Vikan - 07.10.1965, Page 32
IIIN SÉRSTÖKU ILMKREM FRÁ AVON.
Sex ilmtegundir — indœlar, mildar og lokkandi,
við hæfi hverrar konu. Svalandi, heit og rómantísk
áhrif. Við öll tækifæri er ILMKREM ávallt það bezta.
Aðeins ögn á hndleggi háls og herðar — kremið
hverfur, en ilmurinn verður eftir lengi — lengi.
g2 VIKAN 40. tbl.
4
4
SpjQ
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú lendir í smávegis erfiðleikum í sambandi við
viðskipti. Það tekur þig nokkurn tíma að sannfæra
vissa aðila um réttmæti athafna þinna. Nokkur
aukakostnaður verður 1 sambandi við hlut sem þú
hefur til umráða.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Vikan verður mjög þægileg þótt ekki gerist neitt
sem vekur sérstaka athygli. Um helgina býðst þér
tækifæri sem þig dauðlangar að nota þér, en vegna
tillitssemi við aðra verðurðu að hætta við það.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Helgin verður mjög skemmtileg sérstaklega fyrir þá
sem ennþá eru á táningaaldrinum. Þér er ætlað að
atkasta of miklu, og þrátt fyrir mikinn dugnað
þinn færðu ekki þakkir eins og þú átt skilið.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú endurnýjar kynni þín við persónur sem þú kynnt-
ist fyrir skömmu. Þú færð heimsókn af ættingja
sem aldrei hefur gert þér þann heiður fyrr að líta
inn til þín. Þú skemmtir þér mjög vel um helgina.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Fjör og kátína félaga þinna hrífa þig og þú tekur
þátt í mjög skemmtilegum framkvæmdum með
þeim. Nokkuð mikið af tíma þínum fer 1 ekki neitt,
þér er nauðsynlegt að skipuleggja hann betur.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú ert vanþakklátur og ætlast til of mikils fyrir ekki
neitt af ákveðinni persónu. Hættu að bera upp
kvartanir við ákveðinn ættingja þinn og sýndu að
þú sért fær um að taka skynsamlegar ákvarðanir á
eigin spýtur.
þínum.
VogarmerkiS (24. september — 23. október);
Það er til mikillar háðungar hvernig þú lætur ákveð-
ina persónu líma sig við þig. Þó þú hafir að nokkru
leyti gefið henni tilefni til þess er of langt gengið.
Þú tekur ekki þátt í samkomu með kunningjum
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember).
Þú skalt ekki láta tímann fara til einskis af því
að þú bíður eftir einhverju sem þú átt fastlega von
á. Þér væri mjög hollt að skipta um umhverfi um
tíma ef þess er nokkur kostur.
©Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Þú lýkur á skömmum tíma við verkefni sem þú
ætlar þér góðan tíma til að leysa. Þú ættir að taka
til við annað samskonar, því þetta veitir þér mikla
ánægju. Notaðu frítímana til að gera það sem þér
finnst gaman að.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þér reynist mjög auðvelt að koma málum þínum
í lag á skömmum tíma þegar þú byrjar. Notaðu
þér skipulagsgáfu þína og komdu hlutunum þannig
fyrir að auðvelt sé að halda þeim í horfinu.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Fánýtir hlutir gera þér nokkurn óleik, ekki síst
vegna þess hve bágt þú átt með að trúa raunveru-
leikanum. Þú kaupir hlut. sem kemur þér ekki að
gagni nærri því strax, þó þú hafir hugsað þér það.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
©Hollur ráðgjafi þinn fær þig til þess að hætta við
áform sem hefðu getað bakað persónu sem þú held-
ur mikið upp á, stríðni félaganna. Gefðu umhverfi
þínu nánari gætur og láttu nauðsynlega hluti ekki
fara framhjá þér.