Vikan


Vikan - 01.06.1967, Blaðsíða 27

Vikan - 01.06.1967, Blaðsíða 27
Q Frægust allra mynda Óskars er Björgunarafrekið við Látrabjarg, sem hann tók fyrir Slysavarnafélag íslands. Yzt til vinstri er Óskar með kvikmyndavélina, en til hægri er Þórður Jónsson frá Látrum, en hann var hvort tveggja í senn: höfundur kvikmyndahand- rits og leikstjóri. Á milli þeirra eru fjórir úr björgunarsveitinni. O Björgunarsveitin leggur af stað. Björgunarhringir, vistir og annar farangur settur á hestana. Heima á bæjunum biðu skipbrots- mannanna upphituð rúm og önnur aðhlynning. Línu var slcotið til skips og heppnaðist vel að ná skip- brotsmönnum í land, þrátt fyrir brim og illviðri. Q Það var skollið á myrkur og ófært að draga fleiri menn upp á bjargið. Þeir sem voru í fjörunni eða á áfangastaðn- um á Flaugarnefi urðu að búa sér þar næturvist. 22. tbi. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.