Vikan - 07.10.1965, Page 7
heyrðist styggðarorð milli for-
eldra minna. Kannske það hafi
að miklu leyti verið móður minni
að þakka, því hún lét föður minn
ávallt ráða og hjá þeim höfðum
við systkinin það mjög gott.
Foreldrar mannsins mínsskildu
og hann er ákaflega bitur og hon-
um finnst ég gera of mikið fyrir
börnin okkar. Ég vil gera allt til
að þau geti minnzt áranna í for-
eldrahúsum með ánægju og gleði
og reyni að láta allt ganga eins
létt og vandræðalaust og mér er
mögulegt. En það er oft erfitt,
sérstaklega upp á síðkastið, því
maðurinn minn er orðinn svo
þver og þögull að það hefur
slæm áhrif á allt heimilislífið.
Hvernig á ég að lagfæra á-
standið?
Óhamingjusöm.
Mér liggur við að segja að þú
hafir þegar gert allt of mikið.
Friður og ró er gott, en ekki ef
það er keypt of dýru verði.
Það segir sig sjálft að það verð-
ur að hugsa um fleira en aðeins
það, að friður ríki ávallt á heim-
ilinu. Kannske er maðurinn þinn
hreinlega orðinn þreyttur á að
mæta aldrei mótspyrnu, eða að
honum finnist friðurinn orðinn
leiðinlegur. Ég álít að allir hafi
gott af að eiga sínar ákveðnu
skoðanir á málunum og að það
geri engum skaða þótt þær séu
látnar í ljós endrum og eins.
Hugsaðu þér heiminn, sem börn-
in þín eiga eftir að lifa í. Það
gerir þeim áreiðanlega engan
skaða að vita, að hverjum manni
er frjálst og nauðsynlegt að láta
heyra í sér og fallast ekki ávallt
þegjandi á skoðanir annarra.
Börn eru órtúlega skarpskygn,
og það er ekki að vita nema þau
líti á framkomu þína sem ein-
hvernskonar óheiðarleika eða
jafnvel ragmennsku. Það er líka
alls ekki víst að það sé réttlátt
gagnvart manninum þínum að
börnin læri að það megi aldrei
andmæla honum.
Ég mundi ráðleggja þér að
breyta framkomu þinni á heim-
ilinu smátt og smátt, og vita
hvort ekki lagast heimilislífið.
SEGÐU ÞAÐ MEÐ BLÓMUM.
Segðu mér, Póstur minn, hvað
rétt er í málinu með blómin. Ég
hef heyrt að það sé álitið gott
að hafa lifandi blóm inni hjá
sjúklingum á sjúkrahúsum, og í
svefnherbergjum á heimilum. En
þetta er mér sagt að eigi aðeins
að vera á daginn, en nauðsynlegt
sé að flytja út á nóttunni. Mér
hefur ekki tekizt að skilja þetta
almennilega, og langar til að
komast að því sanna og rétta.
Fróðleiksfús.
Það eru áhrif ljóssins á plönt-
urnar, sem gera mismuninn.
Grænu blöðin á plöntunum
breyta kolsýru í kolefni, og til
þess þarf sólar- eða dagsljós. Kol-
sýran er áhrifalaus lofttegund og
henni andar maðurinn frá sér.
Þessi efnabreyting er köll-
uð fótósyntesa á tæknimáli, og er
annars svona: 6CO2 (Kolsýra!
+ 6H0O (Vatn) + . ljósorka
CfiHi 20« (sykur) + 602 (súr-
efni). En ef ljósmagnið er ekki
nægilegt, þá nota plöntumar aft-
ur á móti súrefni, með þeim af-
leiðingum að loftið í herberginu
verður verra. Sjálf blómin og
þeir hlutar plöntunnar, sem ekki
eru grænir, nota líka súrefni —
allan sólarhringinn.
Eins og sýnt er með formúl-
unni hér að framan, þá framleiða
plönturnar sykur til eigin notk-
unar, og það er kannske gaman
að vita að reiknað hefur verið
út að allar plöntur heim fram-
leiði um 150 milljón tonn sykurs
árlega. Til samanburðar má
benda á að allar stálverksmiðj-
ur heims framleiða „aðeins“ 350
milljón tonn á ári.
GUILIANO UPPTEKINN.
Kæra Vika!
Við erum hér tvær, sem fór-
um á kvikmyndina „Angelique".
Þar sáum við lekarann Guiliano
Gemma og urðum hrifnar af hon-
um.
Okkur þætti vænt um ef þú
gætir frætt okkur eitthvað um
hann og helzt að birta heimilis-
fangið hans.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna. Stöllur.
Því miður höfum við ekkert á
reiðum höndum um Guiliano
Gemma, en við skulum hafa ykk-
ur bak við eyrun, ef eitthvað rek-
ur á fjörur okkar. Hins vegar
er okkur óljúft að ljóstra upp
um heimilisfang mannsins, því
okkur er mjög annt um heimil-
isfrið hans.
CENTRIFUGAL
MODEL620
Fallegri — Fullkomnari
AL-SJÁLFVIRK:
Með aðeins einum
hnappi veljið þér hið
rétta þvottakerfi,
hvort sem um er að
ræða fínlegasta og
viðkvæmasta tau eða
það grófasta og
óhreinasta — og
CENTRIFUGAL-WASH
þvær, hitar eða sýður,
skolar og þeytivindur
eftir fullkomnustu
aðferðum, sem kunnar
eru.
CENTRIFUGAL-WASH er fallegri - það sjóið þér straxl
CENTRIFUGAL-WASH er fullkomnari:
☆ þvottakerfi fyrir allan þvott, einnig þann viðkvæmasta ☆ nýtt þvotta-
kerfi „SUPER-suðuþvottur" fyrir óhreinasta tauið ☆ hitastýrður forþvottur
☆ sjólfstæður auka-forþvottur, skolun eða þeytiþurrkun, ef óskað er ☆
marg-skolar ( mismunandi vatnshæð og gegnumrennsli ☆ sérlega góð
„tvívirk" þeytiþurrkun ☆ aðeins einn stjórnhnappur, þrótt fyrir fleiri
möguleika ☆ merkjaljós sýna þvottagang og hitastig ☆ sópuskammtar
settir í strax — vélin skolar þeim sjólf niður ó réttum tfma ☆ ytra barna-
öryggislok, sem til npikilla þæginda notast einnig sem fyllingar- ag
tæmingarborð og gerir vélina fallegri útlits ☆ bezta efni: nælonhúðuð
að utan — fínslípað ryðfrítt stól að innan ☆ hljóður gangur ☆ þarf ekki
að festast niður með boltum ☆ auðveld tenging ☆ íslenzkur leiðarvfsir.
CENTRIFUGAL-WASH - fallegri - fullkomnari.
Sannreynið við samanburð.
Komið, skrifið eða útfyllið úr-
klippuna, og við munum leggja
okkur fram um góða afgreiðslu.
O KORliRUP HAlfEl F
S í M I 2-44-20 - SUÐURGATA 10 - REYKJAVÍK
Sendum
um allt
land.
Sendið undirrit. mynd af CENTRIFUGAL-WASH með nónari upp-
lýsingum, m. a. um verð og greiðsluskilmála.
Nafn:................................................................
Heimiliífang: .......................................................
Til: FÖNIX S.F. Pósthólf 1421, Reykjavfk. V-40
VIKAN 40. tbl. rj