta ekki stór-
hættulegt fordæmi, sem verður
að kveða niður sem fyrst? Færa
þessir aðilar sig ekki upp á
skaftið, þar til hver sléttur veg-
arspotti á landinu verður sér-
staklega skattlagður? Hve mikill
hluti af þessum skatti fer i gerð
og viðhald tollhliða og til launa
starfsliðs í þau, sem verður
væntanlega að vinna á vöktum
— nema svo að loka eigi góðu
vegunum yfir nóttina?
Bifreiðaeigendur á íslandi hafa
lengi orðið að sætta sig við að
greiða möglunarlaust stórfé til
vegamála, i þeirri von að ein-
hvern tíma verði gert eitthvað
til að laga vegina varanlega, en
þegar það er gert fyrir þeirra
fé og heimtað af þeim fé fyrir,
fer hrollur um þá. Þeir sem
stjórna þessum málum ættu að
minnast þess, að góðir fjármenn
rýja sauði sina, en flá þá ekki.
S.H.