Vikan


Vikan - 01.06.1967, Síða 18

Vikan - 01.06.1967, Síða 18
ÉG, JIM GARRISON, HEF RANNSAKAÐ KENNEDYMÁL- H) í ÞRJÚ ÁR SAMFLEYTT. ÉG HEF EKKI KOSTAÐ TIL ÞESS 911.000 DOLLURUM, EINS OG WARREN-NEFNDIN GERÐI, HELDUR AÐEINS 4000. EN ÉG ER SANNFÆRÐUR UM AÐ ÉG MUNI GETA FÆRT Á ÞAÐ ÓHREKJANDI SANNANIR ÁÐ- UR EN RÉTTARHÖLD GEGN CLAY SHAW HEFJAST EFTIR SVO SEM 3—4 MÁNUÐI, AÐ KENNEDY FORSETI HAFI FALLIÐ FYRIR SAMSÆRIS- MÖNNUM ÚR HÓPI KYNVILL- INGA. ÉG MUN GETA SANN- AÐ, AÐ FLEIRI HAFI SKOTIÐ SKOTUNUM, SEM HÆFÐU FORSETANN, EN OSWALD EINN. SÁ SEM SÆRÐI FOR- SETANN TIL ÓLÍFIS HEITIR MANUEL GARCIA GONZALES. OG AÐALMAÐURINN 1 SAM- SÆRINU HEITIR CLAY SHAW. Hér ern sðnnunereðen mín: Murlil á Kennede forseta ver kvn- villinneeememri Jim Garrison ber hér fram staðhæfingu sína um það, að morðingjar Kennedys hafi verið siðspilltir hómósexúalististar Þessir samsærismenn áttu sér fyrirmynd í sögu bandarískra glæpamála; mál Leopolds og Lo- ebs í Chicago. Þetta er álit mitt. Máli mínu til sönnunnar, færi ég fram þessi atriði: Clay Shaw var í þingum við flugmann, sem hét David Ferrie. Ferrie kynntist Lee Oswald af tilviljun og varð hrifinn af hon- um. Þegar þetta gerðist, eða um vorið 1962, höfðu þeir Shaw og Ferrie þegar tekið ákvörðun um að myrða forsetann. Þeir höfðu þá talið mann nokk- urn á að vinna verkið, hann hét Manuel Garcia Gonzales. Ferrie sagði Oswald frá ráðabrugginu 18 VIKAN 22-tbl' og gekk honum greiðlega að fá hann til að gerast þátttakandi. Hann átti að villa um fyrir lög- reglunni, beina athygli hennar í átt til sín, eftir að sjálfur morð- inginn, Gonzalea, hefði skotið þeim skotum, sem hæfa skyldu forsetann. Ég veit að mörgum mun finn- ast þetta ævintýri líkast. En ég þykist munu geta fært sönnur á þetta lið fyrir lið, enda er ég þess fullviss, að þetta „ævintýri“ er sannleikurinn í málinu. Fyrir þremur árum var mér falið það af FBI að yfirheyra Ferrie. Það hafði fallið á hann grunur. Og að yfirheyrslunni lok- Lykillírfin að glæpnum Fyrirmynd samsærismannanna: BarnamorS- ingjarnir í Chicago, Leopold og Loeb. Árið 1924 tóku tveir auðmannasynir, Richard Loeb og Nathan Leopold, saman ráð sín um að fremja „hinn fullkomna glæp“, þ.e.a.s. glæp, sem ekki yrði með neinu móti afhjúpaður. Þeir myrtu bam, aðeins til þess að fá að vita, „hvernig morðingja er innanbrjósts." En þó að allt ætti að vera sem vandlegast undirbúið, varð þeim ein skyssa á, og hún dugði til þess að koma upp um þá, og voru þeir handteknir. Þetta varð að prófmáli í glæparannsóknum og dómum. Jim Garrison er þess fullviss, að Shaw, Ferrie, Oswald og Gonzales hafi framið árásina á Kennedy forseta af nákvæmlega sömu hvötum. Dr. Max Mikorey, sál- fræðingur og sálsýkisfræðingur, segir svo í álitsgerð sinni: „Ég álít að kynvillingum sé hægt um vik að stofna til samsæris, einkum ef þeir láta hatur og öfund ráða gerðum sínum. Ekki sízt hatur og öfund til einhverrar „dýrlegrar hetju". Ef þessi tilgáta stæðist, mundi mega setja ýmislegt i samband við það sem gerzt hefur síðan viðvíkjandi morðinu á Kennedy; hræðslan við að upp komist verður þess valdandi, að talið er skylt að útrýma öllum sem hópurinn teiur sér hættulega, og muni geta komið upp um athæfi þeirra." Samkomustaðir samsærismanna: Hrár í hinum franska hluta Ncw Orleans. Þarna komu kynvillingar saman til að leita sér samhanda. í knæpunni sem hér er á myndinni, Wanda's Bar, tölufhi þeir Os- wald og Shaw sig saman um það hvcrt hlutverk Oswald skyldi hafa í árásinni.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.