Vikan - 19.01.1967, Síða 8
HEILSAN FYRIR ÖLLU!
Chrysler verksmiðjurnar hafa,
eins og allar stærstu bílaverk-
smiðjur, ýmsar hugmyndir á
prjónunum og vinna að úr-
vinnslu þeirra jafnhliða sinni
venjulegu framleiðslu. Tvær
þær tilraunir, sem mesta athygli
hafa vakið, er túrbína í staðinn
fyrir stimplavél í fólksbíla, og
tilraunabíllinn 300 X, sem gerð-
ur var í félagi við General Tire
& Rubber Co.
Fyrir rúmu ári voru 50
reynslubílar með túrbínu settir
í umferð; valið af handahófi úr
hópi Chrysler viðskiptavina,
þannig að alls hafa 203 haft bíl-
ana 50 með höndum og notað
þá við sínar daglegu ökuaðstæð-
ur. Með þessu móti hefur fengizt
dýrmæt reynsla til að byggja á,
og svo jákvæð, að ástæða er til
að ætla, að túrbínubílar verði
fáanlegir áður en mjög langt um
líður.
Forráðamenn Chrysler segja,
að fyrir þeim hafi aðallega vak-
að að fá reynslu á hinum ýmsu
hlutum túrbínunnar. Niðurstað-
an sé sú, að þeir muni allir end-
ast 100 þúsund mílur (176 þús.
km.), eins og amerískum þyk-
ir lágmark. Sannleikurinn er sá,
að túrbínan hefur í flestum til-
vikum komið afbragðs vel út úr
reynslunni. Aðeins eldneytis-
eyðslan hefur veri'ð óhagstæð,
miðað við eyðslu stimpilvéla,
án þess að keyra úr hófi. Önnur
aðalatriði í sambandi við túr-
bínuna eru þessi:
Túrbínan er afburða gangviss
og fer ljúflega í gang, jafnvel í
aftaka kuldum. — Orkufall
verður mjög lítið, jafnvel ekki
eftir langa notkun (yfir 100 þús.
km.). —- Viðhald á túrbínunum
var sama og ekkert, borið sam-
an við stimpilvélar. — Við-
bragð og hraðaaukning reyndist
í góðu lagi, þótt hestaflatala túr-
bínunnar væri aðeins 130. Sum-
um, sem vanir voru aflmiklum
stimpilvélum, mislíkaði þó þetta
atriði.
Aðalkostir fram yfir stimpil-
vélar eru taldir þessir: Vottar
ekki fyrir titringi frá vél. •—
Langtum lægri viðhaldskostnað-
ur. — Túrbínan fer alltaf í
gang, hversu kalt sem er. — Vél-
arorkan fellur ekki, þótt túr-
bínan slitni. — Miðstöðin heit
svo að segja undir eins að vetri
til. — Mjög lágt ganghljóð. —
Túrbínan hikstar aldrei.
Hliðartilraunir, sem gerðar
voru jafnhliða túrbínutilraun-
inni, gáfu ekki góða raun, svo
sem að hafa alternator og start-
ara í sama stykkinu. f framtíð-
inni ætlar Chrysler að halda sig
við gamla lagið, alternator og
startara sitt í hvoru lagi.
Chrysler 300 X er eins og áð-
ur segir, gerður í félagi við
NÝJDNGAR
i