Vikan

Issue

Vikan - 07.10.1965, Page 21

Vikan - 07.10.1965, Page 21
Prússarnir voru lengi ó leiðinni frá Wavre, en snemma um kvöldið voru þeir þó farnir a8 láta fyrir alvöru a8 sér kveða í orrustunni. Þeir tóku þorpið Plancenoit og var þá ekki ann- að sýnna en þeim tækist að komast að baki Ney marskálkur komst einnig til Parísar, en fáum mánuðum síðar létu Búrbónar, sem þá höfðu meginhers Frakka. O tekið völd í landinu, taka þennan hjartaprúða dreng af lífi. „Gamli lifvörðurinn deyr en gefst aldrei upp". Og þeir dóu og bættust í val fimmtíu þúsund Frakka, Breta, Prússa og Niðurlend- inga, sem létu líf sitt í þessari síðustu stór- orrustu Napóleonsstyrjaldanna. O voru þá komnir að niðurlotum og Frakkarnir stungu þá niður í hrönnum. Hestur Bluchers var skotinn undir honum, og hinn vígdjarfi öldung- ur var borinn rotaður af vígvellinum. Formaður prússneska herráðsins, August von Gneisenau, tók þá ákvörðun, sem réði miklu um úrslit styrjaldarinnar. í stað þess að hörfa til stöðva þeirra, sem Prússar höfðu komið sér upp aust- urfrá við Namur og Liége, lét hann herinn halda undan norður eftir til Wavre, skammt fyrir aust- an Waterloo, þar sem skammt var til stöðva Breta. Þangað var Blucher einnig borinn. Eftir að hellt hafði verið ofan í hann gini og heitri kálsúpu, rétti hann við og tók við stjórn liðs stns. Napóleon var nú tekinn að þreytast á öllum hamaganginum og auk þess sannfærður um að sigurinn væri þegar hans, enda elti hann óvin- ina af lítilli ákefð er birti af morgni þann seytjánda júní. Þegar Emmanuel Grouchy hers höfðingi spurðist fyrir um skipanir, hreytti keis- arinn út úr sér: „Ég gef skipanir þegar mér sjálfum sýnist". Og þegar að því kom að Grou- chy fengi skipanir, voru þær meira en lítið vafasamar. Napóleon taldi að Prússar myndu hörfa austureftir til Meuse og sendi Grouchy að elta þá með þrjátíu og þrjú þúsund manna lið. En þar eð Prússarnir höfðu hörfað í allt aðra átt, komu menn Grouchys að engu haldi í þeim bardögum, sem á eftir fóru. Wellington hafði enn ekkert frétt af ósigri Framhald á bls. 30.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.