Vikan - 12.05.1966, Page 37
r r , ,
ODYRT! ÖLLUM KAUPFELAGSBÚÐUM
gott'
”St.
JtacaÆ’Æ’JLxmjl I
IBIRGÐASTÖÐ
mótar og hann kallar mig Mr.
Barrett".
Stundum segir Barrett í gamni og
alvöru, að ellinni vilji hann eyða
sem sériffi í einhverju vesturrikj-
anna, þar sem fólk sé enn ekki
orðið nógu uppstoppað af mann-
úð og menningu til að taka glaspa-
lýðinn framyfir lögregluna. Til dæm-
is um þessa gamaldags, hreinlyndu
vesturmenn segir hann sögu af
verzlunarmanni frá Wyoming, sem
setti allt á annan endann á hóteli
einu, sem hann gisti á ( New York,
vegna þess að einhver hafði brot-
izt þar inn að honum fjarverandi
og stolið tveimur dollurum og seyt-
ján sentum. Hótelstjórinn varð stein-
hissa, því í New York eru menn
löngu hættir að gera veður út af
smáafbrotum; fyrir þau sleppa
slálkarnir með svo væga refsingu
að þeir sleppa venjulega út á stræt-
in samdægurs og þeir eru nappað-
ir.
,,Nei, þér hafið á röngu að
standa", sagði Barrett við hótel-
stjórann. „Hann er frá Wyoming og
það var einhver óviðkomandi í her-
berginu hans. Það var það sem
gerði hann óðan. Það tel ég honum
til gildis. Við hérna erum f alltof
stórum stíl farnir að ganga að þess-
háttar sem gefnu. Ég stend með
manninum frá Wyoming. Hann er
einn af þessum gömlu góðu — og
það eru ekki ofmargir af þeim eft-
ir núorðið".
☆
Arnarfell hiS mikla
Framhald af bls. 25.
enda sjálfsagt borghlaðinn, var
jafnvel á það minnzt, að nota hann
sem sæluhús fyrir ferðamenn á
Sprengisandsleið, hvort sem það
hefur nú verið gert eða ekki. Þess
má og geta, að seinna kom til tals
að náða Eyvind, ef hann næðist,
og gera hann að einskonar fjall-
vegaráðunaut vegna kunnugleika
hans á óbyggðunum, en aldrei
komst það þó ( framkvæmd.
VI.
Eitt kvöldið brugðum við okkur
að Innra-Hreysi eða Innra-Eyvind-
arkofaveri, eins og það er líka kall-
að. Það er sunnan við Hreysiskvísl-
ina, alveg á bakkanum. Lítið er nú
orðið eftir af kofunum, aðeins brot
af grjótvegg, annað er horfið. Þess
hefur verið getið til að kvíslin hafi
átt þátt í eyðingu kofans að ein-
hverju leyti. Gegnt kofarústunum
norðan við ána er gæsarétt, senni-
lega handverk Eyvindar og Höllu.
Þegar við komum þangað, voru
þar óvæntir gestir fyrir, tveir hálf-
stálpaðir tófuyrðlingar, sem tróðu
sér milli steina f veggjunum og
reyndu að fela sig, þegar þeir urðu
okkar varir, en ræfill af heiðagæs
lá á réttargólfinu. Þarna hafði sýni-
lega staðið veizla ekki alls fyrir
löngu. Fljótlega tókst okkur að
handsama yrðlingana í grjótinu,
þrátt fyrir harðvttuga mófspyrnu.
Það varð uppi fótur og fit á bökkum
Bolafljóts, þegar við komum með
þessa þeldökku gesti ( tjaldstað.
Myndavélum var brugðið á loft
sem skjótast, en gestirnir kunnu lítt
að meta slíkan heiður og höguðu
sér samkvæmt því. Það var grimmd
og tortryggni í svipnum, tillitið
hræðslublandið. Að myndatöku lok-
inni, var þeim boðið sitthvað mat-
arkyns, sem þeir afþökkuðu, þv(
næst búið um þá í kassa undir nótt-
ina. Að landslögum voru þessir litlu
loðinskinnar réttdræpir hvar sem
þeir næðust, og fé lagt til höfuðs
þeim, en þegar til kom virtist eng-
inn hafa áhuga á því góða gjaldi,
sem hreppstjórum er gert að greiða
fyrir móttekin tófuskott.
Þegar við komum á fætur morg-
uninn eftir, kvisaðist það fljótlega,
að Eyvindur og Halla væru horfin
úr fangageymslunni.
Við nugguðum stírurnar úr aug-
unum og bjuggum okkur undir að
skola af okkur næturdrungann.
Morgunninn var bjartur og fallegur.
Blár öræfahiminninn hvelfdist yfir
Hofsjökli og Arnarfelli hinu mikla.
Gestur Guðfinnsson.
Það er háþrýstisvæði
yfir landinu
Framhald af bls. 14.
verið gert betur í íslenzkum bók
menntum, hvorki fyrr né síðar.
— Ertu ánægður með viðtök-
urnar?
— Já. Mér er vel kunnugt um
að bókin er lesin af mikilli at-
hygli af allskonar fólki, krökk-
um í gagnfræðaskóla, mennta-
skóla og háskólanemum, og líka
gömlu fólki, til dæmis bændum.
Bókin á líka erindi fyrst og
fremst til ungs fólks og
gamals, ekki þess miðaldra, sem
stendur öðrum fæti eða báðum
í hagsmunaspillingunni, sem
henni er einmitt beint gegn. Rit-
dómana er ég líka ánægður með.
Þú manst hvað ég sagði um blöð-
in, og auðvitað eru ritdómararnir
háðir þeim. Hefðu dómar þeirra
ekki verið svona blendnir, hefði
það verið öruggur vottur um að
bókin hefði mistekizt.
— Það er þjóðfélagskrítíkin,
sem er efst á baugi hjá ykkur
Hvað kostar Vikan? askriftarsiminn er
Þú getur fengið Vikuna á kr. 23.08 með 1/11/ \A\
því að vera áskrifandi -
VIKAN 19. tbl. gy