Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 50

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 50
Barninu líður vel í húðinni! Barnimi líður 'vel-þegar notað er Nivca babyfcin. Hin reynda móðir veit bvers vegna bún velur babyfein handa barni sínu: Þessar samstilltu fram- leiðsluvörur - krem, olia, púður, sdþa - innihalda allt, sem húðLeknirinn álítur nauðsynlegt hinni viðkrvcemu húð barnsins. Börn, snyrt með babyfein, fa hvörki scerindi, né rauða og bólgna húð. HIYEA fiafiyícút" Melba STRETCH melka ER NÝJUNG Sérstaklega mjúkur FLIBBI - Þetta er hin mjúka, þægilega skyrta sem þrengir hvergi að. H E 1 7RADEII . D i Austurstræti 14, sími 12345 Laugavegi 95, sími 23862 fyrirtæki hafa leyft mér að borga . . A borðinu fyrir framan lögreglu- foringjann lógu vörurnar sem tekn- ar höfðu verið af henni, rétt í því að hún var að stíga upp í Cadillac bíl vinar síns, sem beið eftir henni. Þetta var sitt af hverju tagi: kjóll fyrir ó að gizka 2000 krónur, brjóst- nól, bikini-buxur, hólsfesti og ýmis- legt smádót, samtals fyrir 4500 krónur. Hedy Lamarr varð að vera í fang- elsi í fimm klukkutíma þar til lög- fræðingur hennar kom með trygg- ingarfé, rúmar tuttugu þúsund krón- ur. Allt virtist klappað og klárt. En strax um kvöldið var farið að íhuga hvað hefði komið henni til að fremja þennan ómerkilega þjófn- að. Gat það verið til að mótmæla leiðindalífi í allsnægtum, löngun eft- ir spennandi ævintýrum; það gat líka verið einhver glæpahneigð, sál- ræn vanheilsa eða vöntun á hæfi- leikum til að greina á milli þess sem rétt er eða rangt. En það var eitt sem ekki var hægt að ganga fram hjá, það var dómurinn frá dómstólnum [ Los Ang- eles. Þeir sem héldu að nú væri málið útrætt, höfðu ekki reiknað með stjörnunni í „Extas", sem nú var komin á forsíður blaðanna. Hún hafði fengið fólk til að gleyma í einn dag fréttunum frá Vietnam, kynþáttadeilum og þingræðu Lynd- on B. Johnsons. Hún hugsaði sér því að halda sig í sviðsljósinu. Hún kallaði saman blaðamanna- fund á veitingahúsi í Hollywood, þrátt fyrir það að vinir hennar og ráðamenn grátbændu hana um að gera það ekki. Veitingahúsið var troðfullt, þar var saman kominn „rjóminn" af slúðurdálkahöfundum Bandaríkjablaðanna, þegar leikkon- an kom. Hún var klædd grænni kápu yfir einföldum ullarkjól og lék hlutverk sem kom nær öllum við- stöddum ! mestu vandræði. Með yf- irborðs kátínu sagði hún: — Er kápan mín ekki falleg? Ég keypti hana ( gær í verzlun hér ( borginni og borgaði fyrir hana. Ég borgaði allt sem ég keypti í gær. Það var reglulega skemmtilegt að ganga í búðir í gær. En ég stal engu. Ég hefi aldrei stolið neinu, ég er ekki stelsjúk. Þetta voru allt mistök. Ég gleymdi einfaldlega að borga og þið vitið hvað sumt fólk getur verið skilningslaust. . . Einn blaðamaðurinn skaut inn f: — En fröken Lamarr, þér sögðuð sjálfar í gær að þér væruð vanar að fá að borga, þegar þetta kæmi fyrir yður í verzlunum. — Sagði ég það? Ég get ekki munað að ég hafi sagt það. Dorothy Manners, sem er dálka- höfundur hjá einu Hearst blaðanna, skrifaði eftir þennan fund ( dálki sínum: — Hér eftir þarf Hedy Lamarr vernd. Vernd gagnvart sjálfri sér. Þó allir vinir hennar ráðlegðu henni að hætta við þennan blaðamanna- fund, svaraði hún: — Það er ekki hægt, ég er búin að fá mér svo fínan hatt í tilefni af því. . . Dorothy Manners endar greinina með því að segja að það eina sem geti bjargað Hedy Lamarr sé að hún fái tækifæri til að snúa sér fyrir alvöru að þessu kvikmynda- hlutverki sem bíði hennar. Ástæðan fyrir þessum blaða- mannafundi hefur einfaldlega ver- ið sú, að hún þráði að komast aft- ur í sviðsljósið, eftir 14 ára fjar- veru, vildi vera miðdepill, sem all- ir horfðu á. Hún fékk ósk sfna upp- fyllta, en hún var dýru verði keypt. Það að hún hélt stöðu sinni á forsíðunum einn dag í viðbót, varð orsök þess að fólk fór að rifja upp allt slúðrið sem það hafði heyrt um hana síðustu tíu árin. Það var talað um taugaveiklun, eiturlyf og fjárfúlgur sem hún varð að láta af hendi til leynisala, milli- liða og fjárkúgara. Um ofsalegar sálarkvalir og reiðiköst sem hún fékk æ oftar. Hún hafði reynt að fremja sjálfsmorð með því að taka inn svefnlyf, en var bjargað á síð- ustu stundu. Svo var talað um á- flog sem hún átti í við eiginmenn- ina sex, sem hún ekki bar gæfu til að halda í. Hún missti alla s(na vini, hrakti alla frá sér, en hafði samt orð fyrir ótrúlega vergirni, sem leiddi til hálfsóðalegra ásta- funda á ódýrum hótelum, og þar af leiðandi varð hún líka stöðugt fyrir fjárkúgunum. Svo voru það veizluhöldin, sem voru svo geig- vænleg að engin blöð í Bandaríkj- unum þorðu að birta lýsingar af þeim. Það var sagt að hún væri drykkju- sjúklingur, að hún hefði varla handastjórn til að ná í fyrsta gin- glasið á morgnana, að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús, þar sem hún fékk nokkurn bata fyrir ærna peninga. Þetta var allt raunasaga um kvikmyndastjörnu, sem syrgði sína horfnu frægð. Hún átti tvö börn í hjónabandi sínu og Johns Loder, brezka leik- arans. Það var sagt frá rifrildi þeirra um börnin, ábyrgðarleysi í uppeldi barnanna. Hún hafði ver- ið tekin og sektuð fyrir ölvun við akstur, en það hafði verið þaggað niður með því að múta lögreglu- þjónum. En ekkert af þessu var fullyrt, þetta voru eingöngu ágizkanir. Þetta var svo sem ekkert meira en Hollywoodstjarna á niðurleið getur átt von á að lesa um sjálfa sig í þessum slúðurdálkum. Þetta Hollywoodhneyksli kom nú fram í Ijósi myndavélanna frá sjón- varpi og blöðum, sem lýstu misk- unnarlaust á þessa einmana fimm- tugu konu, tveggja barna móður og eiginkonu sex manna. Hún sat þarna og reyndi að gera gys að sjálfri sér fyrir það að láta taka sig fyrir auðvirðilegan þjófnað. Það var þv( ekki undarlegt að þeir sem höfðu fjárhagslegra hags- muna að gæta viðvíkjandi ráðn- ingu hennar, reyndu að stöðva þennan blaðamannafund. gQ VIKAN 19. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.