Vikan - 01.06.1967, Qupperneq 6
BLAUPUNKT
Ú T V Ö R P
MARGAR GERÐIR AF
BLAUPUNKT ÚTVÖRPUM
Guimr Ásoiirssoi
Suðurlandsbraut 16 — Reykjavfk — Sími 35200
Útibú Laugaveg 33.
VÍSA LEIÐRÉTT
JÓN RAFNSSON hefur beðið
Vikuna að koma á fram-
færi leiðréttingu á vísu eftir
hann, sem rangfærð hefur verið
og nú síðast í grein Ásgeirs
Jakobssonar um Nóvuslaginn á
Akureyri. Eins og allar aðrar
vísur Jóns varð þessi til af sér-
stöku tilefni en ekki því, sem
síðar hefur verið álitið og m.a.
kom fram í umræddri grein. Rétt
er vísan svona:
Það sem var er virt að öngu„
veik þótt hjari önd.
Þú ert fjarað fyrir löngu
fley á mararströnd.
MÁL ER AÐ NEFNA ....
Kæri Póstur
Ég vil byrja á því, að þakka
þér kærlega fyrir allt það efni,
sem Vikan flytur okkur viku-
lega. Vitanlega er það misjafnt,
en alltaf er eitthvað í hverju
blaði, sem gaman er að lesa. Ég
vil til dæmis þakka fyrir grein-
ar Helga Sæmundssonar. Þær
eru jafnan hressilega skrifaðar,
og hann er skemmtilega óragur
við að láta í Ijós skoðanir sínar,.
þótt þær séu slundum langt frá:
því sem almennt er álitið.
Ég las með ánægju grein hajxs
um mannanöfn á íslandi „Mál er
að nefna manna heiti.“ Ég er sam-
mála ýmsu sem þar stendur, en
þó ekki öllu eins og gengur. Ég
hef oft furðað mig á þeirri ó-
svinnu hæstvirts Alþingis að
þvinga útlendinga til að taka upp
íslenzk heiti, þegar þeir gerast
íslenzkir ríkisborgarar. Mér hef-
ur alltaf fundizt það hlálegt, að
menn eins og Paul Pampichler
og Robert Abraham, menn sem
hafa unnið tónlistarlífi okkar
mikið gagn, skuli verða að skipta
um nafn og kalla sig Pál Páls-
son og Róbert Ottóson. Ég er
sammála Helga um, að slíkt sé
hrein móðgun við þá.
Hins vegar er ég eindregið á
móti því að draga manmanöín í
dilka og segja að þessi nöfn séu
Ijót og hin falleg, eitt raminís-
lenzkt en annað aðskotan.afn.
Menn eru eðlilega viðkvæmir
fyrir nöfnum sínum og smekkur
fyrir nöfn fer ekki eingöngu eft-
ir málkennd, heldur miklu frem-
ur þeim kynnum, sem maður hef-
ur af þeim sem nöfnin bera.
Ástæðan til þess að nöfn, sem
kannski eru ekki falleg í sjálfu
sér, eru almennt notuð, er ein-
faldlega sú, að hér á Iandi tíðk-
ast sá siður að heita í höfuðið á
ættingjum og vinum,. að maður-
ekki tali um það, þegar nafns er
vitjað í draumi. Þess vegna er
ég á móti því, að verið sé að
fárast yfir, að eitt nafn sé fal-
legra en annað.
Með þökk fyrir birtinguna,
Bertel.
I
Bertel er einmitt eitt af nöfn-
um þeim, sem Hermann Pálsson
kallar aðskotanöfn í bók sinni
íslenzk mannanöfn, svo að bréf-
ritara er málið skylt. Við erum
sammála Helga í því, að nauð-
synlegt er, að lögum um íslenzk
mannanöfn sé hlýtt og heim-
spekideild Háskóla íslands semji
eins og henni ber skrá yfir góð
og gild íslenzk mannanöfn. Ann-
ars gæti þróunin orðið sú, að
ónefnum færi stöðugt fjölgandi.
En satt er það: Nafngift er jafn-
an viðkvæmt mál, margs konar
sjónarmið sem þar koma til
greina og eðlilegt að mönnum
l»yki vænt um nöfnin sín.
SKELLT Á ... .
Kæra Vika!
Það hafa svo margir leitað til
þín með ýmsar spurningar, en
mig langar nú til að biðja þig
um hjálp. Það er út af einum af
-vinum mínum. Við erum búin
að vera saman í mánuð og ég
hringdi til hans dag einn. Þegar
ég var búin að tala svolítið við
hann, þá skellti hann bara á.
Hvað á ég að gera? Mig langar
ekki til að slíta vinskap við hann.
Geturðu ráðlagt mér eitthvað?
Ég les alltaf stjörnuspána þína.
Með fyrirfram þökk,
Ein vonsvikin.
Getur ekki verið, að samband-
ið hafi skyndilega rofnað, síminn
bilað eða eitthvað komið fyrir?
jÞú ættir að athuga það. Kannski
hefur þú líka hagað orðum þín-
um óvarlega við hann og sært
hann eða móðgað. Hafi hann
hins vegar skyndilega meðan á
samtalinu stóð tekið þá ákvörð-
un að slíta vinskap við þig, þá
er það búið og gert. Þú segir, að
hann sé e i n n af vinum þín-
um. Er þá ekki nóg eftir, þótt
þessi heltist úr lestinni?
. . . . OG SKELLT Á EFTIR SÉR
Kæri Póstur!
Ég er búin að vera með strák
'í fjóra mánuði, þangað til um
'daginn (eða fyrir rúmlega viku).
Þá rifumst við svo heiftarlega
áð hann skellti á eftir sér hurð-
inni og fór. Ég sá hann ekki í
viku, en þá kom hann loksins
0 VTKAN 22- tbl-