Vikan - 19.01.1967, Qupperneq 5
Ringo Starr og Maureen Cox. Jane Ashcr og Paul McCartney.
brögðin.
Fyrst í stað fannst honum þetta
ósköp furðulegt og óaðgengilegt,
og láir honum enginn það, en í
aðra röndina var þó eitthvað við
þetta, sem gagntók hann. Hann
tók að blanda geði við Indverja
búsetta í London — og sérstöku
ástfóstri tók hann við náunga að
nafni Ravi Shankar, nafntogaðan
sítarspilara.
Hinir bítlarnir þrír fylgdust af
áhuga með þeim breytingum, sem
urðu með Georg — og kannski
nokkrum kvíða líka — og það
varð að ráði, að slá öllum ráða-
gerðum um kvikmyndatöku á
frest og halda í þess stað frí um
óákveðinn tíma. Taka þriðju
kvikmyndar Bítlanna hefur sem
kunnugt er dregizt mjög á lang-
inn, og er allt enn á huldu um
það, hvenær hafizt verður handa
um gerð hennar.
Fríið notuðu Georg og frú til
þess að fara í ferðalag til Ind-
lands, og þar var tekið á móti
þeim með kurt og pí. Eftir
skamma dvöl í Indandi var Georg
orðinn næstum óþekkjanlegur.
Hann hafði safnað yfirskeggi og
klæddist indverskum kufli. Mest-
um hluta dags varði hann til hug-
leiðinga. Hann byrjaði að hugsa
um lífið, einkum þó sitt eigið líf,
og smátt og smátt breyttust lífs-
venjur hans.
Þegar sú frétt kvisaðist út, að
Georg hefði sótt um — og fengið
— að komast að í elsta og bezta
tónlistarskóla í Nýju Dehli, þótt-
ust menn sannfærðir um hvert
stefndi hjá pilti.
Jólaplata Bítlanna, sem átti að
koma út um síðustu jól, varð
fyrir vikið aldrei annað en hug-
myndin ein. Og á sama tíma var
John önnum kafinn við kvik-
myndaleik í Þýzkalandi og á
Spáni. Ringó tók sér ferð á hend-
ur til að heilsa upp á hann, en í
London sat piparsveinninn Paul
McCartney og hafði ekki við að
neita því, að hann væri þegar
kvæntur Jane Asher.
Blaðamenn hafa ótal sinnum
reynt að veiða upp úr Georg,
hvað fyrir honum vaki. Hann
svarar öllum spurningum á einn
veg:
— Framtíðin mun leiða það í
ljós.
3. tbi. VIKAN 5