Vikan - 12.05.1966, Qupperneq 7
frelsi teljum við okkur skylt að
hafa í heiðri. Ef við munum rétt,
svöruðum við bréfinu, sem þú ert
hneykslaður út af, og gagnrýnd-
um þær skoðanir, sem þar komu
fram.
VIÐKVÆM VANDAMÁL.
Kæra Vika!
Ég sá í 2. tbl. Vikunnar að hin
mjög vinsæla hljómsveit Hljóm-
ar frá Keflavík var svívirt með
því að kalla hana leiðinlega bítla-
hljómsveit. Og ég er sammála
X.Z. að Vikan græðir ekki mikið
á því þvaðri, þegar þið eruð að
prédika um hárlubba á ungling-
um nú til dags, og ég er viss um
að allir meðlimir Hljóma eru
færir um að leika í landsliðinu
í knattspyrnu. Að lokum langar
mig til að spyrja hvaða menntun
þarf til að fá að fara í Tækni-
skólann.
J.J.J. Jónsson.
Ef einhverjir Keflavíkurdrengir
sem kalla sig Hljóma hafa bara
verið sagðir leiðinlegir, þá finnst
okkur núna að það hafi verið
tekið full grunnt í árinni.
Hérmeð birtum við inntöku-
skilyrði fyrir Tækniskólann:
Sjá auglýsingar í dagblöðum
5.—6. apríl varðandi inntökupróf
m.m.
Inntökuskilyrði fyrir Forskóla-
deild Tækniskólans.
A. Starfsreynsla:
Skilyrði til inntöku er, að um-
sækjandi hafi minnst 12 mánaða
verklega þjálfun.
Við nám í einstökum sérgrein-
um tæknifræðinnar má setja
skilyrði um allt að 12 mánaða
viðbótarþjálfun við nánar tiltek-
in störf.
Verklegrar þjálfunar má afla
með iðnnámi, eða
Með raunhæfu starfi í viðkom-
andi atvinnugrein.
Umsækjandi verður með virku
starfi að hafa kynnzt þeirri at-
vinnugrein, sem hann hyggst
leggja stund á. Þjálfunin skal
vera alhliða og veita haldgóða
þekkingu á venjulegum vinnu-
máta og vinnubrögðum.
Sé verklegrar þjálfunar aflað í
áföngum, má enginn áfangi vera
styttri en tveir mánuðir.
B. Inntökupróf og fyrri mennt-
un:
Inngöngu í forskóladeild má
veita þeim nemendum, er lokið
hafa prófi frá iðnskóla. Ennfrem-
ur geta fengið inngöngu í for-
skóladeild þeir. sem lokið hafa
miðskólaprófi og/eða gagn-
fræðaprófi.
IJmsækjendur þreyta sérstakt
inntökupróf, sem sker úr um að-
gang nemenda að forskóladeild.
Inntökuskilyrði í fyrrihluta deild
Tækniskóla:
A. Að nemandi hafi lokið prófi
frá forskóladeild eða
B. Að nemandi hafi lokið öðru
prófi er stjórn skólans tekur
gilda og fullnægi auk þess kröf-
um um starfsreynslu.
ANGELIQUE.
Herra Póstur!
Mig langar til að vita hvort sag-
an Angelique verður gefin út
þegar hún er búin í Vikunni.
Svaraðu mér nú fljótt.
Kær kveðja.
Kristín á Akureyri.
Já, Angelique verður að öllum
líkindum gefin út í bókarformi
eftir að birtingu í Vikunni er
lokið.
Blóm Vikunnar fær G.M. fyrir
eftirfarandi sögu:
1 bæ einum norður í landi bar
svo við nýlega, að hjón nokkur
létu mála svefnherbergið hjá sér,
sem varla er í frásögur færandi.
En áður en málningin var orðin
þurr, varð húsbóndanum á að
styðja lófanum á einn vegginn,
og kom þar á greinilegt far eftir
hönd hans. Var málarinn þá aft-
ur kallaður á vettvang, og þegar
hann kom heim til hjónanna, tók
húsmóðirin á móti honum svo
mælandi: „Komdu nú með mér
inn í svefnherbergið, þá skal ég
sýna þér, hvar maðurinn minn
lagði lófann í gærkvöldi".
Málaranum brá lítillega, og svo
varð honum að orði: „Ha — nei,
takk fyrir, ég held ég þiggi held-
ur kaffi“.
Fyrsta flokks fpá FÖNIXs
KÆLISKÁPAR _ FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
KÆLING er aSferðin, þegar geyma á matvæU ituttan
tíma. Þetta vita allir og enginn viU vera án kæUskáps.
FRYSTING, 1>. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stlga frost,
er auðveldasta og bezta aðferSin, þegar geyma á mat-
væii iangan tíma. Æ fleiri gera sér ljós þægindin við
að eiga frysti: fjölbrcyttari, ódýrari og betri mat, mögu-
leikana á því að búa \ baginn með matargerð og bakstri
fram í tfmann, færri spor og skemmri tíma til innkaupa
— því að „ég á það £ frystinum".
Við bjóðum yður 5 stærðir ATLAS kæUskápa, 80—
180 cm háa. AlUr, nema sá minnsti, hafa djúpfrysti-
hólf, þrir með hinni snjöUu „3ja þrepa froststiUingu",
sem gerir það möguiegt að halda miklu frosti i
frystihólfinu, án þess að frjósi neðantil í skápnum;
en einum er skipt í tvo hluta, sem hvor hefur sjálf-
stæða ytri hurð, kæli að ofan með sér kuldastillingu
og alsjálfvirka þíðingu, en frysti að neðan með eigin
froststilUngu.
Ennfremur getið þér vaiið um 3 stærðir ATLAS frystikista
og 2 stærðir ATLAS frystiskápa
Loks má nefna hina glæsilegu ATLAS viðar-kæUskápa f
herbergi og stofur. Þér getið vaUð um viðartegundir og
2 stærðir, með eða án vínskáps.
Munið ATLAS einkennin:
☆ Glæsilegt og stílhreint, nýtlzku útlit.
☆ Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand-
aSri markvissri innréttingu.
☆ Innréttingarmöguleikar með sérstökum Atlas-
búnaði.
☆ Sambyggingarmöguleikar (kæliskópur ofan á
frystiskáp), þegar gólfrými er litið.
☆ Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun.
■ír FHjóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar
á fótopnun.
ú: 5 ára ábyrgð á kerfi og traust þjónusta.
• •
Um allt þetta fáið þér frekari upplýs-
ingar, með því að koma og skoða,
skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun-
um við leggja okkur fram um góða af-
greiðslu. - Sendum um allt land. SÍMI 24420. SUÐURGATA 10. RVlK.
Sendið undirrit. ATLAS myndalista og nákvæmar upplýsingar. m.a. um verð
og greiðsluskilmála.
Nafn:..........................................................................
Heimilisfang: ......................................................
Til FÖNIX s.f., pósthólf 1421, Reykjavfk.
V-19
VIKAN 19. tbl. 7