Vikan - 23.12.1965, Blaðsíða 43
ILFORD
llllt til Ijésnyndunar
Stækkunarpappír:
Plastika, margar tegundir og stærðir.
Bromide, — - — -
Multigrade, fjölgráðupappír, margar
stærðir.
Filmur: Pan F, FP-3, HP-3, HPS., 35 mm, 120, 127, 620, flatar filmur, filmur í metratali.
Efni til Ijósmyndagerðar:
Framkallarar: ID-2, ID-11, ID-19, ID-20,
Framkallari og fixer: Monophen.
Fixerar: Hypam hraðfixer, IF-2, o. m.
Önnur efni: Hypam Hardener,
Liquid acid hardener, Wetting Agent,
vatnssíur.
ID-78, P.Q. Universal o. m. fl.
fl.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
HAUKAR H.F.
GarSastræti 6, sími 16485, pósthólf 1006.
hans og systkini. Hann komst til
Bandaríkianna og stundaði þar há-
skólanám. Okkur var sagt að Eshkol
væri mjög háttsettur maður í her
landsins en sökum makalausrar fá-
freeði um mannvirðingar í herjum
yfirleitt þori ég ekki að fara með
það hvort hann var hershöfðingi
eða eitthvað annað. Enda var mað-
urinn miklu líkari prófessor en her-
manni. Hann gekk með okkur um
búið og bauð okkur fyrst að koma
í íbúð sína. Þar bjó hann með konu
sinni en börn þeirra þrjú bjuggu
í barnahúsum. íbúðin var hálft ann-
að herbergi, stofa, svefnkrókur og
eldhúskrókur. Þarna voru snotur
húsgögn, sófi, hægindastólar, bóka-
skápar, útvarp sem hann sagði vera
t hverju húsi. Eshkol var að þvt
spurður, hvað hann myndi nú taka
með sér af því sem þarna var inni
ef hann flyttist brott frá búinu.
Hann var fyrst dálítið vantrúaður á
svipinn, að nokkrum skyldi detta
svona vitlaus spurning í hug. Hann
sagði síðan, að það hefði allt eins
vel verið hægt að spyrja sig hvað
hann tæki með sér ef hann skildi
við konuna sína. Kibbútzinn væri
slíkur hluti af lífi hans að óhugs-
andi væri að ræða þann möguleika
að hann flyttist þaðan. En vildi
einhver kibbútzbóndi flytjast brott
yrði honum séð fyrir öllum nauð-
synjum, húsgögnum, fatnaði og
þessháttar.
Við heimsóttum nú barnahúsin.
Börnin búa ekki hjá foreldrum sín-
um á þessu búi, en gera það á
sumum samyrkjubúanna. Meira að
segja nýfædd börn eru ekki hjá
mæðrum sínum heldur koma þær
fimm sinnum á sólarhring í hús ný-
fæddra barna og gefa brjóst. Til
þess að það væri hægt yrði hver
fjölskylda að hafa stærra húsnæði
en þarna er skammtað. í öðru lagi
yrðu þá konurnar að hætta störfum
á búinu um skeið en þær fá þarna
ekkert orlof til að sinna sjálfar
börnum sínum fyrst eftir fæðing-
una. Heldur fara beint til starfa
aftur. Og hvaða störf vinna kon-
urnar á samyrkjubúinu? Þær vinna
heimilisstörf fyrir heildina, sjóða
mat, þvo upp, þvo þvotta, gæta
annarrá manna barna, ganga um
beina, ræsta gólf, bæta föt, eða
með öðrum orðum — fá ekki um-
flúið þessi svonefndu kvenna störf.
Og þarna lágu nýfæddu angarnir í
rúmunum sínum sem höfðu verið
sett út í skugga trjánna. Þau lágu
öll á maganum og orguðu eins og
þau ættu Kfið að leysa — í kór
auðvitað — og enginn skifti sér af
þeim og við flýttum okkur burt.
í næsta húsi voru börnin farin
að skríða. [ þarnæsta húsi voru
þau orðin tveggja ára. Þau voru
að borða morgunmatinn sinn, ein
fóstra sat með fimm börn við borð,
ósköp voru þau hljóðlát. Einn lítill
einstaklingshyggjumaður sat þó úti
í horni og talaði hátt við sjálfan
sig. Og svona flytjast börnin hús úr
húsi unz þau eru orðin stór. Hitta
foreldrarnir þá aldrei börnin sín
nema á förnum vegi? Jú, þau heim-
sækja alltaf foreldrana síðari hluta
dagsins, að loknum vinnudegi.
Við gengum þar hjá sem verið
var að gera neðanjarðarskýli. Já,
því miður er það nauðsynlegt, sagði
Eshkol. Ayelet Hashahar hefur oft
orðið fyrir árásum óvinanna, t.d.
gerðu Sýrlendingar harða hríð að
búinu í maí 1948 og sjá má leifar
óvinaflugvélar sem þá var skotin
niður og geymdar eru til minja.
Við komum í matsal kibbútzins
sem er í sérstöku húsi. Þar er mið-
depill félagslífsins. Þarna matast
allir þrisvar á dag, þarna eru allir
fundir haldnir og allar samkomur,
. .hann elskar mig ...hann elslcar mig
eklci... hann elskar mig....
VIKAN 51. tl)l. jO