Vikan - 01.06.1967, Qupperneq 21
mm
Upptaka á. fyrsta íslenzka sjónvarpsleikritinu, ein-
þáttungnum Jón gamli eftir Matthías Johannessen.
Talið frá vinstri: Gísli Alfreðsson, Bcnedikt Árna-
son, leikstjóri, Lárus Pálsson, Matthías Joliannesscn,
Valur Gíslason og Sigurliði Guðmundsson, mynda-
tökumaður.
Starfsmcnn Lista- og skcmmtideildar sjónvarpsins
hera saman bækur sínar. Frá vinstri: Steindór
Hjörleifsson, Andrcs Indriðason og Tage Ammen-
drup.
og nú er ástatt takmarkast taka sjónvarps-
leikrita ekki aðeins af fjárhagsástæðum,
heldur aðallega sjónvarpssalnum. Til þess að
taka leikrit þarf að hafa salinn í marga daga
í röð, en hann er nær alltaf upptekinn, eins
og ég sagði áðan. Ef við lítum á stundatöflu
yfir upptökur eina viku, þá sést vel hversu
erfitt er að ráðast í stór verkefni eins og
leikrit. Á mánudögum er engin upptaka. Sá
dagur fer í viðgerð og viðhald á vélum. Á
þriðjudögum er barnatíminn tekinn upp. Á
miðvikudögum hefur fréttadeildin tíma til
að taka viðtöl og annað, og síðan er hægt
að taka eitthvað stutt þann dag til klukkan
hálf sex. Alla útsendingardagana er ekki
hægt að vera við upptökur nema fram að
þeim tíma. Fimmtudagurinn er okkar dagur,
og það er eini dagurinn sem við getum verið
fram á kvöld ef þörf er á. Á föstudögum er
aftur tími fréttadeildar, og laugardagurinn
fer að mestu undir messurnar. Þegar nýju
tækin koma, bætist mánudagurinn við, því
að þá fer minni tími í viðhald. Einnig bætist
öll aðstaða hjá okkur með komu þeirra. Þá
getum við tekið upp efni í bútum og skeytt
því saman, og það verður mikill munur. Það
tekur á taugarnar, ef upptaka á einhverjum
þætti er langt komin og hefur gengið vel,
þegar eitthvað óhapp kemur skyndilega fyrir
og byrja verður á byrjuninni aftur.
Það sem okkur vantar lilfinnanlegast nú
er lítill upptökusalur fyrir fréttir og viðtöl,
Þessi mynd er dæmigerð fyrir upptöku í sjónvarps-
sal. Allt á fleygiferð. Ekki færri en fimmtán tækni-
menn koma við sögu hverrar upptöku.
dagur fer í viðgerð og viðhald á vélum. Á
Framhald á bls. 34.
22. tbi. VIKAN 21