Vikan - 19.01.1967, Síða 15
Hún á ekki Rolls
Royce eins og aðrar
stjörnur, heldur
ferðast hún með
neðanjarðarlest-
unum og alinenn-
ingssporvögnum.
Julie Christie hefur
gaman af því að búa
til mat, en eldliúsið
er að minnsta kosti
ekki eftir íslenzkri
forskrift.
íbúðin liennar í
London er sambland
af Viktoríustíl og
popstíl. Anti-stjarnan
sefur í þessu járn-
rúmi.
Julie Christie 10 ára.
Hún brosti afar
sjaldan, sem barn.
hefur það á tilfinningunni að maður geti farið
hvenær sem er, kærir maður sig ekkert um það og
situr sem fastast.
Karlmenn og konur dragast ósjálfrátt að Julie
Christie, vegna þess að hún er óspillt og frjálsleg.
— Það er ekki neinn kynþokki, sem dregur
karlmennina að mér, segir hún sjálf, — heldur er
það vegna þess að ég er frjálsleg. — Karlmenn
vilja ekki taka neina ábyrgð, og það vil ég ekki
heldur.
— Ég hef aðeins einn góðan hæfileika, ég er
heiðarleg. Ég lifi fyrir líðandi stund og hugsa
aldrei um morgundaginn. Ég get ekki ímyndað mér
hvernig það er að deyja, en ég lifi eins og ég gæti
dáið á morgun. Ég nýt lífsins í fullum mæli. Ég
man ekkert frá æsku minni, en ég hefi það á til-
finningunni að ég hafi verið innilokuð til 16 áira
aldurs, þá fór ég til Frakklands og þar með fór
ég að finna bragð af lífinu.
— Julie Christie er fædd í Indlandi, dóttir
brezkra plantekrueiganda. Hún var send til Eng-
lands, til að ganga í skóla, varð fljótlega þessi
uppreisnarseggur, sem hún er enn þann dag í dag,
var rekin úr nokkrum skólum, fór til Frakklands,
ákvað að verða bítnik og leikkona og hóf feril
sinn á vindsængum.
Það var fyrir sérstaka heppni, að hún fékk hlut-
verkið í „Lygaranum“, síðan hefur allt gengið
af sjálfu sér.
John Schlesinger, leikstjóri hennar í „Lygaran-
um“, segir að hún sé eðlileg og sjálfri sér sam-
kvæm. Hún reynir aldrei að notfæra sér það að
hún er hin fræga Julie Christie. Hún virðist hafa
ótakmarkaða hæfileika sem leikkona. Hún hefur
alltaf upp á eitthvað nýtt að bjóða, og andlitið
getur sýnt hundrað svipmyndir á skömmum tíma.
Mótleikarar hennar, leikstjórar, ljósmyndarar og
snyrtikonur, ljúka öll upp einum munni að frá
henni ljómi einhverjir töfrar, sem ekki hafa
þekkzt, síðan Garbo var og hét. Hún hefur lífgef-
andi áhrif á allt sitt umhverfi.
— Hún er eðlileg, heiðarleg og hlýleg, segja vin-
ir hennar.
Að lifa lífinu er list fyrir henni. Hún er falleg,
en óskar frekar eftir því að það sé sagt að hún
sé Ijót.
Julie Christie segir um sjálfa sig:
— Ég gæti ekki lifað án ástarinnar.
Það er mér hamingja að fá að vera með vinum
mínum, vera ástfangin og að dansa á hverri nóttu.
Ég er 25 ára. Ég vildi að ég væri aðeins 22, og
að enginn kannaðist við mig. Þegar maður fer að
vinna vel fyrir sér, er frjálsræðið búið.
í huganum bölva ég eins og brjálæðingur, yfir
sjálfri mér.
Ég er ekkert gáfuð, en ég hefði viljað stunda
háskólanám, til að þjálfa hugsun mína. Ef maður
lætur það eftir sér að hætta að hugsa, er örugglega
erfitt að taka upp þráðinn aftur.
Ef ég hefði einkabílstjóra, léti ég hann ekki
vera í einkennisbúningi, og ég myndi alltaf sitja
í framsætinu hjá honum.
Ég hugsa rökrétt.
Þegar ég fæ frí, ætla ég að sofa, — sofa....
Ég er alltaf óánægð.
Hin glæsta stjörnufrægð er úrelt. Nútíma fólk
hlær að stjörnutilbeiðslunni.
— Metnaðargirnd. Ég veit ekki hvort ég er
nokkuð metnaðargjörn. Það eina sem ég veit er
að ég óska að verða betri með hverjum degi, sem
leikkona, og töffari með hverjum degi, sem mann-
eskja.... '• 1
s. tw. VIKAN 15