Vikan - 19.01.1967, Blaðsíða 23
HLEYPUR FYRIR
VÍSINDIN
Fyrrverandi stjörnuhlaupari Breta, Bruce Tulloli, liefur nú
ásamt di'. Griffitli Pngh umfangsmiklar rannsóknir á
prjónunum, sem geta komið íþróttamönnum til. góða i
framtíðinni. Hann hleypur með bíl doktorsins og andar í
gegnum leiðslu, sem liggur inn í bílinn, en þar safnar
doktorinn saman í smápoka útöndun Tullolis og merkir
þá með liraða Tullohs á hverjum tíma og hve lengi og
langt liann hefur þá hlaupið. Með því að efnagreina svo
úthlásturinn og taka tillit til þeirrar slaðreyndar, að því
minna súrefni sem hlaupari notar því betur hleypur hann,
ætlar dr. Pugh að reikna út beztu vegalengd hlauparans
og hvernig hann gctur hlaupið hraðar. Bretar tengja mikl-
ar vonir við þessa tiiraunastarfsemi fyrir ólympíuleikana
i Mexíkó árið 1968.
■
BLÓÐSKIFTI I ÓFÆDDUM
BÖRNUM
í Lewisham Hospital i London hafa fæðingarlæknarnir tek-
ið að skifta um blóð í ófæddum börnum, þegar svo óheppi-
lega vill til, að ósamræmi er milli blóðs móðurinnar og
barnsins, þannig að barnið nær ekki að mynda rauð blóð-
korn með eðlilegum hætti verður blátl barn, eins og kall-
að er. Heilbrigt hlóð af réttum blóðflokki er tekið samdæg-
urs úr sjálfboðaliða og dælt með yfir sex þumlunga langri
holnál sem stungið er gegnum kvið móður í líkama barns-
ins milli mjaðmar og rifjahylkis. Með sérstökum aðferðum
er liægt að fylgjast með nálinni á sjónvarpsskermi, og taka
blóðskiftin um 20 mínútur. Þrem dögum eftir blóðskiftin
er nýja blóðið tekið að renna með eðlilegum hætti um lík-
ama barnsins, og það liefur mildu meiri möguleika til að
lifa af fæðingu fyrir tímann. Við fæðingu er svo skift um
blóð til fulls. — Lælcnarnir við Lewisham Hospital hafa nú
gefið um 90 ófæddum börnum 150 blóðgjafir, sama barni
allt upp í fimm gjafir, og fyrir hefur komið, að blóðgjafir
hefjast fjórum og hálfum mánuði fyrir áætlaða fæðingu.
HÆGT AÐ SUÁ HJARTABILUN
FYRIR
Tveir bandarískir læknar, Meyer
Friedman og Roy Roseman, teljast
nú hafa sannað að mögulegt sé
að sjá hjartabilanir fyrir, þótt svo
hlutaðeigandi og verðandi sjúkl-
ingar séu enn fullkomlega heil-
brigðir.
Þessir læknar yfirheyrðu nærri
þrjú þúsund og tvö hundruð Kaii-
forniubúa af öllum stéttum og
starfsgreinum og spurðu þá spurn-
inga, sem fiestar voru nærgöngular
og sumar beinlínis ósvífnar. Svörin
voiu tekin upp á segulbönd og síð-
an vandlega farið í gegnum þau.
Þcir sem svöruðu voru siðan eftir
eðli svaranna flokkaðir i tvennt, í
A- og B-flokk. í siðarnefnda flokk-
inn voru settir þeir, sem svöruðu
cf meiri hógværð.
Læknarnir töldu, að harðvítug-
ustu A-mennirnir, fimmtíu og fjór-
ir að tölu, ættu öðrum fremur á
hættu að fá hjartakast. Þeir voru
allir gaumgæfilega rannsakaðir af
öðrum læknum en Friedman og
Roseman, og fengu vitnisburð þess
efnis að þeir væru við hestaheilsu.
Síðan rannsóknin var gerð, hafa
sjötíu af þessum tæplega þrjú þús-
und og tvöhundruð mönnum feng-
ið fyrir hjartað. Meðal þeirra eru
allir hinir fimmtíu og fjórir. Níu
þeirra sem köstin fengu, dóu úr
þeim. Af þeim voru átta úr hópi
hinna fimmtíu og fjögurra.
3. tbi. VIKAN 23