Vikan - 19.01.1967, Síða 2
C^^>UMBOÐIÐ KR.KRISTJÁNSSON H.F.
SUÐURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00
NY
CORTINA
ALGERLEGA NY CORTINA 1967 JM9 |
Hinir framúrskarandi kostir eldri
gerða Cortina nýttir til hins ýtr-
asta. Glæsilegt útlit, þægindi og
rými. Vélar 59,5 og 65 hestöfl
5 höfuðlegur. Hita- og loftræsti-
kerfið „Aeroflow" eykur enn
þægindin. Gírskipting í gólfi, á
stýri eða sjólfskipting.
KYNNIST CORTINA 1967
í fullri alvöru:
Erlendar Grýlur á
innlend fyrirtæki
Fyrir um ári skaut upp koll-
inum á íslandi ný tegund inn-
flutnings, þar sem voru verk-
smiðjuframleiddar og staðlaðar
eldhúsinnréttingar. Þessar inn-
réttingar voru að sögn töluvert
ódýrari en þær, sem íslenzkir
iðnaðarmenn búa til, og að sjálf-
sögðu úr afar vönduðum efnum
— að sögn — og þannig frá-
gengnar þótt staðlaðar væru, að
þær áttu við öll eldhús, hvernig
sem þau væru í laginu. Þar að
auki átti hvaða laghentur mað-
ur sem var að geta sett þær upp
svo að segja með annarri hend-
inni.
Töluvert var gert af því að
kaupa þessar innréttingar fyrst
í stað, og voru margir ánægðir
með kaupin en aðrir óánægðir
eins og gengur. Eitthvað bar á
því, að tilboð innflytjenda stæð-
ust ekki, endanlegt verð yrði
hærra en tilboðið hljóðaði upp á,
raddir hafa heyrzt kvarta undan
rangri afgreiðslu, og fjöldinn
hefur þurft að gera breytingar á
innréttingunum til að koma þeim
sómasamlega upp.
Allar eru þessar innfluttu inn-
réttingar keimlíkar og svipaðar.
Og þær áttu hingað erindi sem
erfiði ef satt er sem sagt er, að
þær hafi þrúkkað niður verðinu
á íslenzkum innréttingum. En
sannleikurinn virðist mér sá, að
þær íslenzku hafi flesta kosti
fram yfir innfluttar, eru bæði
fallegri og haganlegri, og fullt
eins góðar með tilliti til efnis og
vinnu, að minnsta kosti hiá þeim
framleiðendum innlendum, sem
einhverja virðingu bera fyrir
sjálfum sér. íslenzkir aðilar eru
meira að segja farnir að smíða
staðlaðar innréttingar, sem
standa að minnsta kosti feti
framar en þær erlendu.
Og því segi ég innflutning á
erlendri vöru til samkeppni við
innlenda afar hagstæðan. Hann
á að vera Grýla á innlenda
framleiðendur, svo þeir leiti að-
ferða til að halda verðinu niðri
og vöru og þiónustu til jafns
við eða betri en þeirri, sem fram-
leidd er í útlöndum. En við eig-
um líka hiklaust að koma til
móts við íslenzka framleiðendur
og leitast við að verzla fremur
við þá en erlenda auðhringi, með-
an nokkur skynsemi er í því.
S. H.
S VIKAN
2. tbl.