Vikan - 01.06.1967, Side 17
Fiórfán hata leikiO
nti Dimbi-sextett
Jllt andaO líf"
- segfa Reynlr og
Jón Trausti
NÝJAR HUDMPIOTUR
3að voru fjórir nemendur í Gagnfræða-
;kóla Akra'nesa, sem stofnuðu Dúmbó
;extetinn um haustið 1961. Hljómsveitin
rar kvartett fyrstu Ivö árin, en vorið 1963
;ru gerðar róttækar breytingar, hljóm-
;veitarmeðlimum var fjölgað og hljóm-
;veitin tók á sig þá mynd, sem hún hefur
dag. Lengi vel var hljómsveitin á hött-
mum eftir söngvara, en sú leit var far-
;ællega til lykta leidd, þegar Sigursteinn
lákonarson var „uppgötvaður". Haustið
^963 kemur Ásgeir Guðmundsson lil sög-
innar, og er hann kjörinn hljómsveitar-
;tjóri (með leynilegri atkvæðagreiðslu)
i samri stundu. Ári síðar koma Ragnar
Sigurjónsson (trymbill) og Reynir Gunn-
irsson (saxófónleikari í hljómsveitina.
\ðeins tveir af núverandi hljómsveitar-
neðlimum hafa verið með frá upphafi,
lón Trausti Hervarðsson og Trausti Finns-
;on, en alls hafa fjórtán manns leikið með
iljómsveitinni á æviferli hennar.
Ekki alls fyrir löngu sögðum við frá því hér á
síðunni, að saxófónar knúðir rafmagni væru farnir
að ryðja sér til rúms úti í heimi. Við vissum ekki
þá, að saxófónleikarar Dúmbó sextetts, Reynir og
Jón Trausti, hafa í nokkra mánuði notað slíkan
útbúnað. Hér er um að ræða tiltölulega nýja upp-
finningu, sem vakið hefur mikla atygli hjá blásur-
um í danshljómsveitum. Það voru brezku verk-
smiðjurnar ..Arbiter Electronics“, sem fundu þetta
upp og nefna brezkir útbúnað þennan ,,The Bug“.
Nokkurs konar ,,pick-up“ er komið fyrir undir
munnstykki hljóðfærisins, og hljóðið síðan leitt í
gegn um magnara, eins og um rafmagnsgítara væri
að ræða.
— Þetta er allt annað líf, sögðu þeir Reynir og
Jón Trausti, þegar við ínntum þá nánar eftir hinum
nýja útbúnaði, — maður þarf ekki lengur að belgja
sig allan út!
Þessi útbúnaður, sem eflaust á eftir að ryðja sér
til rums hér eins og annars staðar, er ekki ýkja
kostnaðarsamur, — kostar sem svarar 1200 íslenzk-
um krónum.
**í|-«>í'o h *nre:i
iðir til Akrsiess
Á nýrri hliómplðtu
Dumbó - sextetfis
Það, sem öðru fremur gefur hinni nýju
hljómplötu Dúmbó sextetts gildi, er að öll
lögin (að einu undanskildu) eru ný — og
þar á ofan öll eftir Akurnesinga. Meðal ann-
ars er að finna lagið Angelía, sem raunar
hefur fylgt hljómsveitinni lengst af í þau
fjögur ár, sem hún hefur verið og heitir.
Þetta fallega lag Theódórs Einarssonar á ef-
lausl eftir að heyrast oft á næstunni, og
þeir eru eflaust margir, seln beðið hafa
eftir, að það kæmi á plötu. Á plötunni leikur
Ásgeir bæði á orgel og pianó, en að öðru
leyti er í engu breytt frá fyrri útsetningu
hljómsveitarinnar.
Þá er að nefna lagið „Skammdegi" eftir
Finnboga Gunnlaugsson, gítarleikara hljóm-
sveitarinnar. Af þeim átta lögum, sem Dúmbó
lék fyrir hljómplötuútgáfu, hefur Finnbogi
samið fjögur. Hann hefur ekki fengizl mikið
við tónsmíðar áður, en þessi frumraun hans
lofar sannarlega góðu. Þess má geta til gam-
ans, að Finnbogi er frændi Gunnars Þórðar-
sonar, hins snjalla gítarleikara og lagasmiðs
frá Keflavík, og ólust þeir báið upp á Hólma-
vík. Segja má, að ,,Skammdegi“ sé óður
Dúmbó til Akraness; í textanum segir m.a.
„Akranesið er/í öllum skrúða hér ....“ og
,,. .. yndislegt það er að eiga slíkan stað“.
Textan hefur samið Smári Hannesson, sem
cr ungur Akurnesingur.. Finnbogi og Steini
syngja hér saman.
„Hringferðin“ nefnist annað lag eftir Finn-
boga við texla Smára Hannessonar. Þetla
er gamankvæði, sungið af Steina og Finn-
boga, fjörlegt og skemmtilegt.
Þá er eitt lag ótalið, en það heitir „Ég sendi
henni blikk“. Lagið er eftir Smára Hannes-
son og Bjarna Þór, en textinn eftir Smára.
Þetta er gamanvísa, og lýsir því, er ástin
grípur unglingana. Steini og Finnbogi syngja
enn sem fyrr. Þessi hljómplata er gefin út
á vegum UF-hljómplötuútgáfunnar. Hún var
hljóðrituð í London i Maximum Sound Stu-
dio. Nokkur dráttur hefur orðið á útkomu
plötunnar, og virðist sem einhverjir byrj-
unarörðugleikar hafa háð hinni nýstofnuðu
hljómplötuútgáfu. Óskandi er, að Jón Lýðs-
son dragi ekki saman seglin heldur haldi
áfram á sömu braut - að gefa út hljóm-
plötur við hæfi unga fólksins.
Dúmbó sextelt er hinn mesti sómi af þess-
ari plötu. Við gefum henni okkar beztu með-
mæli.
22. tbi. VIKAN 17