Vikan

Útgáva

Vikan - 07.10.1965, Síða 20

Vikan - 07.10.1965, Síða 20
Napóleon var einn þeirra, l) sem slapp undan hinum hefni- gjörnu Prússum, þótt svo hann yrði að skilja eftir einkavagn sinn, sem var ósamt öðru fermd- ur með miklum fjórsjóði dem- anta. WATERLOO ar yfir Sambre og sópuðu burt þeim prússnesku framvörðum, er reyndu að þvælast fyrir þeim. Napóleon hafði skipt liðinu í tvær meginfylk- ingar og beindi sókninni í áttina að Brussel. Um kvöldið, þegar hann stöðvaði herinn til næturhvíldar, var hann þegar kominn góðan spöl framhjá Charleroi. Keisarinn snæddi kvöldverð með Ney marskálki og fór svo að hátta. Draumspakur hefði hann mátt vera hefði honum í svefninum boð- ið í grun, hve langt komnir and- stæðingarnir voru með að færa hon- um sigurinn í hendur, annar með of miklu óðagoti en hinn með ívið mikilli varúð. Blucher var röskleika gamalmenni og óður í blóð og bar- daga. Hann hafði þegar látið meg- inhluta liðs síns, um áttatíu og þrjú þúsund manna, sækja langt fram úr Bretunum. Napóleon hefði ekki þurft að gera nema eitt myndar- legt áhlaup til að gera út af við Prússana áður en bandamenn þeirra gætu komið þeim til hjálp- ar. Wellington tók hinsvegar l(f- inu rólega í Brussel og beið nánari upplýsinga af framsókn Frakka. Honum var mjög f mun að bægja öllum ótta frá íbúum hinnar belg- ísku höfuðborgar, og því skrýdd- ust hann og aðstoðarforngjar hans viðhafnarbúningum og mættu í dýr- legri veizlu, sem hertogaynjan af Richmond hélt. Um miðnætti frétti Wellington, að Napóleon stefndi til Brussel og væri kominn miklu lengra áleiðis en búizt hafði verið við. Hertoginn skipaði þá liðsfor- ingjum sfnum hverjum á sinn stað og sagði við hertogann af Rich- mond: „Napóleon hefur leikið á mig, sá skratti! Hann hefur haft af mér tuttugu og fjórar klukkustund- 2Q VIKAN 40. tbl. ir". Gestgjafi hans spurði hvað nú væri til ráða og Wellington svar- aði: ,,Eg hef skipað hernum að safnast saman á Quatre Bras. En við stöðvum hann ekki þar; við berjumst við hann hér". Hann vék sér að landabréfi á veggnum og benti á hæðarhrygg rétt sunnan við þorpið Waterloo. Að morgni þess sextánda steig Napóleon á bak hesti sínum, er Desirée hét, og þeysti af stað til að kanna liðssafnað Prússa. Hann sá að hann hafði lið miklu meira og ákvað auðvitað að neyta þess. Ney marskálkur skyldi hertaka hin mikilvægu gatnamót við Quatre Bras og ráðast síðan á Prússana frá hlið. Seinna myndu þeir svo dusta Wellington til. Nálægt nóni hóf Napóleon á- hlaupið með um þrjátíu og fimm þúsund manna liði. Barizt var af mikilli grimmd, enda var ætlunin að greiða prússneska hernum slíkt högg, að hann þyrfti ekki fleiri. Frakkar hröktu Prússa að visu strax úr nokkrum framvarðarstöðvum, en engu að síður dróst orrustan fram eftir kvöldi. [ bænum Ligny var bar- izt um hvert hús og limgerðin og trjágarðarnir í nágrenninu ötuðust blóði og reyk. Á meðan hafði átta þúsund manna lið niðurlenzkt tekið sér stöðu á Quatre Bras til að taka á móti Ney, sem þangað var vænt- anlegur með nærri þrefalt fleira lið. Wellington var sjálfur þangað kominn, en næstu brezku hersveit- irnar voru hinsvegar nokkurra klukkustunda göngu í burtu. En Ney var var um sig. Hann þekkti vel það bragð Wellingtons, að hafa meginhluta liðstyrks sfns í felum þangað til á úrslitastund. Frakk- arnir, sóttu því fram með ítrustu varúð. Það var ekki fyrr en hálf þrjú síðdegis, að framvörðum Neys lenti saman við Hollendingana og Belgana á engjunum og skógunum utan við þorpið. Orðstír Welling- tons, en ekki her hans, hafði hald- ið krossgötunum fyrir Frökkum all- an fyrrihluta dagsins. Niðurlendingarnir vörðust Ney af mikilli hörku, en voru þó að því komnir að gugna fyrir ofureflinu er fyrstu brezku hersveitirnar komu á vettvang. Forustu þeirra hafði á hendi einn bezti liðsforingi Well- ingtons, Sir Thomas Picton, sem allt- af var klæddur gömlum yfirfrakka og pípuhatti, hvort heldur var í borgaralegri tilveru eða á vígvelli, „mesti ruddi og blótkjaftur, sem nokkru sinni hefur verið uppi", eftir því sem Wellington sagði. Þessi vígfúsi sérvitringur hafði í sinni fylgd meðal annarra þrautreynda garpa úr spænska stríðinu og skozka Hálendinga, sem gengu ( orrustuna við sekkjapípuundirleik. Þeim tókst um síðir að stöðva sókn Neys. Honum hefði þá ef til vill tekizt að rétta við bardagann og rjúfa herlínu Wellingtons, ef hroðalegt glappaskot af Frakka hálfu hefði ekki verið gert í þessari svipan. Tuttugu þúsund manna lið undir stjórn d'Erlons greifa var á leið til stuðnings við Ney, þegar einn her- ráðsforingja Napóleons stöðvaði það og beindi því áleiðis til Ligny, en þar var þá orrusta sem hörðust. Gerði herráðsforinginn þetta án þess að nokkur skipun frá Napó- leon kæmi til. D'Erlon átti skammt ófarið til Ligny þegar honum var sagt að snúa aftur til Quatre Bras — Prússar væru þá þegar sigraðir. En þegar d'Erlon loks náði tilQuatre Bras, var viðureigninni þar einnig lok- ið þann daginn. Hefði liði greifans verið beitt á öðrum hvorum vígvellin- um, hefði keisarinn líklega getað hrós- að fullum sigri þegar þetta kvöld. Við Ligny gerði Keisaralegi lífvörð- urinn, sem var einvalalið, úrslitaat- löguna. „Sá fyrsti, sem færir mér fanga, verður skotinn", sagði yfirmað- ur lífvarðarliðanna, Roguet hershöfð- ingi, áður en lagt var til atlögu, og miskunnarleysi átakanna varð eftir því. Prússarnir urðu um síðir að hörfa. Rigning með þrumuveðri skall á og gegnbleytti púður hermannanna, en þá var gripið til byssustingjanna. Prússar

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.