Vikan - 23.12.1965, Blaðsíða 44
SSSSkkSSSmSkSSSSSmSSSSSSSSSSSSS H OIMIG
KK
**
KK
KK
KX
KK
KM
««
KK
KK
KK
KK
KK
KK
KK
KK
KK
EGGERT KRISTJÁN5SON B CO.HF. SllVII 11400
afmaelisveizlur, brúðkaupsveizlur, í
eldhúsinu við hliðina á er allur
matur búinn til bæði fyrir börn og
fullorðna. Þetta er griðarstór salur,
blærinn líkur og á kaffiteríu, dúk-
laus borð.
Kosningar til Histadrút (verkalýðs-
sambandsins) stóðu yfir þennan dag
og við sáum fólk vera að fara á
kjörstað. Það kom upp úr kafinu
að bannað er að halda kosninga-
fundi og hafa stjórnmálaumræður
á búinu. Þetta kom manni spánskt
fyrir sjónir ekki sízt þar sem ísrael
er víst eina landið fyrir Miðjarðar-
hafsbotni þar sem stjórnmálabarátt-
an er háð fyrir opnum tjöldum —
að mestu. Og hið eina af nýju rfkj-
unum, sem stofnuð eru eftir 1945,
nema kannski Indland, þar sem
margir stjórnmálaflokkar bjóða
fram og pólitískt frelsi ríkir. Og þó
var þetta í samræmi við það sem
maður hafði heyrt, að á samyrkju-
búunum væri að myndast einskon-
ar sveitaaðall. Ibúatala Israels hef-
ur þrefaldazt síðan 1949, en á sam-
yrkjubúunum búa innan við 5%
landsmanna og fer hlutfallslega
fækkandi. Helmingur þeirra sem
flutzt hafa til ísraels á þessu tíma-
bili eru frá Asíulöndum eða Norður-
Afrfku, — og á mörgum kibbútz-
anna er barist gegn því að Austur-
landa-Gyðingar setjist þar að.
Á kibbútzinum er hægt að Iifa
áhyggjulaus frá vöggu til grafar, —
aldrei þarf að kvíða matar- heimil-
is- eða atvinnuleysi, engar áhyggj-
ur af sköttum, skuldum eða eignum,
aldrei áhyggjur af að launin endist
ekki út mánuðinn, og samt fer fólk-
ið burt í risíkó stórborgarinnar, eða
eitthvað annað.
Það hefði Bjartur í Sumarhúsum
skilið.
★
Söluinaður dauðans
Framhald af bls. 15.
beið. Eftir þrjár klukkustundir velti
hún sér. Eftir fjórar opnaði hún
augun og sá hann horfa á hana.
— Ekki, sagði hún . . . Þessi
lögga. Þeir eru búnir að koma einu
sinni aftur.
— Annar þeirra er enn fyrir ut-
an, sagði Craig. — Nú ætla þeir að
fylgjast með mér. Ég sagði þér,
að þetta myndi verða þannig.
— En ég sagði þeim bara það
sem þú . . .
HOLIDAY
JOLAFRI
Hentug jólagjbf er pipa og
paKki aff HOLIDAY reyktóbaki
££ VIKAN 51. tW.